Vísir - 22.09.1977, Blaðsíða 5
5
visir Fimmtudagur 22. september 1977
Hvenœr verður
Namibío sjálf-
stœtt ríki?
Fundur þessa daga í Pretoríu þar sem
reynt verður að þoka málinu áleiðis
SIGVALDf HJÁLMARSSON SKRIFAR
menn i ljós óskir um að Bretar
sæju þeim fyrir einhverskonar
stjórn, en Walvis Bay var eini
staðurinn sem þá komst undir
bresk yfirráð. Þjóðverjar
keyptu svo alla strandlengjuna
á næstu árum og landið varð
þýsk nýlenda 1890.
Svo gerðist það í fyrri heims-
styrjöldinni að Bretar tóku höf-
uðborgina Windhoek. Það var
1915. Og uppúr þvi fékk landið
stöðu verndarsvæðis hjá gamla
Þjóðabandalaginu sem seinna
færðist af sjálfu sér yfir á Sam-
einuðu þjóðirnar. Suður-Afriku
var trúað fyrir að fara með um-
boðsstjórnina, en hún hefur nú
um langt skeið ekkert viljað af
Sameinuðu þjóðunum vita og
kosið að fara sinu fram i hverju
sem er.
HRJÓSTRUGT LAND
Namibia er hrjóstrugt land.
Hún er um 320 þúsund fermilur
að stærð og ibúafjöldinn um 550
þúsund, þaraf um 75 þús. hvitir
menn, en fjöldi búskmanna
inni landi óviss. Ströndin er þurr
og gróðurlitil. Þar eru miklar
demantsnámur og einnig á
hafsbotni meðfram landi. Uppá
hálendisbrúninni er meiri gróð-
ur og aðalatvinnuvegurinn
nautgriparækt, einkum norðan-
tu.
EKKI KOSNINGAR
Tvö atriði sýnast efst á baugi i
umræðunum sem nú eru að
hefjast: vera suður-afriskra
herja i landinu meðan kosning-
ar færu fram, og tilnefning full-
trúa af hálfu Sameinuðu þjóð-
anna til að vinna með þeirri
stjórn sem Suður-Afrika hefur
skipað.
Swapo, þjóðarsamtök Namib-
iu, kveðast ekki vilja fara úti
HÖFIM O/'Vlfl
AÐ REYNIMEL 34
Bjóðum viðskiptavini okkar velkomna
á nýja staðinn og vekjum athygli
á því, að nú seljum við einnig
snyrtivörur í „Snyrtihorninu"
snyrtihornið
há rg reiðslustof a
HELGU JÓAKiMS
Reynimel 34, sími 21732.
SUÐUR-AFRÍKA hefur
um áratuga skeiö farið
meö stjórn Suðvestur-
Afríku eöa Namibíu í um-
boði Sameinuðu þjóð-
anna, en aldrei haft þar
endanleg yfirráð. í því
samhengi má þó segja að
ekki er það laust sem
skrattinn heldur, því
stjórn Suður-Afriku
þverskallast lon og don
við að veita landinu fullt
sjálfstæði.
Einhver von er samt um að
lausn sé i nánd, eftir þvi sem
fregnir herma þaðan að sunnan.
Fundur á að hefjast i dag i Pret-
oriu þarsem ambassadorar
fimm landa koma saman með
Vorster forsætisráðherra og
nokkrum öðrum leiðtogum Suð-
ur-Afriku og ræða málið. Am-
bassadorarnir eru frá Bret-
landi, Bandarikjunum, Frakk-
landi, Vestur-Þýskalandi og
Kanada. Fundurinn stendur i
dag og á morgun og er sá þriðji i
röðinni.
Það fréttist að málið hafi
aldrei verið nær þvi að leysast
endaþótt Vorster forsætisráð-
herra tregðist við að láta hafn-
arborgina Walvis Bay af hendi
og hóti að ganga frá samninga-
borði fyrir fullt og allt ef am-
bassadorarnir hætta ekki að vé-
fengja lagalegan rétt Suður-
Afriku til að halda þeirri borg,
en hún er eina náttúrulega höfn-
in þar á ströndinni.
STUTT SAGA
Saga Namibiu er ekki löng að
þvi er tekur til vestrænna af-
skipta. Árið 1814 kom þangað
þýskur trúboði og seinna ýmsir
aðrir Þjóðverjar i slóð hans. Ar-
ið 1876 létu nokkrir innbornir
kosningar meðan herir Suður-
Afriku eru enn i landinu, og Suð-
ur-Afrika neitar að kalla herlið-
ið heim meðan hætta er á
skæruhernaði að þeirra sögn.
Giskað er á að ambassadorarnir
leggi fram þá málamiðlun að
herinn verði settur undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna.
NÝR landsstjóri
Nýr landsstjóri tók við i Wind-
hoek 1. sept., suður-afriskur
dómari J.M. Steyn að nafni. En
ekki þykir hinum vestrænu am-
bassadorum sú skipun koma á
heppilegum tima. Raunar er
vitað að einhver óeirð hefur ver-
ið i landinu og ekki allt meö
felldu um stjórnina. Telja þeir
að sögn að betra hefði verið ef
stjórn Suður-Afriku hefði beðið
með þessa skipan uns náðst
hafði samkomulag um fulltrúa
frá Sameinuðu þjóðunum til að
vinna með Steyn.
ÓFORMLEGT MAL
Allar þessar umræður eru i
rauninni óformlegt tal, þvi verið
er einungis að reyna að finna
grundvöll fyrir samkomulagið.
Oryggisráðið á að fjalla um
málið að lokum, og hvert land
hefur þar neitunarvald svo eng-
inn veit hver endanleg niður-
staða verður, enda vist að
heimspólitiskir hagsmunir ráða
langmestu um allar atkvæða-
greiðslur i ráðinu.
En hitt er mikils virði að Suð-
ur-Afrika hefur nú viðurkennt
að um það hversu Namibia fær
sjálfstæði þurfi að ná samkomu-
lagi sem eining er um á alþjóða
vettvangi.
Von er nú talin um að ekki verði frekari brögð að kólerufaraldri þeim sem geisað hefur um Austurlönd
nær og sunnanverða Asiu. i Austurlöndum nær létust yfir 70 manns og þrjú þúsund aðrir tóku veikina.
Kóiera er langdlæg á þessum svæðum sumstaðar en haldið f skefjum með bólusetningu, tilað mynda á
stórum svæðum f Indlandi. Myndin er frá sjúkrahúsi i Damaskus.
1 dag kl. 15:00 á 20 ára afmæli Árbæjarsafnsins opnar
sérstök iðnminjasýning í sýningarsal Árbæjarsafns-
ins. Á sýningunni verða sýnd gömul iðnverkstæði,
hlutir úr iðnminjasafni Þjóðminjasafnsins, o.fl.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 16:00 — 22:00, og
kl. 14:00 — 22:00 um helgar. Aðgangur er ókeypis.
Sérstök fólksflutningabifreið, yfirbyggð af Agli Vil-
hjálmssyni í Reykjavík fyrir 30 árum, flytur gesti iðn-
kynningar frá Laugardalshöll til Árbæjarsafns.
IÐNKYNNING í .REYKJAVÍK