Tíminn - 26.11.1968, Side 1
«11
258. tbl. — Þriðjudagur 26. nóv. 1968. — 52. árg.
°o
o°
O
Srnalco
Gerizt áskrifetndur að
Tímanum.
HringiS í síma 12323
31. þing Alþýðusambandsins sett í gær
Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ, setur 31. þingið í Súlnasal Hótel Sögu í gær.
(Tímamynd—GE)
Hannibal um viðhorf verkalýðshreyfingarinnar til viðræðna við stjórnina:
Gengur ekki til samninga
sem bandingi lögþvingana
EJ-Reykjavík, mánudag.
•jlr 31. þing Alþýðusambands ís-
lands hófst kl. 14,30 í dag í Súlna
sal Hótel Sögu, og voru 357 full-
trúar mættir til þingsins. Hannibal
Valdimarsson, forseti ASÍ, setti
þingið með ræðu, og ræddi mikið
um hörmulega þróun atvinnu- og
kjaramála frá því síðasta reglu-
legt ASÍ-þiijg var haldið fyrir
tveimur árum. Sagði hann, að
sjaldan eða aldrei hefði verið
svartar í álinn í atvinnu- og kjara
málum, þegar Alþýðusambands-
þing hafi komið saman, og væri
það eitt höfuðverkefni þingsins að
móta stefnu i þeim málum með
tilliti til viðræðna við ríkisvaldið
að þingi loknu. Sagðist hann þess
fullviss, að það yrði afstaða þings-
ins, að skilyrði fyrir því, að slíkar
viðræður færu fram, væri, að fyr-
ir lægju ótvíræðar og óyggjandi
tryggingar fyrir því, að engar lög-
þvinganir yrðu lagðar á verkalýðs-
hreyfinguna.
ir Hannibal lýsti því einnig yfir,
að hann teldi rétt, að kynslóða-
skipti ættu sér stað í forystu ASÍ,
og hefði hann sjálfur ákveðið að
Hannibal Valdimarsson
gefa ekki kost á sér sem forseti
næsta kjörtímabil.
★ Þingfundi var síðan frestað
klukkan hálf sex í dag, þar sem
fram höfðu komið eindregnar ósk-
ir um að kjöri þingforseta og ann-
arra starfsmanna þingsins, yrði
frestað til morguns. Verður kjör
þingforseta væntanlega fvrsta mál
á dagskrá er þingfundur hefst að
nýju eftir hádegið á þriðjudag.
Áður en þingið var sett, lék
Lúðrasveit verkalýðsins nokkur
lög, þar á meðal Internationalen.
Síðan hélt Hannibal Valdimarsson
þingsetningarræðu sína og setti
þingið í lok hennar.
í upphafi máls síns bauð Hanni-
bal þingfulltrúa og gesti vel-
komna. Síðan/ minntist hann látinna
félaga, og nefndi sérstaklega Jón
M. Bjarnason, skrifstofumann hjá
Alþýðusambandinu, sem lézt í
ágúst síðastliðnum, og Jónas Jóns-
son frá Hriflu, en þingfulltrúar
risu úr sætum.
Hannibal sagði höfuðverkefni
ASÍ-þingsins fjórþætt. í fyrsta
lagi atvinnumálin, en mikið lægi
við að þingið samþykkti strangar
kröfur um úrbætur til að koma
í veg fyrir atvinnuleysi. í öðru
lagi kjaramálin, sem alltaf væru
aðalverkefni ASÍ-þinga. í þriðja
lagi skipulagsmálin, sem væru
enn í deiglunni, og í fjórða lagi
það vandaverk, sem á hverju ASÍ
þingi — að kjósa samtökunum
nýja forystu.
Framhald á bls 14.
DANIR OFAR ISLEND-
SNGUM I AFLAMAGNI
FB-Reykjavík, mánudag.
Árið 1967 var metár í fisk-
veiðum heimsins, en það ár
nam aflamagnið 60.5 milljón-
um tonna. Er hér bæði um að
ræða ferskvatnsfiskveiðar og
veiðar úr sjó. Á íslandi nam
aflamagnið 896 þúsund lestum,
eða rúmlega 300 þúsund lestum
minna cn árið áður, en liins veg
ar fóru Danir nú í fyrsta sinn
yfir milljón tonna markið. þ. e.
úr 850 þúsund tonnum árið
1966 í 1.07 milljón tonn árið
1967. Þessar upplýsingar koma
fram í Árbók FAO um fisk-
veiðar-
Árið 1967 var metár 4 fisk-
veiðum, en aukningin nam 5.5%
miðað við árið á undan, en þá
var heildaraflinn í heiminum
57,3 millj. tonna, 7,2 tonn af
heildaraflanum er fiskur veidd
ur í ám og vötnum, m. a. lax
og áll. Heildaraflinn var napr
því helmingi meiri heldur en
árið 1957 en þá var hann 31.5
milljón tonn, og rúmlega þrisv j
ar sinnum meiri en aflinn árið )
1948, sem var 19-6 milljón tonn. i
Allar upplýsingarnar í Fiskveiði j
bókinni eru byggðar á upplýs j
ingum frá stjórnvöldum viðkom
andi landa.
Perú varð fyrsta þjóðin, sem j
Framhald á bls. 14
I
/
Frankinn heldur enn velli
NTB-Bonn og París, mánudag.
í fjármálaheiminum vörpuðu
menn öndinni léttara í dag er í
ljós kom að tilkynningarnar um
ráðstafanir Frakka og Breta í efna
hagsmálum virðast ætla að bera
árangur. Gjaldeyrismarkaðir í Evr
ópu voru víðast hvar opnir í dag
og viðskipti þar með eðlilegum
hætti. Staða puudsins, frankans og
dollarans batnaði verulega á gjald
eyrismarköðum en gengi vestur-
þýzka marksins lækkaði lítillega.
Eftir öllu að dæma virðast að-
gerðir Breta og Frakka vekja til
trú og talið er að jafnvægi muni
nú komast á alþjóða gengismál um
stundarsakir.
í dag komu til framkvæmda
hinar ströngu gjaldeyrishömlur
sem D'e Gaulle hafði boðað í
sjónvarpsræðu/sinni og miða að
því að rétta stöðu frankans. Á
Orly-flugvellinum við París mynd
uðust langar biðraðir ferðamanna
í dag vegna gjaldeyriseftirlitsins.
Raunverulega hefur verið girt fyr
ir frjálsa verzlun með franska
írankann. Þannig fá ferlimenn
aðeins gjaldeyri fyrir 500 fr.
franka eða 9 þús. ísl. krónur er
þeir fara úr landi og mega hafa
með sér 200 franka í mynt. Mjög
strangt eftirlit er haft með þvi að
þessu sé fylgt á flugvöllum. í
höfnum og við landamæri og
seinkaði áætlun fjölmargra flug
véla af bessuin sökum í dag
Vegna hins ótrygga ástands í
gengismálum neituðu nokkrir
bankar í París að afgreiða ferða
mannagjaldeyri í dag, en bú'-t
er við að gjaldeyrisviðskipti allra
banka í Frakklandi verði með
eðlilegum hætti á morgun.
Couve de Murville, forsætisráð-
herra gerir franska þjóðþinginu
grein fyrir efnnahagsráðstöfunum
stjórnarinnar á morgun.
Umræða um gjaldeyrismálin
hófst í neðri deild brezka þingsins
Framhald á bls. 14