Vísir - 22.09.1977, Qupperneq 24
VfSIR
gftnftEfflnj
SMAAUGLYSINGAHAPPDRÆTTI VISIS!
Nú eru það^KENWOODhljómflutningstœki
fró FÁLKANUM í vinning!
cfe.
simi
86611
Opið virka daga til kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
STJÓRN OG SAMNINGANEFND BSRB GERÐI EINRÓMA SAMÞYKKT í NÓTT:
BSRB vill að sátta-
tillagan verði felld
„Lýsir vel viðhorfum opinberra starfsmanna til stöðunnar í kjaramálunum
„Ég er sannfærður um, að
þessi samstaða lýsir viðhorfi
rikisstarfsmanna og bæjar-
starfsmanna til kjaramála
sinna f dag betur en nokkuð ann-
aö”, sagði Kristján Thorlacíus
formaður BSRB.i viötali við VIsi
i nótt eftir að stjórn og
samninganefnd bandalagsins
haföi einróma samþykkt aö
skora á félagsmenn BSRB aö
fella tillögu sáttanefndar um
nýjan kjarasamning.
Tillagan var rædd á löngum
fundi samninganefndar og
stjórnar. Fundurinn hófst um
kl. 15.30 og stóö þá til kl. 18, er
fundarhlé var gert til kl. 22. Þá
var fundi framhaldið þar til
fram yfir miðnætti.
1 samþykktinni sem hlaut öll
greidd atkvæði, 64 talsins, seg-
ir:
„Sameiginlegur fundur
stjórnar og samninganefndar
BSRB telur, aö tillaga sátta-
nefndarsé óviðunandi og hvetur
félagsmenn i bandalaginu að
fjölmenna á kjörstað f allsherj-
aratkvæðagreiðslunni 2. og 3.
október n.k. og fella sáttatillög-
una”.
„1 fundarhlénu i gær héldu
fulltrúar allra félagsmanna sem
sæti áttu á fundinum, fundi i
eigin félögum. A kvöldfundi
okkar komu svo fram yfirlýs-
ingar frá stjórnarfundum þess-
ara félaga um að sáttatilboðið
væri óviðunandi og það bæri að
fella það. Þessi samþykkt okkar
lýsir betur en nokkuð annað við-
horfi opinberra starfsmanna til
ástandsins I kjaramálum þeirra
i dag”, sagöi Kristján Thorlaci-
us i nótt.
Sáttatillagan ásamt athuga-
semdum BSRB, mun birtast i
heild I blaöinu Asgarður, mál-
gagni bandalagsins og verður
það sent til allra opinberra
segir Kristján Thorlacíus
starfsmanna nú um helgina. 1
tillögunni er i flestum atriðum
farið mjög nærri tilboði fulltrúa
rikisvaldsins og i mörgum atr-
iðum er um samhljóða ákvæði
að ræða.
Á fundi samninganefndar og
stjórnar BSRB i gær kom fram
óánægja með fjölmörg atriöi
sáttatillögunnar en almennust
var þó andstaðan við þau laun
sem tillagan gerir ráö fyrir.
Einnig var almenn óánægja
með að ekki skyldi heimilt aö
endurskoða ákvæði samnings ef
forsendum hans yrði breytt með
stjórnvaldaaðgerðum. — ESJ
IÐNSÝNINGIN
hefst ó morgun
Iönkynning, þar sem 150 aðilar
munu kynna framleiðslu sina og
þjónustu, verður opnuð I Laugar-
dalshöliinni á morgun. Er þarna
einvörðungu um að ræöa fyrir-
tæki úr Reykjavik, en hliðstæðar
iðnkynningar hafa áður verið
haldnar viða útium land.
Hefur sýning með svo mörgum
þátttakendum ekki áður verið
haldin hér á landi.
A sýningunni verður einnig
margt til skemmtunar, svo sem
bingó, happdrætti og tiskusýning-
ar, ákveðinn maður verður valinn
lukkunnar pamfill á degi hverj-
um, og fólki gefst kostur á að
kaupa ýmsan varning með af-
slætti.
Þá verður barnagæsla á sýn-
ingarsvæðinu, og munu fóstur-
nemar annast hana. Er það .1
fyrsta sinn sem slfk barnagæsla
er höfð i tengslum við sýningu I
Laugardal, og á það að auövelda
mörgum að komast á sýninguna.
—AH
Unniö við uppsetningu sýningarskála í morgun.
Visismynd: JA
Hrundu
tveimur
stúlkum
í höf nina
Holdvotar og skjálfandi
börðu tvær stúlkur að dyrum á
húsi við Kleppsveg I fyrrinótt.
Kom i Ijós að þeim hafði verið
hrundið í Sundahöfn og komist
við ilian leik i land.
Stúlkurnar voru á heimleið
og gengu eftir Kleppsvegi þeg-
ar tveir ungir menn komu ak-
andi á litilli fólksbifreið og
stönsuðuhjá þeim. Stúlkurnar
báðu þá um að aka sér heim og
tóku þeir liklega i það og þær
settust inn.
