Tíminn - 15.11.1968, Síða 5
gerðinni Lamborghini Espada,
og að kaupverðið hafi hvorki
verið meira né minna en 10.240
pund. „Við búumst við að taka
við biírsiðinni fljótlega, og ég
hlakka afskáplega mikið til“.
sagði Banks, „ég veit sannar-
lega ekki hvað ég á að gefa
Sandie í staðinn, kannski leyfi
ég henni að læra að aka“. —
Sandie Shaw sagði að hún
kynni enn ekki að aka, og að
hún væri hálfhrædd við að aka
sportbifreiðinni. „Ég yrði vit-
laus af hræðslu".
Hún er Gyðingur, hann er
Arabi. Samt sem áður brosa
þau breitt, og eru að sögn sann
ir vinir. Hann heitir Omar
Sharif, og er þrjátíu og fimm
ára gamall leikari, sem mörg-
um íslendingum er að góöu
kunnur fyrir leik sinn í mynd-
inni Sívagó læknir, en þar lék
hann aðalhlutverkið. Hún heit-
Frú ísabella Clark hefur ár-
am saman rekið, ásamt með
manni sínum, fremur vesælt
veitingahús í Essex í Bretlanöi.
Hún náði fyrir skömmu fimm-
tíu ára aldri, án þess að haía
nokkurn tíma átt fé til annars
en nauðþurfta. Nú hefur aftur
★
Hér sjáum við frú Lady Bird
Johnson, núverandi forsetafrú í
Bandaríkjunum taka þátt í
keiluspilskeppni. Frúin tapaöi
í leiknum, en andstæðingar
hennar voru þær frú Humphrey
og frú Muskie.
ir Barbara Streisand, og er
tuttugu og sex ára að aldri.
Þau munu vera að fara á frum
sýningu einhverrar kvikmyndar,
og leiðast eins og kannski sjá
má. Að undanförnu hafa þau
unnið saman að gerð kvikmynd
arinnar „Funny girl“, sem ný-
lega var lokið við.
á móti álitleg fjáruppha:ð
bætzt við í bankabók hennar,
eða nákvæmlega fimmtíu millj.
í beinhörðum krónum. Frúin
hefur aldrei þekkt manninn sem
eftirlét henni þessa fjárupp-
hæð, en það var Harvey frændi
hennar í Ameríku. Hann dó
drottni sínum á Langasandi í
Californíu fyrir hálfu ári síðan.
Hún hafði reyndar heyrt föð-
ur sinn tala um manninn nokkr-
um sinnum, þegar hún var barn
að aldri ,en fljótlega gleymt
öllu um þennan frænda sinn.
Það kostaði hinn bandaríska
lögfræðing, Stephen Pace, hálfs
árs vinnu að finna þennan eina
ættingja Harveys gamla, sem
enn var á lífi. Hinn sálaði Har-
vey var nefnilega ekki aðeins
afskaplega ríkur, heldur lika
hræðilega slæmur með að rífa
öll bréf sem hann fékk, og tor
tíma öllum heimilisföngum
sem í þau voru skrifuð. Það
fundust heldur engin síma-
númer í fórum þess ágæta
milljónamærings, en einhvers
staðar lengst niður á skúffu-
botni lá gulnuð ljósmynd af
einhverri konu. Lögfræðingur-
inn, sem vissi, að á sinni tíð
hafði frændinn Harvey flutt l.il
Bandaríkjanna frá Skotlandi,
sendi því Ijósmyndina til Skot-
lands, þar var myndin birt í
nokkrum dagblöðum. Einn eftir
tektarsamur blaðalesandi bar
kennsl á konuna sem á mvnd-
inni var, en sú góða kona var
reyndar löngu dauð, en það var
einmitt dóttir hennar sem nú
býr í Essex.
„Ég vissi, að frænda mínum
gamla þótti mjög vænt um móð
ur mína, og að hann varð fyrir
miklum vonbrigðum með hana,
þögar hún giftist pabba . .
en mig dreymdi aldrei um, að
ég kynni nokkura tíma að verða
svona rík“, sagði hinn nýbakaði
milljónamæringur.
