Tíminn - 15.11.1968, Side 13

Tíminn - 15.11.1968, Side 13
FðSTUBA'GUR 15. nóvember 1968. TIMINN 13 „Biðin eftir gullúr- inu lengist við þetta“ — segir Orn Hallsteinsson, sem getur ekki leikiS um helgina. Þa3 fór heldur illa fyrir Erni Hallsteinssyni á Iandsliðsæfing- unni, sem fram fór á þriðjudaginn. f æfingaleiknum á móti Val lenti hann í árekstri við einn Valsmann- inn með þeim afleiðingum, að hægri höndin bólgnaði upp og er Örn ófær um að leika með lands- liðinu um helgina. Tilkynnti Örn landsliðsnefnd um þetta í fyrra- kvöld eftir að hafa leitað til lækn is, sem ráðlagði honum að taka algera hvíld frá handknattleik í bráð. Við hittum Örn að máli og þótti honum að vonum súrt í broti að missa af landsleikjunum, „alveg sérstaklega", sagði Örn brosandi, I I 111 ^ ec s>,' W * r - ' ' 'V' ^ ' "x 9 Jón Karlsson Örn Hallsteinsson Reyni að fylla skarð Arnar“ . j**' jff' . W. •p .j- h v ) : — segir Jón Karlsson, nýliði. Þegar kom í Ijós, að Öm Hall- steinsson var slasaður og ófær um að taka þátt í landsleikjunum við Vestur-Þjóðverja um helgina, var landsliðsnefnd ekki lengi að velja annan í staðinn. Fyrir valinu varð Jón Karlsson úr Val, 19 ára gamall menntaskólanemi. Með því eru ný liðarnir í landsliðinu orðnir tveir. Jón tilheyrir „ungu ljónunum" í Val, sem lyfta merki Vals í hand knattleiknum hátt um þessar mund ir. Jón er einnig knattspyrnumaður og á þeim vettvangi keppir hann fyrir Víking og hefur vakið á sér athygli fyrir að vera ákveðinn og harðskeyttur miðherji. Lék Jón með meistaraflokksliði Víkings, er lék til úrslita í bikarkeppninni á síðasta ári. — Hvað er langt síðan þú byrj- aðir að leika handknattleik, Jón? — Það eru ein 10 ár síðan. Ég byrjaði með ÍR, en eftir eitt ár gekk ég yfir í Val og hef æft með því félagi og leikið síðan, fyrst í 4. flokki, en tvö síðustu árin hef ég leikið með meistaraflokki. — Þú ert valinn í liðið á elleftu stundu. Varstu hissa? — Að sjálfsögðu var maður bú- inn að gefa upp alla von um að komast í landsliðið, því að lands- liðsnefnd var búinn að tilkynna lið, þar sem ég var ekki á meðal. Raunar bjóst ég aidrei við að vera valinn, en finnst spennandi að vera kominn í hópinn. Ég geri mér grein fyrir því, hvaða ábyrgð hvíl- ir á mér og mun gera mitt bezta til að fylla skarð Arnar, þó að það verði erfitt. — Nokkuð kvíðinn? — Já og nei. Ég er meira spennt ur. Ég hef leikið með mörgum strákanna áður. Ólafur Jónsson, Jón Magnússon, Einar Magnússon, Sigurbergur Sigsteinsson og Björg vin Björgvinsson — ég hef leikið með þeim öllum í unglingalands- liði, en með unglingalandsliðinu lék ég í fyrra og hitteðfyrra. Við þökkum Jóni, sem er mjög viðfelldin og prúður piltur, fyrir viðtalið og óskuðum honum góðs gengis í þeim erfiða leik, sem framundan er. — alf. „vegna þess, að biðin eftir að fá gullúrið lengist við þetta“, en Örn hefur nú 22 landsleiki að baki, en til að hljóta gullúr HSÍ þarf 25 landsleiki. Einn leikmaður nær þessu marki á laugardaginn, en það er félagi Arnar úr FH, Hjalti Einarsson, hinn gamalkunni mark vörður, sem leikið hefur 24 lands leiki til þessa. — Tóku meiðslin frá Akureyrar leiknum sig upp, Örn? — Nei, þá bólgnaði einn fingur- inn upp, en nú er það öll höndin. Það er leiðinlegt að lenda í svona með stuttu millibili, en meiðsla- hættan er alltaf fyrir hendi í íþrótt um og maður verður að taka því, sem að höndum ber. — Er með öllu útilokað, að þú getir tekið þátt í leikjunum? — Það er betra að standa fyrir utan en leika hálfmeiddur. Slasað- ur maður gerir ekki sama gagn og fullfrískur leikmaður, það er löngu viðurkennd staðreynd. Ég vil nota tækifærið og hvetja strákana til að standa sig vel í leikjunum sem framundan eru. Vestur-Þjóðverjar eru sterkir, en með samhcldni ætt um við að geta staðið í þeim og jafnvel unnið, ef allt gengur að óskum. Þetta sagði Örn Hallsteinsson, sem nú verður að láta sér lynda að standa utan vallar og fylgjast með leikjunum í stað þess að vera þátttakandi sjálfur. Við þökkum Erni fyrir viðtalið og óskum hon um góðs bata. — alf. Forsalan í gangi Forsala