Mennirnir vildu nú efna til
nánari kunningsskapar við
stúlkurnar, en þegar það gekk
ekki óku þeir rakleiðist niöur á
bryggju við Sundahöfn, skip-
uðu stúlkunum út og hrintu
þeim fram af bryggjunni. Að
þessu afreki loknu óku þeir
þegar i burtu.
Stúlkunum tókst að krafla
sig á land og var önnur þeirra
orðin illa haldin þegar hún
komst i hús.
Þærgátulitlalýsingu gefiðá
bilnum eða mönnunum. Bill-
inn mun hafa verið af Mini
gerð og var annar mannanna
ljóshærður i svörtum skinn-
jakka en hinn dökkhærður.
Þeirra er nú leitað.
— SG
í svelti
í réttinni
Nokkrar kindur voru enn i
Hafravatnsrétt seinnihluta
dags I gær, en réttað var þar
á mánudaginn. Höfðu kind-
urnar þá staðið þarna hey-
og vatnslausar siðan þá.
Lögreglan i Arbæjarstöð
fékk veður af þessu og til-
kynnti réttarstjóra um kind-
urnar. —SG
UR SKYRSLU INNKAUPASTOFNUNAR RIKISINS UM VIÐISHUSIÐ:
Kostnaður við að breyta
efstu tveim hœðunum í
skrifstofur um 100 milljónir
Innkaupastofnun rikis-
ins hefur gert kostnaðar-
ágiskun varðandi breyt-
ingar á f jórðu og fimmtu
hæð Víðishússins, miðað
við að þær yrðu notaðar
sem skrifstof uhúsnæði.
Er giskað á að þær lag-
færingar muni kosta um
100 milljónir króna.
t skrýrslu Innkaupastofnun-
ar, sem undirrituð er af Asgeiri
Markússyni, er ennfremur að
finna upptalningu á þvi sem
helst er talið ábótavant, og
verður þess helsta getið hér á
eftir:
Bifreiðastæði of litiö, og út-
keyrsla óþægileg, en gert er ráð
fyrir að einnar hæðar timbur-
skúr á baklóð verði rifinn, þar
byggt einnar hæöar hús með bif-
reiðastæðum á þaki.
Þá er það talinn galli, að húsið
er hornskakkt, einkum valdi
það óþægindum viö dúk- og
teppalögn, og þegar setja skuli
upp skápa i horn. Hornskekkja
þessi er þó aðeins i þeim hluta
hússins sem að Nóatúni snýr.
Burðarþol fjórðu og fimmtu
hæðar er ekki nægilega mikið
fyrir bókalager.
Þakið er sagt lekt, og koma
þarf i veg frekari útfellingar úr
gölluðu einangrunarefni i þaki.
Breyta þarf gluggum og setja
nýtt gler. Þá er einnig sagt að
sumir karmar séu skemmdir af
fúa.
Tvö stigahús eru i húsinu, og
er helsti galli þeirra hve nálægt
hvort öðru þau eru með tilliti til
brunavarna. Til stendur að
setja lyftu i annað húsið, en galli
við þá lyftu sem nú er i húsinu er
helst sá að gengið er inn i lyft-
una úr versluninni á fyrstu hæð.
Múrhúðun og einangrun er
ekki talin fullnægjandi. Þá eru
gólf sögð ósléttog .sums staðar
hallandi. Þá eru súlut bitar og
loft án múrhúðunar.
Skipta þarf um hita og raf-
lagnir, og ennfremur að gera
miklar lagfæringar á hrein-
lætisaöstöðu.
Nefnd á vegum Innkaupa-
stofnunarinnar er skoðaði húsið
leit ekki á mötueyti og eldhús og
ibúð á fjórðu hæð.
í almennri umsögn um húsiö
er sagt að það henti ekki vel sem
skrifstofubygging. Frágangur
hússins að utan og innan sé
óvandaður. Bilastæði ónóg.
Eins og framkom hér að
framan er áætlaður kostnaður
við innréttingar tveggja efstu
hæðanna fyrir skrifstofur um
100 milljónir króna, og er það sú
breyting sem talin er þörf á aö
gera.
Þá hefur Innkaupastofnunin
einnig gert lauslega kostnaðar
áætlun við að endurbyggja húsið
og innrétta það allt sem skrif-
stofuhúsnæði, en óliklegt er að i
það verði ráðist. Er þá talið að
verðmæti hússins eins og það er
sé 135milljónir króna, en kostn-
aður við endurbyggingu verði
380 milljónir króna. Samtals eru
það 515 milljónir króna, eða um
110 þúsundir króna á hvern fer-
metra.
Er það svipað og kosta myndi
aö reisa nýtt hús samkvæmt nú-
verandi byggingarvisitölu
—AH
Séð inn eftir einni vistarvera Vfðishússins.
^s>-. oHhmMHB
Visismynd: JA