Vísir - 07.10.1977, Page 2

Vísir - 07.10.1977, Page 2
2 Hefur slysaaldan haft ein- hver áhrif á hegðun þína í umferðinni? Hafdfs Bridde, húsmóbir: Þaö held ég nú ekki, beinlinis. En mér finnst hræðilegt hversu mikið er um slys og ég held að þau séu vegna þess að allir halda að þeir séu einir i heiminum. Það hugsar enginn um neitt nema sjálfan sig i umferðinni. < Sigmar Guðmundsson, húsvörö- ur: Nei, nei, ég hef alltaf farið gætilega og það hefur ekkert komið fyrir mig. En það er orðið stór hættulegt aö hreyfa bil hér. Helga ólafsdóttir, húsmóðir: Maður er var um sig. Það er svo geysilega mikið um slys að mað- ur reynir að passa sig eins vel og hægt er. Páll S. Pálsson, skoðar lifið: Ja, ég er að selja bilinn minn! Nei grinlaust, þá breytir hún engu. Ég les um þetta i blöðunum en hugsa ekki út i þetta. Ekki fyrr en ég myndi lenda i einhverju sjálfur. Bergljót óskarsdóttir, húsmóðir: Nei, það held ég ekki. Ég bý á Skagaströnd og þar er ekki nauð- synlegt að hugsa eins mikið um þetta og hér. En allur er varinn góður, og ég held ég' passi mig Föstudagur 7. október 1977 VISIR NYTT KERFI VIÐ ALESTUR A RAFMAGNSMÆLA: Lesið af tvisvar á ári, og áœtlað þess á milli Mun spara stórfé, segir fjármálastjúii Rafmagnsveitu Reykjavíkur Nýtt kerfi við álestur á rafmagnsmæla í Reykja- vik verður tekið í notkun um miðjan nóvember. Verðurþá lesiðaf mælum rafmagnsnotenda tvisvar á ári, i stað þess að nú er lesið af á tveggja mánaða fresti. Að sögn Björns Friðf innssonar, fjár- málastjóra Rafmagns- veitu Reykjavíkur, mun þetta hafa mikinn sparn- að í för með sér þar sem mun færra fólk mun nú þurfa i aflestur. Á milli þess sem lesið verður af mælunum, en tólf mánuðun- um verður skipt niður i fimm og sjö mánaða timabil eftir þvi hvort um er að ræða vetur eða sumar, verður rafmagnsnotk- unin áætluð með tölvu. Verða rafmagnsreikningar þvi eftir sem áður sendir út á tveggja mánaða fresti. Sagði Björn Friðfinnss. i sam tali við Vi'si i morgun að þess ir reikningar yrðu alveg full- gildir reikningar, og mætti þvi alveg eins loka á áætlaða reikn- inga eins og þegar lesið væri af mælunum. Björn taldi að þessar áætlanir yrðu mjög nákvæmar, þar sem notkunarsaga raf- magnskaupenda væri kunn mörg ér aftur i timann. Þaðœru aðeins nýir kaupendur sem erf- itt væri að áætla á, og yrði þvi lesið af hjá þeim eins og áður. Þá yrði einnig lesið af hjá stór- um iðnfyrirtækjum, sagði Björn. Að lokum sagði Björn að þessi áætlunaraðferð hefði verið reynd hjá Rafmagnsveitunni áður en þá gefist illa, og því þá hætt. NU væri hins vegar fyrir hendi fullkomnari tækni, og þvi væri farið út á þessa braut á ný. —AH ; íslandsströnd í Portúgal Hið gjörbreytta viðhorf i ferðamálum islendinga, þar sem aðeins tekur fjóra tima að komast til Grikklands eða Mall- orka i nýtiskulegustu og örugg- ustu farartækjum nútimans, er þessa stundina að hafa meiri á- hrif en við gerum okkur al- mennt grein fyrir. Hinn mikli „landflótti", sumar og vetur hefur valdið nokkrum áhyggj- um vegna óhjákvæmilegrar gjaldeyriseyðslu, og um tima voru settar