Vísir - 22.09.1977, Side 7
7
VISIR Fimmtudagur 22. september 1977
Hóf
til
heið-
urs
heimsmeistara
Menntamálaráðherra óskar heimsmeistaranum til hamingju og tilkynnir aö hann eigi von á gjöf frá
rlkisstjórninni.
Jón, ásamt Margeiri Péturssyni, sem var aöstoöarmaður hans á mótinu I Frakklandi.
(Myndir: GVogEGE)
Jón skoðar hringinn góöa meö foreldrum sinum, Ingibjörgu Jónsdóttur
og Arna Björnssyni.
Efnt var til hófs til
heiðurs Jóni L. Árnasyni
heimsmeistara i Ráð-
herrabústaðnum í gær-
kvöldi á vegum rikis-
stjórnarinnar. Þar flutti
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra
ávarp og flutti hinum
unga sk'aksnillingi heilla-
og hamingjuóskir.
Menntamálaráöherra til-
kynnti jafnframt að rikisstjórn-
in myndi færa Jóni góðan grip
að gjöf við fyrstu hentuglega.
Einar S. Einarsson forseti
Skáksambands Islands flutti
stuttaræðu og færði Jóni gjöf frá
Skáksambandi Islands. Varð
það fingurbaugur úr rauðagulli
og platinu, settur svörtum onix-
steini i hróksumgjörð, prýddur
kórónu. Hringurinn er skreyttur
hvitagullsröndum með skák-
mynstri, áletruðum IM (Is-
landsmeistari) NM (Norður-
landameistari) og HM (Heims-
meistari), ennfremur upphafs-
stöfum Jóns og skáksambands-
ins og ártalinu 1977.
Hringurinn er hannaður af
Sigurði Steinþórssyni og smið-
aður hjá Gulli og silfri.
1 samtali við Visi sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráöherra, aðekki væri búið
að ákveða gjöf rikisstjórnar-
innar. Þetta hefðiborið brátt að,
en hugmyndið væri sú að velja
einhvern góðan og varanlegan
grip.
Eorseti Skáksambandsins
sagöi i hófinu að Skáksam-
bandið hefði ákveðið að láta slá
sérstakan minnispening i tilefni
af fyrsta heimsmeistaratitli ís-
lendinga. Hluti af söluandvirði
verður varið til að styrkja Jón
L. Árnason til frekari afreka á
skáksviðinu.
—SG
Gjöf Skáksambandsins var falin I blómvendi og Einar S. Einarsson
hjálpar Jóni viö aö leita.