Vísir - 22.09.1977, Síða 4
c
Fimmtudagur 22. september 1977 VISIR
Umsjón: óli Tynes
Carter var klökkur þegar
Bert Lance sagði af sér
Þótt Carter forseti
hefði fulla stjóm á sér
var sýnilegt að hann var
i töluverðri geðshrær-
ingu þegar hann skýrði
fréttamönnum frá þvi i
gær að Bert Lance fjár-
lagastjóri hefði sagt af
sér. Carter tók þetta
auðsjáanlega mjög
nærri sér og Itrekaði
fullyrðingar sinar um að
Lance væri góður og
heiðarlegur maður.
„Bert Lance er vinur minn”,
sagði forsetinn. „Ég þekki hann
einsvel og hann væribróðirminn.
Ég veit að hann er góður og
heiðarlegur maður. Hann mundi
ekki vísvitandi gera neitt sem
væri rangt”.
Sex opinberar rannsóknar-
nefndir hafa fjallað um fjármála-
feril Berts Lance undanfarnar
vikur. Ekkert hefur komið i ljós
sem varpar rýrð á störf hanssem
fjárlagastjóra, enda var sá liður
nánast ekkert til athugunar.
Það voru bankaviðskipti Lance
áður en hann kom til Washington
sem menn voru i uppnámi yfir.
Ekki er hægt að segja að nein
endanleg niðurstaða hafifengist.
Rannsóknarnefndirnar hafa
ekki komist að þvi að Lance hafi
gertneittsem varrefsivert. Hins-
vegar virðist hann til dæmis hafa
notað sér heldur rýmilega mögu-
leika til yfirdráttar á ávisana-
reikningi si'num.
Ýmis fleiri atriði hafa verið
tind til. Ekkert þeirra er stór-
vægilegt isjálfu sér, en lögð sam-
an gefa þau mynd af hálfgerðri
óreiðu óvenjulegri fjármálapóli-
tik.
1 kjölfar Watergate er banda-
riska þjóðin geysilega næm fyrir
öllu sem er ekki hundrað prósent
pottþétt. Þvi varð Bert Lance að
segja af sér.
Og nú er eftir að sjá hvort mál
hans er þarmeð úr sögunni og
hvort þetta hefur eitthvað skaðað
vinsældir og traust forsetans hjá
þjóðinni.
Bert Lance
Barna-
sala í
Frakk-
landi
Franska lögreglan er
að rannsaka fréttir um
að líbönsk börn hafi
verið seld í Frakklandi
barnlausum hjónum
sem vilji taka þau að
sér. Gangverð á barni
er sagt vera 25 þúsund
f rankar.
Lögreglan leitar nú að li-
bönskum lögfræðingi sem
sagður hafa séð um söluna.
Börnin eru sögð hafa verið á
aldrinum frá tveggja til sex
mánaða.
Ekki er kunnugt um
hversu mörg börn hefur ver-
ið verslað með ef þessar
fréttir eru þá sannar. Hins-
vegar hefur borgarastriðið i
Libanon gert óprúttnum ná-
ungum fremur auðvelt fyrir
að ná i börn til að selja.
Fyrstq hœkkunin í 14 ár
ísraelar hreiðra
um sig í Libanon
— vaka þar yfir þorpum kristinna falangista
Kínverskir iðnverka-
menn fá áður en langt um
liður fyrstu launahækkun
sem þeir hafa fengið í
fjórtán ár, að sögn jap-
önsku f réttastof unnar Ky-
odo. Kínverskir embættis-
menn skýrðu frá þessu á
fundi með japönskum
fréttamönnum sem eru að
ferðast um Kína.
Hækkunin verður fimmtán til
tuttugu prósent og kemur mest til
góða þeim sem lægst hafa launin,
en hún mun einnig bæta nokkuð
kjör tæknimanna. Þá eiga kenn-
arar lika að fá launahækkun.
Þeir verkamenn sem vinna
mestu eða vandasömustu á-
byrgðastörfin og hafa þar af leið-
andi hæst laun, fá litla sem enga
kauphækkun. Hækkunin nær ekki
til nema fjörutiu prósenta af iðn-
verkamönnum landsins.
Landslýð hefur ekki enn verið
tilkynnt um þetta ennþá, enda
kemur hækkunin ekki til fram-
kvæmda fyrr en eftir nokkra
mánuði.
ísraelskar hersveitir
hafa nú komið sér fyrir á
sex hæðum innan landa-
mæra Líbanons, að því er
áreiðanlegar heimildir
herma. Hæðirnar eru yfir
sex þorpum sem kristnir
falangistar búa í og er það
SUBBUSAGA CIA:
BUÐU FOLKI I PARTI
TIL AÐ GERA Á ÞVÍ
TILRAUNIR MEÐ LYFJUM
Undarlegustu ti,l-
raunir virðast hafa
verið gerðar á grun-
lausum borgurum i þá
tvo áratugi sem vis-
indamenn bandarisku
leyniþjónustunnar CIA
voru að kanna leiðir til
að ná stjóm á hugum
manna. Að minnsta
kosti einn maður beið
bana, en rannsóknar-
nefnd þingsins sem nú
er að fjalla um þetta
mál, hefur gmn um að
þeir kunni að hafa ver-
ið fleiri.
