Tíminn - 07.03.1969, Blaðsíða 6
6
ÞINGFRÉTTIR
TÍMINN
ÞINGFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. marz 1969.
Heimild um takmörkun
fasteignagjalda nauö-
þurftarhúsnæöis felld!
LL-Reykjavik, miðvikudag.
Br rætt var um frumvarp Ein-1
ars Ágústssonar um tekjustofna;
sveitarfélaga í efri deild Alþing-
is, komu fram -tvö álit frá nefnd
þeirri, sem um málið fjallaði.
Meiri hluti nefndarinnar, stjórn-
arsinnar, lögðu til að frv. yrði
fellt, en minnihluti vildi sam-
þykkja það með smávægilegum
'breytingiim.
Björn Fr. Björnsson, sem mælti
fyrir minnihluta nefndarinnar,
sa|ði m.a.:
I þessu frv. er lagt til, að heim-
ilt sé að lækka álag fasteigna
skatta, þegar um meðalíbúð til
eigin afnota er að ræða. Með hlið
sjón af þeim erfiðleikum, sem
steðja að mörgum efnamiinni íbúð
areigendum, teljum við í minni-
hlutanum sanngjarnt, að heimild
sé til þess í lögum að lækka eftir
atvikum fasteignaskatta, og þá
þegar svo er ástatt að aðeins er
um minna íbúðarhúsnæði að ræða
og einvörðungu til nauðþurfta.
Margir skattþegnar eiga fullt í
fangi með að halda sínu íbúðar-
húsmæði og þessu fólki sýnist, okk
ur í minnihlutanum, eiga að rétta
nokkra hjálparhönd, og beri því
að veita sveitarstjórnum heimild
í þá stefnu, sem í frv. greinir.
Einar Ágústsson sagði m.a.:
Ég tel að það skipti talsverðu
máli, hvernig fasteignaskattar eru
lagðir á, ekki sízt nú, þegar íbúð-
areigendur berjast í bökkum við
að halda sínum íbúðum. Að und-
anfönnu hafa allmargar íbúðir ver
ið seldar nauðungarsölu, og er það
vissulega hörmuleg þróun.
Hér er gert ráð fyrir, að sveit-
arstjórnum sé heimilt að undan-
(Þvgg j a þessar tilteknu ibúðiir
hæsta fasteignaskattsálagi. Nú er
heimilt að þrefalda fasteignaskatt
inn í vissum tilfellum og sum
sveitarfélögin hafa þegar notað
sér af því, þar á meðal Reykja-;
vík nú nýverið. Þegar það kom
til orða að þrefalda fasteigna- í
skattinn í Reykjavík, komu fram
raddir um það í borgarstjónn
Reykjavíkur, að ef til vill væri'
sanngjarnt að undanþyggja þessu
viðbótarálagi minni íbúðir, sem
notaðar eru til eigin þarfa, og
það var ekki annað að heyra þar,
heldur en flestir borgarfulltrúar
teldu að það væri sanngirnismál,
en það strandaði á því, að lög
leyfðu það ekki. Þess ’vegna hef
ég flutt þetta frumvarp, svo það
væri alveg ótvírætt að sveita-
stjórnir gætu haft áhrif á það,
hve fasteignaskatturinn er í viss-
um tilvikum alveg á sama hátt
og aðrir skattar og gjöld til borg-
arinnar eru ákveðin.
Nú reynir á, hvort þessi við-
bára hefur verið fyrirsláttur eða
menn hafi raunverulega meint, að
þetta væri skynsatnleg hugmynd,
sem aðeins strandaði á lagabók-
Björn Fr. Björnsson
stafnum. Hér hafa verið lagðar
fram 2 umsagnir um þetta frv.
Önnur er frá sambandi ísl. sveita-
félaga og er sagt, að ekki sé hægt
að mæla með samþ. frv., ekki
sízt eins og þar segir, vegna hims
mikla misræmis á fasteignamati,
eftir því hvar fasteignirnar eru
á landinu samkv. núgildandi fast-
eignamati. Hér finnst mér vera
algjört vindhögg slegið. í fyrsta
lagi vegna þess, að frv. gerir ein-
ungás ráð fyrir heimild en ekki
skyldu, auk þess ætti vitanlega, ef
svo er ástatt, sem allir raunar
vita vel, að fasteignamatið er
svona geysilega misjafnt, þá á
auðvitað að kippa því í lag.
Hia umsögnin er frá Gjald-
heimtunni í Reykjavík og telur
þetta fyrirkomulag ekki samræm-
ast reglum þeirrar stofnunar um
innheimtu fasteignaskatts.
Menn verða að læra af reynsl-
unni í þessu efni eins og öðru,
og breyta því, sem aflaga fer hjá
öllum stofinunum ríkis og Reykja-
víkurborgar, hvort sem þær heita
Gjaldheimta eða eitthvað annað.
Nú tel ég að komið hafi í ljós
þeir ágallar, að það sé sjálfsagt
að breyta. Og eins og ég hef rey.it
Framhald á bls. 15
NATHAN & OLSEN HF.
Eftirlæti
allrar fjölskyldunnar
með súkkulaðibragði
Qj
GENERflL w
Athugun lánskjuru
utvinnuvegunnu
LL-Reykjavík, þriðjudag.
Þórarinn Þórarinsson lagði í
dag fram eftirfarandi tillögu til
þingsályktunar á Alþingi:
Neðri deild Alþingis ályktar að
fela ríkisstjórninni að afla upp-
lýsinga um lánskjör atvininuveg-
anna hjá þeim þjóðum, sem ís-
lendingar keppa við á eríendum
mörkuðum og á heimamarkaði.
