Tíminn - 24.12.1968, Page 1
I
Jólin, þessa mestu hátíð kristinna manna,
vilja sumir nefna mestu verzlunarhátíð ársins.
Aðrir tala um jólin, sem hátíð barnanna ein-
göngu og líta á þau sem kærkomið tilefni til að
taka sér frí frá störfum í nokkra daga. Kirkju-
göngur, jólaguðspjall, kertaljós, jólaskraut, allt
þetta er vitað af gömlum vana hjá fjölda mörg-
um mönnum.
Boðskapinn, sem jólin flytja, eru margir
löngu hættir að heyra, eða skilja á annan hátt,
en áem gamalt og fallegt ævintýri. Það er sjálf-
sagt að börnin fái að heyra þennan boðskap, en
fyrir hinn fullorðna mann, er þetta aðeins gömul
helgisaga. Þannig hugsar og talar fjöldi full-
orðinna manna, fyrir jól. Eftir jól hneykslast
þessir sömu menn á framferði unglinganna um
hátíðisdagana ,en gleyma því, að fyrirmyndina
fékk hin unga kynslóð í orðum og athöfnum
hinna eldri. Margt slæmt fordæmi hefur full-
orðna fólkið gefið hinum yngri, en það hygg ég
verst, þegar unnið er að því beint og óbeint, að
uppræta trú ungra manna og kvenna á Jesúm
Krist, og þann boðskap, sem hann flutti, boð-
skap um frið og frelsi fyrir alla menn, kærleika
og réttlæti, öllum til handa. Margur æskumaður-
inn í dag, fer á mis við það trúarlega uppeldi
sem foreldrar, ömmur og afar veittu áður fyrr,
með því að kenna börnunum bænir og vers, og
i gefa sér tíma til að tala við þau um Jesúbarnið,
sem fæddist á jólunum. Og það hefur ekkert
komið í staðinn fyrir kristna trú, sem haft getur
jákvæð og mótandi áhrif á hvern einstakling, og
það tæki er ekki enn upp fundið, sem leiðbeint
getur hverjum einum sem trúir, jafnörugglega
og boðskapur meistarans frá Nazaret. Það tóm
sem skapast, þegar trúna vantar, verður ekki
fyllt upp með gjöfum, hversu stórar og fagrar
sem þær kunna að vera. Að halda jól án þess að
veita boðskap þeirra viðtöku, er fals við sjálfan
sig, svik við Krist. Að veita fagnaðarboðskap
jólanna viðtöku og trúa á þann, sem á jólunum
fæddist, hefur ekki aðeins gleðileg jól í för með
sér, heldur einnig farsælt og hamingjuríkt líf.
Það skyldum vér hafa í huga á þessum jólum.
Gleðileg jól. Séna Hjartarson, Ólafsvík.
\