Ungfrúin á myndinni vinnur klippir til og lagfærir filmur.
við kvikmyndir, en það sorg- Einhvern daginn, þegar starfs
lega er að kvi'kmyndahúsagestir bræður hennar áttu fría stuna,
fá sennilega aldrei tækifæri til litu þeir í kringum sig í studló-
þess að sjá hana á hvíta tjald- inu, og sáu allt í einu, að þeir
inu, því stúlkan, sem nefnist höfðu löngum leitað langt yfir
Liz Moore og er tuttugu og skammt í leit siiv’ " rnim
þriggja ára gömul, vinnur við stúlkum til kvik
tæknilega gerð kvikmynda, hún
Smíði fiskiskipa innan
lands.
Tómas Árnason, Bjarni Guð-
björnsson og Ólafur Jóhannes-
son flytja í efri deild frumvarp
um smíði fiskiskipa innan lands
með það fyrir augum að selja
einstaklingum, félögum og bæj-
arfélögum til útgerðar.
f greinargerð fyrir frumvarp
inu segja flutningsmenn:
„Frumvarp það, sem hér er
flutt, hefur þann megintiígang
að efla skipasmíði landsmanna,
svo og iðnaðinn almennt. Enn
fremur að skapa verkefni fyrir
þær skipasmíðastöðvar, sem
geta smíðað stálfiskiskip.
Að undanfömu hefur átt sér
stað nokkur uppbygging nýrra
skipasmíðastöðva og endurbæt-
ur eldri stöðva, svo að unnt
væri að smíða þar stálskip.
Þessa starfsemi þarf að efla
á alla lund.
Meginhluti þeirra fiskiskipa,
sem bætzt hafa í skipastól lands
ins á síðustu árum, hefur verið
byggður erlendis, enda þótt unnt
hefði verið að smíða sambæri
leg skip innanlands. Innlendar
stöðvar hafa því oft á tíðum
verið., verkefnalitlar. Úr þessu
þarf að bæta með skipulegum
aðgerðum, sem ríkisvaldið hafi
forustu um.
Lán til skipa, sem smíðuð
eru innanlands, nema allt að
75% af kostnaðar- eða mats-
verði. Við umræðu um þessi
mál á Alþingi í fyrra, var því
lýst yfir af hálfu ríkisstjórnar
innar, að ætlunin væri, að lánin
yrðu hækkuð upp í 85% af
kostnaðarverði, a. m. k. um sinn
Ríkisstjórnin mun í samræmi
við þetta hafa heitið þeim, sem
eiga fiskiskip í smíðum innan-
lands, viðbótarláni allt að 10%.
Ekki er flm. kunnugt um með
hverjum hætti.
Frumvarp þetta gerir ráð fyr
ir, að ríkisstjórnin hafi for-
göngu um skipabyggingar hjá
innlendum stöðum. Samkvæmt
gildandi reglum um nýsmíði
má ekki hefja byggingu skips,
nema samið sé um það fyrir
fram við ákveðinn kauþanda og
Fiskveiðasjóður íslands hafi
samþykkt smíðasamninginn.
Eins og nú er ástatt í efna-
hagsmálum þjóðarinnar og ó-
vissa um rekstrargrundvöll sjáv
arútvegsins, er þess tæpast að
vænta, að margir treysti sér til
að gera samninga um smíði
nýrra fiskiskipa, nema til
kæmi forusta af hálfu ríkisvalds
ins. Hins vegar er árleg endur
nýjunarþörf fiskiskipa allmikil.
Auk þess kemur svo til eðlileg
og nauðsynleg aukning fiski-
skipastólsins, ekki sízt með hlið
sjón af hráefnisskorti fisk-
vinnslustöðvanna víðs vegar um
landið.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
nýsmíði' fiskiskipa samtals allt
að 10 000 rúmlestum á 4 ár-
um. Ráð er fyrir gert, að í
framkvæmdinni yrði þetta þann
ig, að árið 1969 yrðu smíðuð
fiskiskip alit að 2000 rúmlestum.
Árið 1970 yrði rúmlestatalan
allt að 2300, árið 1971 allt að
2700 og 1972 allt að 3000 rúm
lestum. Gert er ráð fyrir mis-
munandi stærðum skipa, en
þó verði lögð áherzla á smíði
systurskipa (seríusmíði)-
Með frumvarpinu er lagt til,
að breytt verði um stefnu. í
stað þess að kaupa meginhluta
fiskiskipanna frá erlendum
skipasmíðastöðvum, verði skipin
Framhald á bls. I*