Tíminn - 03.01.1969, Blaðsíða 12
12
TIMINN
Pressuleikur í handknattleik á morgun:
Landsliðsnefnd er áhuga
laus um varnarleikinn
Alf-Reykjavík. — Landsliðs-
nefndin í handknattleik virðist
láta sér vamarleik í léttu rúmi
Knattspyrnu
dómarar
þinga í Osló
Alf-Reykjavík. — Einar Hjart-
arson, formaður Dómaranefndar
KSÍ, mun sitja ráðstefnu knatt-
spyrnud'ómara, sem haldin verður
í Osló 25. og 26. janúar.
Mj'ög nauðsynlegt er, að dóm-
arar okkar fylgist með því, sem
gerist á alþjóðavettvangi, því að
breytingar eru örar. Miá geta þess
að FIFA (aiþjóðaknattspyrnusam-
bandið) hefur farið fram á það
við KSÍ, að gerðar verði hér á
landi tilraunir með nýjar rang-
stöðureglur og sendi skýrslu um
árangurinn. Er þá gert ráð fyrir,
að ekki sé dæmd rangstaða á leik
menn, ef knötturinn kemur úr
aukaspyrnu.
Á þjálfara-
liggja, a.m.k. verður það ekki séðÞórður Sigurðsson Haukum
í Danmörku
f dag héldu utan til Vejle í
Danmörku, 3 íslenzkir knattspyrnu
þjálfarar, og munu þeir verða
þátttakendur í árlegu vetrarnám-
skeiði knattspyrnuþjálfara frá öll-
um Norðurlöndunum.
36 þjálfarar verða samankomnir
á þessu námskeiði, og munu kenn
arar verða frá dönsku 1. deildar
liðunum, svo og þjálfari danska
landsliðsins, Ungverjinn Nikula.
Þeir sem fara héðan eru Gunn
ar Pétursson, Þrótti, Atli Helgason
KR og Örn Steinsen, sem þjálfar
mfl. Fram og Unglingalandsliðið.
á vali hennar á landsliðinu, sem
leika á gegn pressuliðinu á laugar-
daginn, að varnarleikur skipti
miklu máli. Þetta er því furðu-
legra, þegar það er haft í huga,
að höfuðverkur ísl. landsliðsins í
síðustu landsleikjum var einmitt
vamarleikurinn, sem var í þúsund
molum.
í leikjum ísl. landsliðsins að
undanförnu hefur það skeð hvað
eftir annað, að liðið hefur skorað
20 mörk eða fleiri, en fengið á sig
enn fleiri mörk. Það er öruggt
merki um lélega vörn.
Áður en við höddum lengra,
skulum við líta á liðið, sem lands-
liðsnefnd valdi, en það er þannig
Skipað:
Emil Karlsson KR
Birgir Finnbogason FH
Sigurður Einarsson Fram
Ingólfur Óskar'sson Fram
Örn Hallsteinsson FH
Geir Hallsteinsson FH
Auðunn Óskarsson FH
Einar Magnússon Víking
Jón Hjaltalín Víking
Óla'fur Jónsson Val
Bjarni Jónsson Val
Ágúst Svavarsson ÍR
Eins og af þessu sézt, eru
fáir varnarmenn í liðinu. Helzt
mætti nefna þá Sigurð Einarsson
og Auðunn Óskarsson og e.t.v.
Bjarna Jónson. Landsliðsnefnd
virðist því litið hafa lært af síð-
ustu landsleikjum, því miður.