Upplýsingar þessar skulu bæði ná
til stofniána og rekstrarlána og
greina frá lánsmöguleikum, af-
borgunarskilmálum, vöxtum og
öðru þvi, sem máli skiptir. Að
fengnum þessum upplýsingum
| skal gerður samanburður á láns-
kjörum þessara atvinnuvega og ís-
lenzkra atvinnuvega og sá saman-
burður birtur opinberlega.
í greinargerð með frumvarpinu
segir:
Það er undirstaða að öruggri
afkomu þjóðarinnar, að atvinnu-
vegir hennar séu samkeppnisfær-
ir við atvinnuvegi ainnarra þjóða.
Hið opinbera verður að gera allt,
sem það megnar, til þess að svo
megi verða. I þeim efnum er það
eikki sízt þýðingarmikið að at-
vinnuvegirnir búi við ekki lakari
lánskjör en tíðkast annars staðar,
þar sem lánsfé verður nú stöðugt
stærri þáttur í rekstri atvinnuveg-
anna sökum vaxandi vélvæðingar
og hraðrar framþróunar. Þess
vegna er hér lagt til, að aflað
verði sem ítarlegastra upplýsinga
um lánskjör atvinnuvega þeirra
þjóða, sem við keppum helzt við,
og síðan verði gerður samanburð-
ur á þeim og lánskjörum ís-
lenzkra atvinnuvega. Slíkur saman
burður mun leiða í ljós, hvernig
sú stefna í peniingamálum, sem
nú er fylgt, tryggir samkeppnis-
stöðu atvinnuveganna og hvaða
breytinga kunni að vera helzt þörf
■í þeim efnum.
ÚRELT LÖG UM
PÓST OG SÍIVIA
LL-Reykjavík, þriðjudag.
Er rædd voru nefndarálit um
frumvarp um Póst- og símamála-
stofnun íslands (1. flm. Tómas
Karlsson) á Alþingi í dag kom
fram, að bæði meiri og mimai
hluti nefndiar’iinnar var hlynnt-
ur því, að hin 34 ára gömlu
lög um þetta efni yrðu endur-
skoðuð. Meiri hluti vildi vísa því
til ríkisstjórnarinnar, en minni
hlutinn vildi láta samþykkja frum
varpið.
Framhald á bls. 15
Ópólitískur
embættuveitingur
LL-Reykjavík, mánudag.
f dag lögðu þeir Þórarinn
Þórarinsson, Jón Skaftason,
Jónas Jónsson og Ingvar Gísla
son, fram tillögu til þingsá-
lyktunar á Alþingi.
Tillagan er um að undirbú-
in verði heildarlöggjöf um emb
ættisveitiigar, en þær hafa sem
kunnugt er, verið mjög póli-
tískar á undanförnum árum.
Er það miður, ef ekki er hægt
að skipa hæfasta mann, sem
völ er á í embættin og það
hljóta allir að sjá, að hags-
munir allrar þjóðarinnar verða
bezt tryggðir með völdum
manni í hverju rúmi.
Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að kjósa
fimm manna nefnd hlutfalls-
kosningu í sameinuðu þingi til
að undirbúa heildarlöggjöf um
embættaveitingar og starfs
mannaráðningar ríkisins og rík
isstofnana, þar sem stefnt sé
að þvl að tryggja sem óháð-
ast og ópólitískast veitingavald
og starfsmannaval. Nefndin
skal kynna sót löggjöf og regl-
ur um embættaveitingar í öðr-
um löndum og þá reynslu. sem
þar hefur fengizt i þessum efn-
um. Þá skai nefndin einnig
afla sér álits félaga embættis-
manna og annarra jpinbeiTa
starfsmanna utn það, hvernig
þau telji bessum málum verða
bezt skipað. bannig að fram-
angreindur tilgangur náist.
Nefndin býs sér sjálf for-
mann.
í greinargerð með tillögunni
segir:
Veitingavaldið er að lang-
mestu leyti í höndum pólitískra
ráðherra, og hefur svo verið
síðan stjórnin fluttist inn í
landið. Embættaveitingar hafa
því oft viljað verða pólitískar,
þótt aldrei hafi það verið aug-
ljósara en hin síðari ár. Sú
hefð er óðum að skapast, áð
ekki komi aðrir menn til
greina við veitingu meiri hátt-
ar embætta en þeir, sem hafa
skilríki fyrir því, að því fylgi
ríkisstjórninni eða flokkum
hernnar að málum. Hér er ekki
aðeins um fullkomnustu rangs-
leitni að ræða heldur hlýzt af
þessu, að hið opinbera verður
oft og tíðum að notast við lak-
ari starfskrafta en ella.
A£ framangreindum ástæðum
er bað bæði réttlætismál og
hagsmunamál fyrir þjóðfélagið.
að veitingavaldið verði fært
sem mest úr hönduir. pólitískra
ráðherra og lagt í hendur sem
óháðastra aðila eða bundið á-
kveðnum reglum, sem miði að
því að útiloka pólitíska eða per-
sónulega hlutdrægni. Ýmis mis
munandi form geta komið bar
til greina, og barf að athuga
vandlega, hvað hentar bezt ís-
lenzkum aðstæðum og reynist
kostnaðarminnst í fram-
kvæmd Því er lagt til, að sér-
stakri nefnd verði falið að und
irbúa heildartöggjöl um þetta
efni. bar sem iöfnum höndum
verði stuðzt við erlenda
reynslu og álit oeirra. sem
mest hljóta að hugsa um skip-
an þessara mála hérlendis.