Vísir - 04.09.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 04.09.1977, Blaðsíða 4
4 Sunnudagur 4. september 1977 VISIF vert mikið um teiknimynda- þætti i sjónvarpinu. Gallinn er bara sá að þeir eru margir hverjir framleiddir utan Bret- lands — i Bandarikjunum og Austur-E vrópulöndum. Það sem maður þarf fyrst og fremst aö gera til þess að fá verkefni i þessari grein er að vera dugleg- ur við að komast i persónulegt samband við stjórnendur stúdióanna, þ.e. hringja alltaf öðru hverju sjálfur og athuga hvort þeir séu með einhver verkefni á döfinni. Þá á ég ekki við að maður fái verkefni vegna þess að maður þekkir mann sem þekkir mann og þess háttar kunningsskapar. Slikt þýðir ekkert. Maður þarf fyrst og fremst að sýna hvað maður get- ur, t.d. með þvi að fara með sýnishorn af einhverju sem maöur hefur gert. Stúdióin eru yfirleitt mjög tortryggin og maður verður að sanna að mað- ur geti eitthvað og að hægt sé að treysta manni, áöur en þau eru tilbúin til að fá manni fullt verkefni i hendur.” FRAMTIÐIN Helga segir að vel megi draga fram lifið á þvi aö vinna við teiknimyndagerð, og sé „free- lance” vinnan heppilegri aö þvi leytinu, m.a. vegna þess að þá er hægt að draga eigin áhöld og tæki frá skatti. Og ef menn vinna við auglýsingateikni- myndir eða ef yfirvinna er mikil þá sé þetta prýðilega borgað. Þeir sem séu gráðugastir i pen- inga reyni að vinna sem mest við auglýsingar. „Já, já, ég ætla að halda á- fram i þessu. Ég er ekki enn komin inn i teiknimyndageröina sjálfa að marki. Ég hef mestan áhuga á „animation”, þ.e. hinni eiginlegu teiknimyndagerö. Ég þarf að vera hérna svolitiö leng- ur áður en ég kemst-heim að minnsta kosti. Að þvi stefn- ir maður alltaf. Ég held ég myndi reyna að starfa „free- lance” að þessu heima og vona að grundvöllur sé fyrir þvi, - hvort sem er við gerð barna- þátta eða titla fyrir sjónvarp, auglýsinga eða annars. Jú, vissulega hefur maður ýmsar hugmyndir sem gaman væri að geta framkvæmt, t.d. sögur sem maður hefur lesið sem mann langar til að gera eitthvað með i teiknimynd. En það er ógerlegt að segja hvort timi gefist til sliks, og svo er allur búnaöur til teiknimyndagerðar rándýr.” LOPAPEYSUM FÆKKAR Hún segist kunna prýðilega við að búa i London. "Ég hef að visu ekki veriö með heimili á Islandi, — aðeins skroppið heim i frf þessi átta ár —, þannig að ég hef ekki saman- burð. En hér er margt hægt að gera, og miklir möguleikar til aö njóta þess sem maður hefur mestan áhuga á, — fara i kvik- myndahús, leikhús, konserta og þess háttar. Þaö er ómögulegt að segja hvenær maður drifur sig i aö fara heim til Islands. Við Einar erum bæði smátt og smátt aö koma okkur fyrir atvinnulega, tækifærum fjölgar og þegar þetta er þannig farið aö rúlla upp á sig getur farið að teygjast úr dvölinni. Það er eiginlega vonin sem hefur haldið okkur hérna þessi ár. Jú, vissulega er nokkur óvissa þvi fylgjandi að við erum bæði „free-lance”, höfum ekki fastan atvinnuveit- anda. Afturámóti er þetta lika spennandi og tilbreytingarrikt einmitt vegna óvissunnar. Það hafa komið timar þar sem mað- ur hefur fariö að hafa áhyggjur af afkomunni. Þá hef ég fariö að prjóna lopapeysur. En það var nú meir hér áður fyrr!” — AÞ. EINSDAUÐI ER ANNARSBRAUÐ Texti: páll stefánsson I viðtölum við hljómlistar- menn um Presley er hann lofað- ur upp i hástert. Þeir keppast við að segja hve mikil áhrif hann hafi haft á þá sem söngv- ara. A sama tima komu bresku tónlistarblöðin hingað til lands. Og viku gamlar fréttir sem höfðu alltaf dugað til þessa voru orðnar úreltar. Þeir dómar, að siðasta litla plata Presleys væri „less than zero”eða lélegri en ekkertvoru