Tíminn - 28.11.1968, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.11.1968, Blaðsíða 2
TIMINN 27. nóvcmlic Félögin segja upp samningum Félög eru nú að segja upp samningum, hvert á fætur öðru. Hafa Tímanum borizt nokkrar fréttatilkynningar þess efnis, og jafnframt hafa fylgt álitsgerðir, sem sam- bykktar hafa verið á fundum félaganna, þar sem borin eru fram harðorð mótmæli gegn þeirri kjaraskerðingu, sem nú er stefnt að launafólki í landinu með gengis- fellingu og öðrum stjórnarháttum ríkisstjórnarinnar. Tilkynningarnar frá félögun- um fara hér á eftir. Prentarar Á félagsfundi 24. nóvember 1968 var samiþyíkkt aS segja upp samningum frá 31. desem- ber 1968. Jafnframt var eftirfarandi • állyktun samþykikt samblj'óða: „Fundur í Hinu ísl. prent- arafélagi, haldinn í Iðnó, sunnu daginn 24. nóvembeir 1968, mót mælir eindregið þeirri stór- felldu árás á kjör launastétt- anna, sem fólgin er í nýafstað- inni gengisfellingu og boðuðu afnámi verðtryggingar á kaup. fFundurinn fordæmir síend- urtekin lagaboð stjórnvalda, sem nema úr gildi frjálsa kjara samninga og minnir á nauðsyn þess, að launastéttiirnar og samtök þeirra tryggi það í framtíðinni, að hagsmuna vinn andi fólks sé gætt í stjórnar- stofnunum landsins. Það er Skoðun fundarmanna, að kjarasamninigur sá, er gerð ur var á s.l. vetri og verkalýðs samtökin féllust á, hafi verið algert lágmark þess, sem launa fólk gat sætt sig við um stund arsakir. Kaupgjaldsþróun undanfar- inna ára hefur miðað að sí- minnkandi kaupmætti launa svo nú er þar komið, að ís- lenzkir bókagerðarmenn ná ekki hálfurn launum stéttar- bræðra sinna í nágrannalönd unum. Fundurinn vill minna á, að stórminnkandi atvinna prentara hefur leitt til þess, að launa- tekjur þeiirra nægja engan veg inn fyrir brýnustu þörfum og án þess nú að fá dýrtíðina, sean af gengisfellingunni stafar, bætta, með fullri vísitölu á kaup, er lífsaflkomu stéttarinn- ar stefnt í beinan voða. Fundurinn samþykkir því, að félagið neyti ýtrustu ráða til þess að hrinda þeirri árás, sem nú hefur verið gerð á lífsaf- komu launastéttanna og heitir á íslenzka prentara, að búa samtök sín undir baráttu fyrir því að endurhefja kaupmátt launanna svo að dagvinnutekj- ur nægi þeim til lifsfram- færis." Járniðnaðarmenn Á félagsfundi í Félagi járn- iðnaðarmanna sem haldinn var fimmtudaginn 21. n'óvember s.l. var samþykkt samhljóða, að segja upp gildandi kaup- og kjarasamningum félagsins við atvinnurekendur miðað við 31. desemfoer n.k. Jafnframt voru samþykktar samhljóða tvær eftirfarandi til lögur: „Fundur í Félagi járniðnað- armanna haldinn 21. nóvember 1968 mótmælir harðlega þeirri árás á kjör launafó-lks, sem x felst í nýafstaðinni gengislækk un og fyrirhuguðu afnámi vísi- tölutrygginar kaups, úr samn- ingum verkalýðsfélaga. Fundurinn lýsir áhyggjum sínum yfir horfum í atvinnu- málum og lýsir ábyrgð á hend ur ríkisstjórnar og Alþingis, vegna aðgerðarleysis um úrbæt ur, þrátt fyrir aðvaranir og á- bendingar verka'lýðsfólaga. Það er álit fundarins, að verkalýðssamtöikin verði að knýja fram samfelldar vísitölu bætur á laun og að krefjast beri aðgerða stjórnvalda er tryggi öllum vinnufærum mönnum atvinnu." „Fundur í Félagi járniðnað- armanna haldinn 21. nóvember 1968 samfþykkir að skora ein- dregið á Alþingi að samþykkja framkomið frumvarp um smíði fiskiskipa innanlands. Fundurinn telur að með sam þykikt frumvarpsins stuðli Al- þingi að atvinnuöryggi, gjald- eyrissparnaði og aukningu út- flutningsframleiðslu.