Blaðamenn völdu lið sitt í fyrra
dag og lögðu mikla áherzlu á vörn
ina. Því miður getur Einar Sigurðs
son, FH, ekki leikið með liði
þeirra vegna veikinda og sömu
sögu er að segja um Ólaf Ólafs-
son, Haukum, en þeir báðir vora
valdir í upphafi. Lið blaðamanna
lítur þannig út:
Hjalti Einarsson FH
Pétur Jóakimsson Haukum
Sigurður Jóakimsson Haukum
Siigurbergur Sigsteinsson Fram
Sigurður Óskarsson KR
Stefán Jónsson Haukum
Sturla Haraldsson Haukum
Þórarinn Tyrfingsson ÍR
Þórarinn Ólafsson Víkingi
Gunnlaugur Hj'álmarsson Fram
Halldór Bragason Þrótti
Pressuleikurinn á morgun hefst
kl. 4 í Laugarda'lshöllinni. Verður
leikurinn án efa mjög spennandi,
eins og síðustu pressuleikir hafa
verið. Til gamans má geta þess,
að landsliðinu hefur ekki tekizt
að sigra pressuliðið lengi. Spurn-
ingin er, hvað skeður á morgun?
FÖSTUDAGUR 3. janúar 1969.
JÓN HJALTALÍN
— fer til Svíþjóðar.
Rangers vann
CeBtic í ný-
ársleiknum
Ekki var leikið í deildar-
keppninni ensku nú um áramót
in, en í Skotlandi fóru fram
tvær umferðir.
Mestur áhugi var á síðari
leik stóru liðanna Rangers og
Celtic, en hann fer ætíð fram
á nýársdag, og þó Skotar kalli
ekki allt ömmu sína þegar til
óláta á knattspyrnuvöllum kem
ur, hefur löngum verið beðið
eftir nýársleik þessara liða
með hræðslu og spenningi.
Leikurinn nú var þó ekki
eins slæmur og oft áður, en
þar tala Skotar um hegðun
áhorfenda en ekki getu leik-
manna, lítið var um fyllirí og
slagsmál sáust varla.
Leikurinn var góður og
skemmtilegur, en það voru
Rangers áhangendur sem gengu
ánægðir heim í þetta sinn, eftir
1—0 sigur sinna manna.
Jón Hjaltalín til Svíþjóðar
— leikur þar með sænska 2. deildar liðinu LUGI.
— klp — Reykjavík.
Hinn frábæri og skotharði leik
maður Víkings og landsliðsins í
handknattleik, Jón Hjaltalín, mun
síðar í þessum mánuði hverfa af
sviðsljósinu, sem handknattleiks-
maður með íslcnzkum liðum, og
halda til Sviþjóðar, þar sem hann
mun leggja stund á rafmagnsverk
fræði við háskólann í Lundi.
Sænska 2. deildarliðið LUGI,
sem er frá Lundi, hefur farið þess
á leit við Jón, að hann leiki með
þeim, og í staðinn nýtur hann
ýmissa hlunninda sem félagið hef
ur lofað honum, t.d. fær hann eitt
herbergi og eldhús til afnota, og
sparar hann sér þar mikið fé, því
húsaleiga er einn stærsti útgjalda
Iiður íslenzkra námsmanna erlend
is. Hann mun stunda námið í
Lundi í 3 ár, og missum við þar
góðan kraft frá íslenzka landslið-
inu en hann mun þó leika báða leik
ina við Tékka, og jafnvel ná að
leika landsleikina við Spánverja
hér síðar í mánuðinum.
'En það er ekki aðeins landslið
ið, sem missir mikið, Vikingur
sem nú leikur í 2. deild, mun
missa Jón utan, áður en leikimir
við þeirra hættulegasta mótherja
í deildinni, Þrótt, fer fram. Getur
það jafnvel kostað Víking tap í
! í 2. deild.
ísland er ekki taliö vera með-
al knattspyrnuþjóða Evrópu
Vestur-Þýzkaland átti „bezta landsliðið" árið 1968.
— klp—Reykjavík. lEvrópu, en það er föst regla hjá
Hið heimsfræga og víðlesna blaðinu að velja landslið ársins
knattspyrnublað France Football,! um hver áramót ,og er þá miðað
birti nú um áramótin lista yfir J við árangur liðsins á árinu.
30 beztu knattspyrnulandslið í' fslenzka landsliðið er ekki á
KRR vill leggja félag
knattspyrnudómara niður
Hugmyndin mætir andstöðu hjá knattspyrnudómurum.
