Vísir - 22.09.1977, Qupperneq 23
VISIR
Fimmtudagur 22. september 1977
Hringið í síma 86611 milli klukkan 13 og 15 eða skrifiðtil Vísis Síðumúia 14/ Reykjavik.
' " '"-y"—..... '
_________J
„Getur samgönguráðherra ekkert gert
varðandi flug-
samgöngur
15 staða?
Óánægöir Siglfirðingar hafa
sent lesendasiðunni eftirfarandi
bréf:
Okkur furðar á þvi hve lítið hef-
ur verið fjallað um það i fjölmiðl-
um að flugsamgöngur hafa alveg
lagst niður til 15 byggðarlaga á
landinu vegna deilunnar sem
stendur milli Guðjóns Styrkárs-
sonarog flugmanna flugfélagsins
Vængja. Siglufjörður er stærstur
þeirra staða, sem Vængir hafa
þjónað undanfarin ár með flug-
samgöngum og kemur þvi stöðv-
un rekstursins alvarlegast niður á
bæjarbiíum hér. Vegna þessara
samgangna hefur ferðum á landi
og sjó verið fækkað verulega sið-
ustu árin og fáum við nú ekki póst
nema tvisvar til þrisvar i viku.
Óþægindi vegna loðnu-
vertíðar.
Loðnuvertiðin er i fullum gangi
og þvi þörf á að flytja sjómenn i
áhafnaskiptum héðan og hingað
ogmikið um flutninga á varahlut-
um til skipaflotans sem hefur haft
aðalbækistöð hér á Siglufirði. Allt
þetta er miklum erfiðleikum háð
vegna stöðvunar flugs Vængja.
Um siðustu helgi lögðu nokkrir
loðnusjómenn héðan af stað fót-
gangandi út úr bænum i von um
að komast i eitthvert farartæki á
leiðinni til þess að komast suður.
Þetta er auðvitað ófært.
Þarf að afturkalla sér-
leyfið?
Menn spyrja hér hvort sam-
gönguráðherra geti ekki gert eitt-
hvað i málinu. Hann hefur úthlut-
að Vængjum sérleyfi til flugs á 15
staði á landinu, en nú liggur allt
flug til þeirra niðri og hefur gert f
einar þrjár vikur.Erekki hægt að
krefjast þess af sérleyfishafa, að
hann standi viö þær skuldbinding-
ar, sem hann hefur gefið ráðu-
neytinu og byggðarlögunum.
Væri ekki hægt að afturkalla leyf-
ið, ef stjórnarformaður Vængja
sýnir engan áhuga á aö leysa
málið og koma vélunum á loft að
nýju?
Furðar á silaganginum
Við Siglfirðingar eigum varla
orð til þess að lýsa furðu okkar og
óánægju yfir silaganginum, sem
Bréfritarar spyrja meðal annars hvort ekki sé hægt að veita öðrum aðilum sérleyfi til flugs til þeirra
áætlunarstaða, sem Vængir hafa þjónaðef ráöamenn félagsins hafa ekki I hyggju að koma flugvélunum
á loft að nýju.
verið hefur á lausn þessarar
deilu. Það er engu líkara en ráða-
menn Vængja hafi engann áhuga
á að hún leysist. Ef svo er verður
að fela öðrum aðila að veita þess-
um fimmtán byggðarlögum á
landinu þá flugþjónustu sem þau
þurfa á að halda.
Væntum við þess, að sam-
gönguráðherra láti þetta mál til
sin taka og ræði alvarlega um
þetta mál við flokksbróður sinn,
stjómarformann Vængja en mál-
efni okkar ibúa landsbyggðarinn-
ar verði ekki látin reka á reiðan-
um, jafnvel þótt þessi ráðherra
hafi ef til vill meiri áhuga i
augnablikinu á útrýmingu laxa-
seiða syðra en flugþjónustu við
landsbyggðina.
Fjórir óánægðir Siglfirðingar
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
Eigum ávallt
fyrirliggjandi fjaðrir
í flestar gerðir
Volvo og Scania
vörubifreiðar.
Útvegum fjaðrir
í sœnska
flutningavagna.
Hjalti Stefánsson
Sími 84720
VÍKINGUR BLAKDEILD
Fundur allra flokka verður haldinn i kvöld
kl. 8.30 fimmtudag 22. sept. í Félags-
heimili Vikings við Hæðargarð.
Áriðandi að allir mæti, nýir félagar vel-
komnir.
Stjórnin.
Volkswagen 1200 L
árg. 76
Höfum til sölu nokkra Volkswagen bif-
reiðar. Gott verð, ef samið er strax. Uppl.
i sima 41660.
Faxi h.f.
Skrifstofustarf
-Keflavík-
Laust er starf á skrifstofu embættisins frá
og með 1. okt. n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar
undirrituðum.
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu.
Bæjarfógetinn i Keflavik, Grindavik og
Njarðvik.
Vatnsnesveg 33.
Keflavik.
Jafnframt góðri þjónustu bjóðum
við úrvai snyrtivara.
í alfaraleið
Laugavegi 168.
Sími 21466
Nœa bílastœði
Sveinn Árnason hárskeri (áður Hverfisgötu 42)
Verslunin ÆSA auglýsir:
SETJUM GULL-EYRNALOKKA
í EYRU MEÐ NÝRRI TÆKNI.
NOTUM DAUÐHREINSAÐAR
GULLKÚLUR
I Vinsamlega pantið í síma 23622
Munið að úrvalið af tísku
k skartgripunum er í ÆSU