Tíminn - 14.12.1968, Blaðsíða 4
\
/
Akureyrardagskráin, sem var
á laugardaginn, í tilefni þess, að
Akureyringar eru nú komnir í
tölu sjúnvarpsáhorfenda, var ágæt.
Kvikmyndin, Akureyri í septembeT
sól, sýndi okkur helztu einkenni
Akureyrarbæjar og þáttur hljóm
sveitar Ingimars Eydals var reglu
lega skemmtilegur. Trúlega hafa
Akureyringar fylgzt vel með dag
skránni þetta kvöld. Kvikmyndin
Ævintýri í eyðimörkinni, sem var
á dagskrá þetta kvöld, var ein sú
allélegasta, sem hefur verið í
sjónvarpinu hingað til: efnið al-
gjör eyðimörk og sömuleiðis leik
urinn.
Það bætti aðeins úr að fá hina_
fallegu mynd, Austurríki 1 dúr
og moll á eftir. Mér fannst hún
samt of seint á dagskránni.
í Stundinni okkar á sunnudag
inn var Akureyri enn á dagskrá og
ekki er að efa, að börnunum hef
ur þótt gaman að galdraleiknum
hjá henni Rannveigu Það er
skemmtilegt að hafa öðru hverju
barnaguðsþjónustu í Stundinni
okkar eins og var frá Akureyri.
Ég man ekki eftir að hafa séð í
Stundinni okkar barnaguðsþjón-
ustu frá Reykjavík, aftur man ég
eftir að barnaguðsþjónustan frá
Akureyri var um síðustu jól,
enda virðist mikil helgi yfir þeim
og börnin njóta þeirra vel.
Um kvöldið söng svo hin ágæta
söngkoma Birgit Nilsson, og flutt
ur var þriðji þáttur Afglapans, en
það er áhrifamikið leikrit.
Á mánudaginn var þáttur, sem
kallaðist í bókaflóðinu og hafa
vafalaust margir hlakkað til hans.
Hann olli þó algjörum vonbrigð
um. Það var furðulegt, hve hinn
þaulvani sjónvarpsmaður og spyrj
andi virtist klaufalegur, sérstak-
lega í fyrsta viðtalinu, sem hann
átti í bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar.
Þykir mér líklegt, að margir
bókaútgefendur hafi orðið gram
ir, svo ekki sé meira sagt, er eipr
stakar bæk-ur voru þarna dregnaf
fram og sýndar lengi og vel, seiú
þær bækur, er afgreiðslukonail
mælti með handa ungum stúlkum
og piltum.
Þetta virðist ófyrirgefanlegt í
hlutlausum þætti' Burtséð frá
því, sýnir þetta viðtal við konung
hjá Eymundsson lika, hversu mik
ið vald afgreiðslufólkið hefur, en
veldur það því valdi? Fjölmargir
spyrja, eins og Markús Örn, um
góða bók fyrir unga stúlku, pilt
o. s. frv Þá virðist dregin f-ram
ein bók og mælt með henni. Hefur
afgreiðslufólkið lesið allar bæk
urnar? Nei, það kom fram í við
talinu, enda lítill möguleiki til
þess, að það hafi tíma til að lesa
rnörg hundruð jólabækur.
Viðskiptavinirnir eiga rétt á því
að þeim séu sýndar þær bækur,
sem um er að ræða til að velja
úr, en margir eru svo ósjálfstæðir
í öllum jólaasanum að þeir kaup-a
Við birtum hér mynd af systrunum sjö, sem komu fram ( siónvarpsþætti Jóns Múla fyrir nokkru siðan, en þær eru vænt-
anlega-r i sjálfstæðum þætti á mánudagskvöldið og syngja þá meðal ann-ars lög eftir Foster og Jón Sigurðsson. Munu
marg-lr bíða með eftirvæntlngu eftlr að fá að sjá og heyra ( þelm: Hjördísl, Þórdlsl, Fjó-lu, Þórhöiiu, Sigríðl, Guðrúnu og
Kristinu Ka-risdætrum.
/