órýmilegar skorður við gjaldeyri í þessar ferðir. Nú hefur þeim skorðum verið vikiö frá að nokkru, þótt ekki megi mikiö út af bera svo fóik verði ekki uppiskroppa. Þessi þrengsli um gjaldeyri heidur uppi nokkru svartamarks- braski, enda vill fólk gjarnan hafa nokkurn varasjóð á feröa- lögum. Varasjóðsleitin heldur uppi nokkuð háu verðlagi á gjaldeyri, og er nú talaö um að dollarinn sé kominn i þrjú hundruð krónur. Annars gælu islendingar komið þessum málum þannig fyrir, að ferðamenn þyrftu eng- an gjaldeyri til ferðalaga á sólarstrendur. Hægt væri að koma upp sólskinsbletti við haf- ið, t.d. i Portúgal, þar sem sól- baðsfólk gæti eytt islenskum peningum til viöurværis sér. Auðvitað þyrfti aö gera samn- inga um þetta við ríkisstjórnina i Portúgal. Hér var nýlega á ferðinni portúgalskur sendi- maður, sem kvartaði mjög und- an óhagstæðum viðskiptum við tsland. Ekkert væri einfaldara, fyrst við ætlum okkur að stunda sólböð sumar og vetur á erlend- um ströndum um ófyrirsjáan- lega framtið, en semja um strandsvæði i Portúgal nærri viðunandi flugvelli, og flytja þangað unga og gamla án notk- unar annars gjaldmiðils en þess islenska. Þetta mundi þýða að sett yrði upp einskonar frihöfn á ströndinni, og sólþaðsgestir væru raunar á alþjóðlegu svæði. Samningarnir við Portúgal næðu til lands og húsnæðis, en sjálfir ættum við að geta rekiö viöunandi mötuneyti á staðnum, þótt þau væru ekki niðurgreidd eins og hjá ríkinu. Sjálfsagt mundi stofnkostnað- ur verða nokkur, en eigum viö ekki sjö milljarða i Portúgal, sem þeir heimta að verði teknir út hjá þeim I vörum eða fyrir- greiðslu. A móti kæmi svo sá mikli sparnaöur, sem fengist við það að safna sólbaðsgestum utan af islandi I islenska fri- höfn. Fjármunum yrði ekki eytt á meðan á baðströndum annars staðar. Yfirleitt hegða íslendingar sér skynsamlega á sólarströnd- um. Þeim er nýnæmi i 13% bjór og nokkrum áfengistegundum, sem ekki hafa komist að hér fyrir brennivini. Varla er hægt að komast hjá þvi að lifa heilsu- samlega, enda áhersla lögð á það að liggja á ströndinni og sól- brenna. Og þótt drukkið sé dálitið af bjórnum gufar hann fljótt úr likamanum i þrjátiu stiga hita. Heilsulindir hér heima eru heldur fáar og fátæklegar. Helsta skal nefna heilsuhælið i Hveragerði, hina þörfustu og ágætustu stofnun. Samt stæðist hún ekki snúning samskonar stofnun I sólriku landi eins og Portúgal. A.m.k. kvað einn sól- baðsgestur nýverið og blandað- ist þá fæðumunurinn inn i dæm- ið: Þó að svitinn sæki að mér og sólin tiðum of heit veröi langar mig frekar að liggja hér en leysa vind i Hveragerði Spurningin er bara þessi: Hafa islensk stjórnvöld þor og þrótt til að bregðast viö stað- föstum sólbaðsþorsta lands- manna með þvi aö leita eftir samningum við Portúgala um varanlega aöstööu til sólbaðs- iökana I þvi góða landi? Með slikum samningum mundi tak- ast að gera okkur að þeirri sóla þjóð að hálfu leyti, sem við er- um i hjarta okkar, þótt lægðirn- ar á Atlantshafi vilji hafa það öðruvisi. Svarthöfði

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.