“ Trésmiðir Félagsfundur í Trésmiðafé- lagi Reykjavíkur, haldinn 21. nóvember 1968, mótmælir harð lega þeirri stórfelldu árás rík- isvaldsins á lífsikjör launafólks, sem felst í nýgerðri gengisfell- ingu og ákvörðun rikisstjórnar innar um afnám frjálsra samn- inga verkalýðsfélaganna um verðtryggingu launa. Fundurinn minnir á, að við upphaf „viðreisnar" var launa- fólk svipt samningsbundnum rétti til verðlagsbóta á laun. Með júnísamkomulaginu 1964 var gert samikomulag við ríkis- valdið um, að lögbinda verð- lagsbætur á laun að nýju, en þó skertar frá því, sem áður hafði verið. Seinni hluta árs 1967 féllst verkalýðshrej'fingin á að taka upp nýjan vísitölugrundvöll, þó að það leiddi þá af sér nokkra kjaraskerðingu. Þrátt fyrir að faillizt væri á beina kjaraskerðingu, var fyrsta ver'k ríkisstjórnarinnar að láta sam- þykikja lög um afnám allra verðlagsuppbóta á laun og svipta þar með burtu grund- velli allra kaup- og kjarasamn- inga verklýðsfélaganna og stofna til stórfellds ófriðar á vinnumarkaðinum. Þeim átökum lauk, eins og kunnugt er, með því að verka- lýðshreyfingin féllst á enn frek ari skerðingu verðlagsuppbóta á laun. Þannig hefur verkalýðshreyf ingin allt viðreisnartímabilið þurft að standa í sífelldum á- tökum gegn ramgri stjórnar- stefnu fjandsamlegrar ríkis- stjórnar, sem jafnharðan riftir öllu samkomulagi, sem við hana er gert. Enn á ný er það yfirlýst á- kvörðun ríkisstjórnarinnar að halda til streitu. þeirri stjórnar stefnuð sem hefur kjaraskerð- ingu að leiðarljósi. Þessu mótmælir funduripn harðlega og krefst réttar launa fólks til fullra verðlagsuppbóta á laun og nýrrar stefnu í efna hags- og atvinnumálum þjóðar- innar, sem tryggi fulla atvinnu og kj arabætur til vinnandi fólks í landinu. Bifvélavirkjar Á fundi Félags bifvólavirkja, sem haldinn var 21. nóvember 1968, var samþykkt, að segja upp öllum samningum félagsins við atvinnurekendur og falla samningarnir úr gildi 1. jan. 1969. Þá var e-ftirfarandi samþykkt gerð einróma: „Fundur í Félagi bifvéla- virkja, haldinn 21. nóvember 1968, mótmælir harðlega ný- samþykktri gengislæk'kun og efnahagsráðstöfunum er skerða verulega afkomu allra laun- þega og telur að launafólk geti eikki bótalaust risið undiir þeim byrðum, sem á það eru lagðar með ráðstöfunum þessum. Einnig mótmælir fundurinn eindregið að felld verði niður með valdboði vísitölutrygging á kaup, sem samið var um af verkalýðsfélögunum og atvinnu rekendum." Norðfirðingar Verkaiýðsfélag Norðfirðinga samþykkti á fundi sínum þann 20. nóvember s.l. eftirfarandi á'lyktun: „Fundur haldinn í Verkalýðs félagi Norðfirðinga þann 20. nóv. 1968, mótmælir harðlega þeirri ósvífnu árás er ríkisvald ið hefur nú enn einu sinni haf ið á kjör alils launafólks með síðustu gengisfellingu. Fundurinn telur að með þess um ráðstöfunum sé ekkert bætt úr efnahagsörðugleikum þjóðarinnar, heldur sé ein- ungis ve.rið að færa gjaldþrot rangrar stefnu í atvinnu- og gjaldeyrismálum yfir á bök vinnandi stétta. Nægir þar að benda á síðustu gengisfellingu er framkvæmd var. Innflutningsverzlunin og aðr- ar greinar þjónustu, sem rakað hafa saman fé á undanförnum árum fá engar álögur, heldur aukinn gróða í krónutölu. Þá krefst fundurinn þess, að ríkisstjórnin geri nú þegar ráð- stafanir til að tryggja fulla at- vinnu alls verkafólks í fram- tíðinni með þvi að hefja skipu lega uppbyggingu 1 fullikomins fiskiðriaðar í landinu, rneð