Vísir - 07.10.1977, Side 1
Föstudagur 7. október 1977 — 248. tbl. 67. árg
Sími Visis er 86611
Ólafur Jóhannesson dómsmólaráðherra hefur sent dómurum fyrirspurn:
OSKAR EFTIR UPPLYSINGUM
UM GANG DÓMSMÁLA
ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra hefur
sent öllum dómurum
landsins umburðarbréf
þar sem beðið er um
upplýsingar um gang
dómsmála hjá hverju
embætti. Óskar ráðherra
eftir því að skýrslur þess-
ar berist sér fyrir 20.
október n.k.
Þetta er ný aöferð hjá dóms-
málaráðuneytinu til aö fylgjast
með gangi dómsmála og hyggst
' ráöherra leggja fram yfirlit yfir
þessi mál á Alþingi fljótlega eft-
ir að þaö kemur saman. Fram
að þessu hefur eftirlit ráðu-
neytisins farið fram með þeim
hætti að starfsmenn þess fara i
eftirlitsferðir til einstakra emb-
ætta, en að sögn Baldurs Möller
ráðuneytisstjóra er takmarkað.
hvað starfsmennirnir hafa get-
að afkastað i þvi efni.
1 umburðarbréfi ráðherra er
beðið um upplýsingar um þau
einkamál og opinber mál sem til
meðferðar eru hjá viðkomandi
embættum.
Um opinber mál er óskað
upplýsinga um mál sem ákæra
var gefin út i fyrir 1. janúar sl.
og enn eru ódæmd og um mál
sem kærð hafa veriö fyrir 1.
april 1976. En i þvi sambandi er
tekið fram að fyrirspurnin nái
aðeins til þeirra mála sem
hugsanlega geti legiö fangelsis-
dómur við.
Að sögn Baldurs Möller er
ástæðan fyrir þessu umburðar-
bréfi ráðherra ekki sú að talið
sé að til muna fleiri mál liggi
fyrir óafgreidd en verið hefur
undanfarin ár. Hins vegar sé
það staðreynd að málum hefur
fjölgað jafnt og þétt hjá dóm-
stólum, án þess að tilsvarandi
fjölgun hafi oröið i starfsliði.
Sagði Baldur að m.a. sé fyrir-
spurnin liður i athugunum
vegna starfa réttarfarsnefndar
sem nú vinnur aö endurskoðun
löggjafar með það fyrir augum
að flýta gangi dómsmála, jafn-
framt þvi sem öruggri meöferð
þeirra sé viðhaldiö. —SJ
Þráðurinn
tekinn
upp á ný
Eftir langt hlé komu
samninganefndir
BSRB og rikisins i
morgun saman til
sáttafundar með rflds-
sáttasemjara. Var þá
nær mánuður liðinn frá
siðasta fundi deiluað-
ila. t gær sat Kristján
Thorlacius formaður
BSRB á löngum fundi
með Matthiasi Á.
Mathiesen, fjármála-
ráðherra og Halldóri E.
Sigurðssyni, landbún-
aðarráðherra.
Þessi mynd var tekin i
morgun þegar
samningamenn komu
saman i Hátiðasal ís-
lands. — Sj/Visis-
mynd: JA
Afstaða BSRB:
Tollofgreiðsla flug-
farþega verkfallsbrot
„Tollgæslumálin voru
einmitt mikið rædd hjá
okkur á fundi í gær, og
niðurstaðan varð sú að
því verður fylgt f ast eftir
af okkar hálfu að engin
tollafgreiðsla fari fram
meðan á verkfalli stend-
ur", sagði Haraldur
Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri BSRB í
samtali við Visi í morgun.
Þetta þýðir með öðrum orðum
að flug til landsins mun leggjast
niður, nema stjórnvöld taki þá
ákvörðun að hleypa fólki inn i
landið án þess að það fari i
gegnum tollskoðun.
Samkvæmt lögum á kjara-
deilunefnd að tryggja ,,að hald-
ið verði uppi nauðsynlegri ör-
^yggisvörslu og heilsugæslu.”
t greinargerð með lagafrum-
varpi er þetta verksvið þrengt
ennþá meira, þvi að þar er ein-
ungis miðið við ,,að öryggi og
heilsu fólks verði ekki stefnt i
hættu”.
BSRB telur allar ákvarðanir
um undanþágur umfram þetta
heyri til samtökunum, en vill
leggja áherslu á að góð sam-
vinna takist milli BSRB og
kjaradeilunefndar um lausn
þessara mála.
—G A
NEÐAN-
MÁLS
Strax og úrslitin í
prófkjöri krata i höfuð-
borginni lágu fyrir,
fögnuðu framsóknar-
menn mjög og hafa um
sinn skapast miklir kær-
leikar með Björgvin og
öðrum aðalfulltrúa
Framsóknar i borgar-
stjórn, þótt ekki séu þeir
kærleikar einir nægjan-
leg skýring á úrslitum
prófkjörsins, segir Ind-
riði G. Þorsteinsson
meðal annars í neðan-
málsgrein sinni á blað-
siðum 10 og 11 í Vísi i
dag.