gleymdir um leiö og hann dó, konungurinn sem var fyrir löngu hættur að stjórna. Ég geri þetta með Presley að umtalsefni vegna þess aö þó Presley hafi verið fyrir löngu hættur að seljast og það séu ein tuttugu ár siðan hann var á toppnum syrgðu hann milljónir manna um allan hinn vestræna heim. Það er eins og ef þú kemst einhverntima upp á toppinn þá ererfiðara að komast niður aft- ur. Viö hér á tslandi förum ekki varhluta af þessu. Það eru alltaf sömu gömlu nöfnin sem popp- siður dagblaðanna hafa viðtöl við. Bara misoft eftir hvar á tindinum þeir standa. Timinn stendur ekki i stað, og poppar- arnir svokölluðu fara áöur en langt um liður að nálgast fer- tugsaldurinn. Tónlistin er aö veröa mikið átakalausari en hún var. Það vantar allt nýtt, einhverja heiðarlega tilraun til þess að skapa eitthvaö frum- legt. Að komast áfram. En hvaöa möguleika á hljóm- sveit sem er að byrja í dag að komast á toppinn. Amundi Am undason stórumboðsmaður sagöi aö þaö gætu allir komist á- fram bara ef þeir væru nógu góöir. Hann sagði að það vildi oft brenna við að þegar nýjar hljómsveitir kæmu út i þennan bransa þá væru þær alls ekki nógu samæfðar. Þeir væru ef til vill búnir að vera saman aöeins á annan mánuð og þætti það al- veg nóg. Og siðan þegar þeir komast út í bransann af alvöru verða þeir undir og gefast bara upp. Strákar með græjur á þriðju milljón. Litlu húsin úti á landi taka þessar hljómsveitir hiklaust og troöfylla hjá sér. En i húsunum hér i bænum og stóru húsunum úti á landi svo sem Festi, þýðir litið annað en aö bjóða upp á þekkt nöfn. Annars eru þau hálftóm. Amundi sagöi að hann væri ó- vinsæll maður fyrst og fremst vegna þess að hann hafnaði svo mörgum hljómsveitum sem kæmu til hans i atvinnuleit. Hann sagðist vilja hafa fáar hljómsveitir og koma þeim al- veg upp á topp. Hann kærði sig ekkert um margar hljómsveitir sem hann gæti litið sem ekkert gert fyrir. Möguleikar litlu hljómsveit- anna eru mun minni nú en t.d. i fyrra i hljómplötuútgáfu. Am- undi sagði að markaðurinn heföi dregist það mikið saman frá þvi i fyrra vegna offramboðs aö út- gáfa á hljómplötu litt þekktrar hljómsveitar væri dauðadæmd fjárhagslega. Þó hefði plata Deildarbungubræðra selst þokkalega, þó litið hafi gengið i upphafi. Gott dæmi um það hve þessi poppheimur er fáliðaður er þeg- ar Pétur stofnaði Paradis á sin- um tima með mönnum sem höfðu ekki verið i fremstu vig- linu áður. En áður en ár var lið- iðfrá stofnun hljómsveitarinnar höfðu önnur og þekktari nöfn tekið sæti i hljómsveitinni en hinir látnir fara. Þegar Paradis fer á stað er jarövegurinn rudd- ur fyrir þá. Þeir eru orðnir besta hljómsveit landsins, — alla vega besta hljómsveit Dag- blaðsins —, áöur en þeir koma fram opinberlega. Fréttir Alltaf öðru hverju eru birtar hér fréttir um að þessi og hin is- lensk hljómsveit sé að sigra heiminn. Hver man ekki eftir öllu umtalinu um Change, eöa þær vonir sem bundnar voru við samning Gunnars Þóröarsonar og Lee Kramers. Plata Gunnars kom út fyrir allnokkru og var henni dreift um öll Bandarikin bæði til útvarpsstöðva og ann- arra álika stofnana. Ekkert virðisthafa verið gert til þess að fylgja þessu eftir, svo að þær sögur sem gengið hafa manna á meðal að Gunnar eigi eftir að verða ein stjarnan i banda- riska fánanum virðast eiga langt i land með að vera sannar. Það þarf vist meira en að vera góður til þess að komast á topp- inn erlendis. Erlendis er allt að verða vit- laust út af hinu svokallaða ræflarokki. Einhver endurnýj- un er þar að eiga sér stað. En hvað með tsland? Eru einhver ný nöfn að koma upp á himin- inn?Amundi sagði að sú endur- nýjun sem ætti sér stað hér væri