upp byggingu ýmiss konar létts iðn aðar og stefnt verði að þvi að íslendingar geti sjálfir viðhald ið fiskiskipaflota sínum. Fundurinn skorar á allt verkafólk að standa fast sam- an og einhuga um að þola ekki síendurteknar árásir ráðþrota stjórnarvalda á launakjör sín. Lágmarkskrafa verkafólks er að kaupmáttur launa ve/i færður í það horf, er hann var 1. des. 1967 og full atvinna haldist." Þá samþykkti fundurinn einnig að segja upp öllum gild andi kjarasamningum félagsins og vinnuveitenda frá og með 31. des. n.k. A. S. B. Á fundi A.S.B. — félags af- greiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðum, 29. nóv., var samþykkt að segja upp samn- • ingum félagsins við Bakara- meistarafélag Reykjavíikur. Mjólkursamsöluna og Alþýðu- brauðgerðina og falla sgmning- arnir úr gildi 1. janúar 1969. Á fundinum var eftirfarandi samþykkt gerð með samhljóð3 atkvæðum: „Fundur í A.S.B. — haldinn 19. nóvember 1968, mótmælir harðlega gemgisfellingu og öðr- um efnahagsráðstöfunum rikis- stjórnarinnar, svo sem boðuðu afnámi verðtryggingar kaup- gjalds, sem hljóta að leiða til stórfelldra lífskjaraskerðingar. Telur fundurinn að nú þegar séu laun verkafólks svo skert — með vaxandi dýrtíð — samfara minnkandi atvinnu, að láglaunafólk geti ekki tekið á sig þyngri byrðar en orðið er Fundurinn heitir á verkalýðs samtökin, að fylkja sér fast saman gegn þessari áirás á líf.s- kjör alþýðunnar í landinu." Fram Almennur fundur haldinn í Verkamannafélaginu Fram, Sauðárkróki, þann 22. nóv. 1968, samþykikir eftirfarandi: „Vegna nýafstaðinna aðgerða ríkisstjórnarinnar og Alþingis í efnahagsmálum telur fundur- inn að verkafólk almennt og þó sérstaklega þeir sem taka laun samkvæmt lægri taxta- flokkum stéttarfélaganna, hafi þegar orðið fyrir það mikilli tekjuskerðingu af völdum sam dráttar í atvinnulífinu og af álagningu 20% innflutnings- gjaldsins, að ekki hafi verið á þá skerðingu bætándi. Einnig telur fundurinn á- stæðu til að ætla, að ekki hafi verið athugað nægilega raun- hæft aðrar færar leiðir til lausnar vand'amálum efnahags- lífsins. Því mótmælir fundurinn harðlega þessum aðgerðum og skorar á samtök launþega að hefja baráttu fyrir áframhald- andi verðtryggingu launa. Tel- ur fundurinn fyrsta skrefið í þeirri baráttu vera, að segja upp núgildandi kaup- og kjara- samningum og samþykkir að gera það frá og með 1. des- ember n.k.“ Bftirfarandi tillaga var sam- þykkt: „Almennur fundur haldinn í Verkamannafélaginu Fram, þ. 22. 11. 1968, samþykkir að beina þeirri áskorun til ríkis- stjórnarinnar að veita nú þegar ríflega fjárupphæð til Atvinnu málanefndar Norðurlands og fela henni að starfa á svipuð- um grundvelli og hún hr/ir gert undanfarin ár.“ Einnig var samþykkt áskor un til bæjarstjórnar og hrað- frystihúsanna, að láta einskis ófreistað ti'l útvegunar hráefn- is og að knýja á ríkisvaldið tii fjárframlaga til atvinnuaukn- ingair. £ HREINSUM hp rúskinnsjakka rúskinnskápur sérstök mcðhöntílun EFNALAUGIN BJÖRG Háaleilísbraul 58-60. Simi 31380 Barmahllð 6. Sfmí 23337 VELJUM (SLENZKT(H)iSLENZKAN JÐNAÐ Til íþrótta og útivistar má treysta Heklu sportfatnaðinum og hlífðarfötunum. Þá gegna Iðunnar skíða-, skauta- og knattspyrnuskórnir mikilvægu hlutverki í heilsurækt þjóðar- innar að ógleymdum Gefjunar svefnpokum og ullarteppum til ferðalaga. ÖRUGG TRYGGING VERÐS OG GÆÐA. . STERKUR iLENZKU ÍXMVINN ÐNAÐUF : IÐNAÐARDEILD SÍS í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.