Þessa dagana á að koma fyrir
nefndina dr. Sidney Gottlieb,
sem viröist hafa verið stjórn-
andi,, Ultra” áætlunarinnar, en
það var dulnefni tilraunanna.
Gottlieb, sem nú er 59 ára
gamall, lét af Störfum árið 1973,
að þvi er virðist samkvæmt
beinni skipun frá Richard
Helms, sem þá var yfirmaður
leyniþjónustunnar.
Rannsóknarnefnd þingsins
hefur nú komist að þvi að rétt
áöur en hann hvarf frá störfum
eyðilagði Gottlieb öll skjöl i
sambandi við „Ultra”. Það er
þó ekki vist að það nægi honum,
þvi nafn hans hefur svo oft kom-
ið upp þegar aðrir þátttakendur
Ultra hafa verið yfirheyrðir.
Edward Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður, sem er
formaður rannsóknarnefndar-
innar, sagði til dæmis:
„Nafn Gottliebs er á hverju
einasta plággi sem við höfum
fengið i hendurnar”.
„Viltu koma i parti?”
Handbendi Ultra gerðu til-
raunir með margskonar ólyfj-
an, en virðast þó hafa haft sér-
stakan áhuga á LSD. Það hefur
komið fram við rannsókn máls-
ins að einn maður beið bana að
minnsta kosti. Hann stökk út um
glugga eftir að honum hafði ver-
iðgefiðLSDivinblöndu, ánþess
að hann vissi af.
Fleiri tilraunir voru gerðar á
saklausum borgurum. David
Rhodes, fyrrum einn af sálfræð-
ingum CIA, skýrði frá þvi að
leyniþjónustan hefði leigt sér
hús i San Francisco i eina viku.
Hann og ýmsir kollegar hans
fóru svo á milli skemmtistað-
anna til að kynnast fólki og
bjóða þvi i samkvæmi i húsinu.
Þar átti svo að sprauta yfir það
LSD úr úðakönnu og gá hvað
geröist.
Þessi tilraun mistókst þó, þvi
menn höfðu ekki áttað sig á að
húsið var ekki loftræst, og það
var ekki hægt að loka öllum dyr-
um og gluggum of lengi, þá
heföu „gestirnir” orðið tor-
tryggnir.
Útsendarar CIA fengu alls-
konar græjur til aö gera tilraun-
ir með. Þar á meðal: 1) Vin-
hrærara sem var þakinn ósýni-
legri húð svefn- eða deyfilyfja,
til að koma i vinglösin hjá fólki.
2) Ormjóa sprautunál til að geta
sprautað ólyfjan i vinflöskur, i
gegnum tappann. 3) örsmáar,
holar, glertrefjar, fullar
af ólyktarvökva. Trefjarnar
voru settar undir teppi. Þegar
einhver steig á þær gaus upp svo
megn fýla að nærstaddir flýðu
samstundis.
auösjáanlega ætlun ísra-
elsku hersveitanna að sjá
um að þeir fái að búa þar
áf ram.
ísraelsmenn hafa ekki tekið
neinn beinan þátt i bardögum
ennþá. Þeir hafa að sögn farið
oftar en einusinni yfir landamær-
in, en það hefur verið til að flytja
vopn og vistir.
Nokkrum sinnum hefur stór-
skotaliði verið beitt og flugvélar
hafa farið i könnunarferðir, en
þær hafa ekki skotið af öðru en
ljósmyndavélum.
A stæðan fyrir þvi að israelskar
hersveitir hafa nú hreiðrað um
sig á hæðunum kann að vera sú að
vinstri sinnaðir Palestinu-arabar
eru að senda liðsauka til sinna
manna i Suður-Líbanon.
Vietnam
fékk aðild
að Sþ
Allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna sam-
þykkti i gær aðild Viet-
nam og Djibúti að
samtökunum. Samein-
uðu þjóðimar eru þá
orðnar 149 talsins.
Vietnam hefur i nokkur
ár sótt um aðild, en
Bandarikin jafnan beitt
neitunarvaldi i örygg-
isráðinu.
Nú hefur heldur skánað sam-
búð landanna tveggja. Banda-
rikin settu það aðallega fyrirsig
að Vietnam neitaði að veita
upplýsingar um bandariska
hermenn sem týndust i orrustu,
og var talið að sumir þeirra
væri jafnvel enn fangar komm-
únista.
Ekki er þetta mál alveg leyst,
en fulltrúar landanna eru farnir
aðræðasaman um það. Þótti þá
Jimmy Carter rétt að breyta um
stefnu hvað snerti Sameinuðu
þjóðirnar.