Tíminn - 28.11.1968, Page 8
8
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 28. nóvember 1968.
Fjölbreytt skemmtun
tii fjáröflunar fyrir
Hjálparsjóð æskufólks
af honum 1942. Hljómsveit Björns
Ólafssonar er skipuð eldri nem-
endum en hljómsveit Ingvars
Jónassonar. Hefur komið fram á
óta'l tónleikum á vegum skólans
og í sjónvarpi og útvarpi.
Ingvar Jónasson, fiðluleikari,
stjórnar 20 manna hljómsveit,
unglingum á aldrinum 10—18 ára.
Hljómsveitin hefur oft komið
fram á nemendatónleikum.
Tónleikarnir eru haldnir til
ágóða fyrir Hjálparsjóð æsku-
fólks. í stjórn sjóðsins eru: séra
Ingólfur Ástmarsson, Gunnar Guð
mundsson, skólastjóri, og Magnús
Sigurðsson, skólastjór.
Islenzk
tónlist
erlendis
Svíta um íslenzk þjóðlög
fyrir strokhljómsveit eftir
Hallgrím Helgason, leikin af
útvarpskammerhlj ómsveit-
inni í Leipzig undir stjórn
Dietrich Knotfhe var ásarnt
verkum eftir Werner Egk
Iflutt í útvarpinu í Berlín 21.
janúar síðasliðinn. Flutning-
urinn var endurtekin 16. ág-
úst. Þetta sama íslenzka verk
flut'ti útvarpsstöðin aftur
13. október ásamt serenötu
op. 44 eftir Antonin Dvorák.
Þá var sónata fyrir fiðlu
og píanó eftir Hallgrím flutt
í útvarpinu í Köln 14. maí í
W fyrsta prógrammi. Hún var
leikin af mjög vel þekktum
tónlistarmönnum, Werner og
Wilhelm Neuhaus.
Kathe Remann, sem er
dósent við háskólann fyrir
kirkjumúsík í Regensburg,
lék Rondo Islanda fyrir
píanó eftir Hallgrím í útvarp
inu í Munchen 27. júlí.
14. október hélt prócfess
or Oscar Haugland fyrirlest
ur um tónlist Norðurlanda
við háskólann Northern Illi
nois í Bandaríkjunum. Hon
um til aðstoðar var söngkon
an Alice Berning, sem söng
lög eftir Martti Turunen,
Paul von Klenau og Hall-
grím Helgason. Prófessor
Haugland lætur svo um
mælt, að lag Hallgrims
„Máríuvísa" sé „fögur túlk
un á texta í miðaldastíl.“
Ljóðið er eftir Jón Helga-
son.
í 15. árgangi, 3. hefti vís
indatimarits Humboldt há-
skólans í Berlín birtir dr.
Hallgrímur Helgason rit-
gerð um íslenzkan tvísöng,
“Das Organum-Singen auf
Island.“ Ritgerðinnj fylgir
nótuprentað dæmi, íslenzka
tvísöpgslagið „Mína þá
mund ‘ég þenja vængi út.“
Á efstu myndinni sést Björn
Ólafsson, konsertmeistari, stjórna
hljómsveit, en Ingvar Jónasson á
þeirri næstu. Á næstu myndum
getur að líta nokkra hinna ungu
hljómlistarmanna.
Laugardaginn 30. nóvem-
ber, kl. 3 e.h., verður skemmt
un í Háskólabíó til að afla
fjár handa Hjálparsjóði æsku
fólks. Á skemmtuninni syng-
ur Nemendakór Kennaraskól
ans undir stjórn Jóns Ásgeirs
sonar og Hljómsveitir Tónlist
arskólans leika undir stjórn
Björns Ólafssonar, konsert-
meistara, og Ingvars Jónas-
sonar, fiðluleikara. í hljóm-
sveit Björns Ólafssonar eru
um 30 nemendur, og hefur
sveitin starfað síðan 1942. í
sveit Ingvars eru nokkru
færri eða um 20 nemendur,
og í Nemendakór Kennara-
skólans eru um 120 söng-
menn. Allt hefur þetta unga
listafólk komið fram opinber-
lega áður, sumt mörgum sinn
um, einnig í útvarpi og sjón-
varpi. i<-b
Það mun teljast til tíðinda, að
kostur gefst á að hlýða á svo
marga eða um 170 upprennandi
listamenn á einni samkomu, og
er stjórn Hjálparsjóðs æskufólks
afair þakklát öllum þeim, sem
hér eiga hlut að máli, en þar ber
að geta skólastjóranna dr. Brodda
Jóhannessonar og Jóns Nordals,
auk þeirra, sem áður eru nefnd-
ir. Þess gerist naumast þörf að
kynna starfsemi Hjálparsjóðs
æskufólks, en þess má geta, að í
vetuir kostar eða styrkir sjóður-
inn 24 nemendur, ýmist á skól-
um eða á öðrum góðum dvalar-
stöðum, og kostar þetta allt að
sjálfsögðu mikið fé.
Þess er fastlega vænzt, að marg
ir vilji nota þetta einstæða tæki-
færi til þess hvort tveggja í senn
að hlýða á upprennandi lista-
menn þjóðarinnar og styi-kja bág
stödd börn og ungmenni með
fjárhæð, sem svarar til andviirðis
eins máísverðar.
Sala aðgöngumiða hefst fimmtu
daginn 28. nóvember kl. 4 í Há-
skólabíói.
Nemendakór Kennaraskólans
hefur verið æfður í 4 ár. Mark-
mið hans er a_ð vera uppeldis-
stofnun í söng. í kórnum eru um
120 manns. Kórinn syngu- 6 jóla-
lög frá ýmsum löndum öll með
íslenzkum textum.
Jón Ásgeirsson hefur stjórnað
kórnum frá upphafi. Kórinn hef-
ur haldið eina tónleika og komið
fram bæði _í sjónvarpi og útvarpi.
Björn Ólafsson, konsertmeist-
ari, stjórnar 25—30 manna hljóm
sveit, sem heitir „Hljómsveit Tón
listarskólans". Hún var stofnuð
/