hægfara. Helst á þá lund að nýirmenn kæmu inn i þekkt- ar hljómsveitir. Þó hefur til- koma hljóðupptökustúdióanna breytt mjög miklu. Nokkrir tón- listarmenn hafa aðeins orðið þekktir fyrirhljómplötuleik, svo sem Þokkabót, Randver, Rut Reginalds og Megas. En þrátt fyrir það að hljómverin hafi breytt miklu hafa þau fest gömlu nöfnin enn betur i sessi. Það er aðeins litill hópur sem kemur nálægt nær öllum þeim plötum sem gefnar eru hér út. Ef ekki sem aðalmenn þá sem „sessionmenn” eða útsetjarar. Deildarbungubræður Hver er formúlan fyrir þvi að verða frægur. Kristinn Sigur- jónsson bassaleikari Deildar- bungubræðra sagðiað það væru umfram allt fjölmiðlar. Þá sér- staklega útvarp og sjónvarp. Hann sagði að plata þeirra Deildarbungubræðra hefði komið út um fimm dögum fyrir jól og hefði þá hreinlega tinst. En siðan fengu þeir að koma Tram i sjónvarpinu og þá hefði allt farið að ganga. Til þess að fylgja þessu eftir þá hefðu þeir farið i reisu um landið, sem hefði gengið mjög vel. ,,Það þýðir ekkertað bjóöa fólki upp á eitthvað nýtt.Fólk vill hlusta á eitthvað sem það kannast viö. Það vill fá eitthvað fyrir pening- inn. Það þýðir ekkert að bjóða fólki upp á nýja frumsamda tón- list. Þegar fólk fer á böll, þá er það komið til þess að dansa, ekki hlusta. Eftir þessu lögmáli förum viö i Deildarbungubræðr- um. Það er helst i Klúbbnum á fimmtudögum og i Tjarnarbúð sem fólk kemur til þess að hlusta. Og þótt okkar prógram séekkert sniðið fyrir þessa staði heldur fyrir staðina úti á landi var okkur mjög vel tekið á þess- um stöðum. „Plötur eru aftur á móti ann- ars eðlis en dansiböll”. Vegna þess hve okkar fyrsta plata gekk vel, erum við nú i Hljóðrita að vinna að nýrri plötu sem öll er frumsamin. Ég held að ef maður komist inn á gafl hjá fjölmiðlum þá er maður ör- uggur um að komast áfram. Annars finnst mér töluverður klikuskapur í þessum bransa. Það sitja sömu mennirnir að öll- um lykilstöðunum. Bæði hér i Hljóðrita og svo i fjölmiðlum. Studfótiminn er dýr og þvi leita tónlistarmenn frekar til manna sem hafa reynslu og að- stöðu. Það hlýtur að vera blóð- ugt að borga um 10.000.- fyrir timann og standa ef til vill uppi með marga tima sem nýtast ekki.” „Poppdálkar blaðanna hafa ekki verið nógu vakandi. Þeir kljást við það sama ef þeir eru til á annaö borð. Ég held til dæmis að fólk verði mjög undrandi að einhver Kristinn Sigurjónsson er i við- tali I Visi. Fólk er ekki vant þvi! „Annars er enginn.'*asy living’að komast á toppim. Þetta er vinna og aftur vinna. Og að fá tækifæri til þess að vinna að plötu, er alveg stórkostleg lifs- reynsla. Og ég vil taka það fram að Tony Cook gerir þá reynslu sinu áhrifameiri.” Hvort Deildarbungubræður verða sómi Islands, okkar Presley er ekki gott að segja þvi eins dauði er annars brauð! —p. stef. Presley er látinn. Ég held að sú frétt hafi farið fram hjá fáum. Fjölmiðlar hafa verið fullir af minningargreinum um hinn látna rokkkóng. Með dauða hans sannast enn einu sinni hið gamla mál- tæki: eins dauði er annars brauð. Það voru ekki liðnar 24 stundir frá dauða hans þegar i Banda- rikjunum kom út bók þar sem æfi hans er rakin. Meira að segja hér uppi á íslandi er rykið dustað af nokkurra ára gamalli hljómleikamynd af kappanum. Presley plötur sem ekki höfðu selst i nokkurn tima seljast nú eins og heitar lummur. Hljómplötuverslanir voru alls ekki viðbúnar hin- um snögga dauða hans og urðu þvi fljótt uppi- skroppa með plötur hans. Það er að segja i þeim verslunum sem hann fékkst i. Þvi æði margt hafði farið fyrir litið á siðustu útsölum. Change — biðin eftir heimsfrægðinni

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.