KLP—Reykjavík. — Aðal-
fundur Knattspyrnuráðs Reykja
víkur var haldinn nýlega. Mörg
mál voru rædd á fundinum og
margar tillögur bomar fram,
m. a. ein frá stjórn ráðsins um
að leggja Knattspyrnudómara-
félag Reykjavíkur niður.
Knattspymudómarafélag R-
víkur er aðili áð ráðinu. Ef fé-
lagið yrði lagt niður, myndu
eignir þess — u.þ. b. 80 þúsund
króour — renna til ráðsins
samkvæmt lögum þess.
Alhert Guðmundsson, formað
ur KSÍ, sat aðalfundinn. Bar
hann fram breytingartillögu
þess efnis, að málið yrði kann
að betur, áður en til skarar yrði
l'átið skríða, og var tillaga hans
samþykkt.
Það hefur longum andað
köldu á milh Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur >° Knattspyrnu-
dómarafélagsir.s. Litlu mátti
muna, að upp úr syði á s. 1
sumri, þegar boðsmiðum dóm
ara var fækkað, en boðsmiðar
áð knattspyrnuleikjum eru eina
greiðslan, sem dómarar fá fyrir
störf sín. Eftir það hættu marg
ir dómarar störfum. en álagið
á þá dómara, sem héldu áfram
margfaldaðist og var mjög
erfitt að útvega dómara á leik
ina.
Með tillögu sinni um að
leggja Knattspyrnudómarafélag
ið niður, er Knattspyrnuráðið
áðeins að hella olíu á eldinn.
Er mikill hiti í þeim fáu starf
andi dómurum sem eftir eru út
af þessu máli Hafa nokkrir
þeirra komið aö máli við íþrótta
síðuna og sagt. að Knattspyrnu
ráðinu væri aær að lyfta félag
inu upp og styrkja það í sta'ð
þess að ieggja það niður. Þar
að auki iiti baó illa út að Knatt
spyrnuráðið, sem er fjárvana,
skuli ætla að hirða þarna 80
þúsund krónur á aúðveldan
hátt. Á sumum dómurum hefur
mátt heyra, að sennilega væri
bezt áð hætta alveg að dæma
og eftirláta stjórnarmönnum
Knatspyrnuráðsins að dæma þá
2 þúsund leiki. sem hér fara
fram árlega.
Hvað sem öllu líður, er von
andi, að þetta mál verði útkljáð
áður en keppnistímabiliö hefst.
Þó að dómarai séu ekki alltaf
vinsælir, eru beir þó ómisandi.
begar leikir fara fram
listanum, og er orðið Iangt síðan
að fsland hefur verið talið meðal
knattspyrnuþjóða Evrópu f þessu
fræga blaði.
Vestur-Þjóðverjar eru taldir
beztir í Evrópu 1968. Þeir léku
11 landsleiki, sigruðu 5, gerðu 5
jafntefli og töpuðu 1 leik. Hér er
átt við atvinnumannaliðið þýzka,
en ekki áhugamannaliðið sem hér
lék í sumar.
Það vekur athygli að portú-
galska landsliðið, sem var í þriðja
sæti í fyrra, er nú í 17. sæti, og
ekki álíta Frakkar sig vera fram
arlega í knattspyrnu, því þeir eru
í 24. sæti.
Röð landanna er annars sem
hér segir:
1) Vestur-Þýzkaland, 2) Tékkó
slóvakía, 3) Englnud, 4) Ítalía,
5) Rússland, 6) Júgóslavía, 7)
Belgía, 8) Búlgarla, 9) Ungverja-
land, 10) Skotland, 11) Spánn, 12)
Svíþjóð, 13) Norður-írland, 14)
Rúmenía, 15) Grikkland, 16) Pól-
land, 17) Portúgal, 18) Wales, 19)
Danmörk, 20) Noregur, 21) Aust-
urríki, 22) Holland, 23) Sviss, 24!
Frakkland, 25) frland, 26) Kýpur,
27) Tyrkland, 28) Finnland, 29)
Albanía, 30) Luxemborg.