aðgöngumiða að lands leikjum íslands og Vestur-Þýzka lands stendur nú yfir í bóka- verzlunum Lárusar Blöndal í Vesturveri og við Skólavörðu stíg. Verð aðgöngumiða er kr. 150 fyrir fullorðna og kr. 50 fyrir börn. Er fólki ráðlagt að tryggja sér miða í tíma, því að mikill áhugi er fyrir leikn um. Oli B. Jónsson er fimmtugur í dag Hann Óli B. verður fimmt ugur á föstudaginn. Það var kunningi minn, sem laumaði þessari frétt að mér, en ég sagðist ekki trúa honum. En við nánari eftirgrennslan kom í ljós, að hann hefur á réttu að standa. Óli B. Jónsson, hinn síungi knattspyrnuþjálfari, er fimmtugur í dag, þó að hann beri það ekki með sér. Svona líður tíminn áfram. Það væri hægt að rita langt mál um hinn merkilega þjálf araferil Óla B, sem hófst, er hann hætti sjálfur að leika knattspyrnu með KR, en það verður ekki gert hér. Enginn maður hefur oftar leitt lið fram til sigurs í hinni erfiðu 1. deildar keppni í knattspyrnu en Óli B. Skiptir þá ekki máli, hvort hann starfar fyrir KR, Val eða Keflavík. Hvar sem hann er og hvar sem hann fer, 'skilur hann eftir heillaspor. Undanfarin ár hefur Óli ver ið þjálfari Vals og á meðan hef ur liðið unnið öll verðlaun, sem hægt er að vinna í ísl. knatt spyrnu, auk þess, sem liðið hefur staðið sig vel í Evrópu bikarkeppninni. En nú skilja leiðir Óla og Vals, því að hann hefur ákveðið að taka við þjálf un síns gamla félags, KR. Óli B. er staddur erlendis á fimmtugsafmælinu, en hann dvelur nú á Miami á Flórída í Bandaríkjunum. Á þessum tíma mótum hugsa margir knatt- spyrnuáhugamenn með hlýhug til Óla B. og þakka honum fyr ir vel unnin störf í þágu ísl. knattspyrnu. — alf- Óli B. Jónsson. Island tekur þátt í frjáls- íþróttakeppni í Kaupmannahöfn „Heimsliö“ í knattspyrnu Þrír Englendingar, allt West Ham leikmenn, eru í „heimslið- inu“, sem Eric Batty valdi fyrir brezka knattspymutímaritið „World Soccer“. Eru það Bobby Moore, Geoff Hurst og Martin Peters. Annars lítur „heimslið“ „World Soceer“ þannig út: Markvörður: Dino Zoif (Napoli og ftalíu) Bakverðir: Fahrudin Jusufi (Eint. Frankfurt og Júgóslavíu) og Giacinto Facc- hetti (Inter og Ítalíu). Framverðir: Franz Beckenbauer (Bayern Mun- chen og V-Þýzkalandi), Jan Poplu- har (Slovan Bratislava og Tékkó- slóvakíu) og Bobby Moore( West Ham og Englandi). Frambald á bls. 14. Hinn árlegi fundur Frjálsíþrótta sambanda Norðurlanda var hald inn um s. I. lielgi 9. og 10. nóv. í Kaupmannahöfn. — Fulltrúar FRÍ voru Bjöm Vilmundarson, for maður FRÍ og Sigurður Björns son, formaður Laganefndar FRÍ. Fundur þessi var hinn 25. í röð inni og sátu hann fulltrúar frá öll um Norðurlöndum. Mörg mál voru til umræðu á fundinum og samið var um ýmiss íþróttaleg samskipti á næsta ári. Efnt verður til Landskeppni í Kaupmannahöfn milli fimm liða frá fjórum Norðurlöndunum þ. e. A og B lið Danmerkur, A og B lið íslands, B lið Noregs og BC- lið Svíþjóðar. Samið var um, að Danska Frjálsíþrótttasambandið greiddi verulegan hluta af ferða kostnaði íslenzka liðsins. í hverju lið verður einn keppandi í hverri íþróttagrein. Þá kom fram áhugi frá Norður-Noregi um landskeppni við fslendinga, jafnvel hér heima | þykktar voru á þingi IAAF í næsta sumar, og verður því máli Mexíco City nýlega. Sænsku full- haldið áfram bréflega í vetur, trúarnir gerðu grein fyrir breyt Allmörg Norðurlandamet voru ingu á Stadion í Stokkhólmi, en staðfest á þinginu og farið yfir þar verða úrslit í Bikarkeppni þær lagabreytingar, sem sam' Framhald á bls. 14 Þjóðverjar komu í gær - æfa ð Höllinni í dag Alf-Reykjavík. — Vestur- þýzka landsliðið í handknatt- leik var væntanlegt til lands- ins í gærkvöldi, en það er á morgun, laugardag, og sunnu- dag, sem landsleikir íslands og Vestur-Þýzkalands í handknatt lei'k fara fram í Lauigardals- hölinni. Allir sterkustu handknatt- leiksmenn Vestur-Þýzkalands koma hingað, en Vestur-Þjóð- verjar eru meðal sterkustu handknattleiksþjóða heims. I dag, föstudag, er ráðgert, að Þjóðverjarnir æfi í Laugardals- höllinni. Fer æfingin fram í hádeginu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.