Vísir - 07.10.1977, Side 10

Vísir - 07.10.1977, Side 10
10 Föstudagur 7. október 1977 vism VISIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð mundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Anders Hansen, Edda Andrésdóttir/ Elías Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Oskar Hafsteinsson, Kjartan L. Pálsson, Magnús Olafsson, Oli Tynes/Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar: Siöumúla 8. Símar 82260, 86611. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Rftstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 7 iínur Askriftargjald kr. 1500 á mánuöi innanlands. Verö i-lausasölu kr. 80 eintakið Prentun: Blaðaprent hf. STEFNT í RÉTTAÁTT Geir Hallgrímsson forsætisráðherra hefur nú skýrt frá nokkrum höfuðmarkmiðum, er rikisstjórnin mun keppa að með fjárlögum og lánsf járáætlun fyrir næsta ár. Svo virðist sem rikisstjórnin stefni að nokkru aðhaldi bæði i opinberum umsvifum og fjárfestingu. Á fundi sjálfstæðismanna siðastliðið fimmtudags- kvöld sagði forsætisráðherra, að baráttan gegn verð- bólgunni yrði helsta viðfangsefnið í næstu framtíð. Þó að tekist hafi að lækka verðbólguna úr rúmlega 50% niður í 30% sé hún eigi að siður alvarlegasta meinsemdin í þjóð- félaginu. Yfirlýsing þessi er mjög i samræmi við það sem Vísir hefur bent á i þessu sambandi. Á hinn bóginn er það vissulega engin ný bóla, að stjórnmálaleiðtogar lýsi yfir stríði gegn verðbólgunni. Það hefur oft gerst áður og enn sem komið er hefur enginn hrósað sigri. En hitt er jafn Ijóst, að náist samkomulag á breiðum grundvelli um að fylgja fram aðhaldsstefnu má þoka málum i rétta átt. Kjarni málsins er sá, að í mörgum til- vikum þarf að víkja öðrum markmiðum, og oft á tiðum æskilegum markmiðum, til hliðar um stundar sakir, ef árangur á að nást í viðureigninni við verðbólquna. i ræðu sinni boðaði forsætisráðherra, að f járveitingar til opinberra framkvæmda myndu minnka að raungildi á næsta ári. Hér verður varla um mikinn samdrátt að ræða, en ef ríkisstjórnin nær þessu áformi er það ótví- rætt skref i rétta átt. Rétt er þó að minna á, að þingið hefur tvivegisá þessu kjörtímabili hindrað framgang niðurskurðartillagna ríkisstjórnarinnar. Aðhaldsstefnu á einnig að fylgja fram með því að draga úr fjárfestingu. Enginn vafi leikur á að fjár- festingargleðin hefur á undanförnum árum ýtt verulega undir verðbólguþróunina. Aðhaldsstefna á þessu sviði miðar þvi einnig í rétta átt. Á hinn bóginn er það mjög alvarlegt, ef stefna á að samdrætti í f járfestingu atvinnuveganna á sama tíma og auka á fjárfestingu í íbúðabyggingum. Þetta er mjög vafasöm stefna og horfir ekki til bóta. Eðlilegra væri að leggja höfuðáherslu á f járfestingu atvinnuveganna i þvi skyni að auka framleiðslu og sköpun verðmæta. Forsætisráðherra gaf þá skýringu á áður nefndum fundi, að rikisstjórnin væri í þessu efni bundin af sam- komulagi við verkalýðsfélögin um stóraukin fjárfram- lög til íbúðabygginga. Segja má að það hafi verið gagn- rýni vert af hálfu ríkisstjórnarinnar að ganga að kröfum launþega og vinnuveitenda um ýmiskonar aðgerðir til þess að greiða fyrir kjarasamningum, því að þessir aðil- ar fóru í samningum út fyrir þau mörk, sem ríkisstjórn- in setti að skilyrði. Og sannarlega gegnir það nokkurri furðu, að verka- lýðsfélögin skuli leggja meira kapp á fjárfestingu í íbúðabyggingum en atvinnuvegunum, þegar augljóst er að draga verður saman seglin i fjárfestingarmálum í heild. Svo virðist sem bæði verkalýðsfélögin og ríkis- stjórnin hafi misstigið sig í þessu efni. Á hinn bóginn er það fagnaðarefni, að forsætisráð- herra telur, að með minni orkuframkvæmdum á næsta ári myndist svigrúm til þess að gera nokkurt átak i vega- málum. Einsýnter, aðnæsta stórátak íopinberum fram- kvæmdum verður að vera á því sviði, þó að ríkjandi að- stæður setji f ramkvæmdaáætlunum þar um nokkur tak- mörk. Guðmundarmálið: TRYGGVI RÚNAR YFIRHCYRÐUR ÁN ÞISS AD VERJANDI VÆRI VIÐ Hilmar Ingimundarsson hrl. Verjandi Tryggva Rúnars Leifssonar, Hilmar Ingimundarson hrl. gagnrýndi harkalega frumrannsókn Guð- mundarmálsins í ræðu sinni fyrir dómi í gær. Krafðist hann þess að Tryggvi yrði sýknaður af ákæru um hlutdeild i að bana Guðmundi. Verj- andinn sagði, að við frumrannsóknina hefðu allar reglur um rétt sakaðs manns verið þver- brotnar og nefndi hann mörg dæmi þar um. Tryggvi Rúnar var tekinn fyrir samtals 68sinnum án þess að verj - andi hans væri viðstaddur eða vottar. Frá 23/12 1975 til 9/1 1976 var Tryggvi tekinn 15 sinnum til yfirheyrslu, stundum oft á dag. Hann fékk ekki leyfi til að hafa skipaðan verjenda sinn viðstaddan þótt hann bæði um það og ekkert virðist vera bókað um það sem fram fór i þessum yfirheyrslum. A þessum tima var hins vegar kall- aður til læknir til að sprauta Tryggva niður svo hann gæti sofið. Þá sagði verjandinn að Tryggvi hefði oft verið yfirheyrður af tveimur rannsóknarlögreglu- mönnum samtimis að viðstöddum fulltrúa yfirsakadómara. Að sögn Tryggva var ekki um annað að ræða en játa öllu, enda hafi Orn Höskuldsson hótað að hann skyldi að öðrum kosti fá að rotna i Siðu- múlafangelsi. Gögn týnast Hér er ekki rúm til að rekja ræðu Hilmars Ingimundarsonar nema að litlu leyti en eftirfarandi kom meðal annars fram i henni. Erla Bolladóttir hefur þrisvar Þessi fimmti flokkur Við síðustu borgarstjórnarkosn-^ ingar fékk Alþýðuflokkurinn um þrjú þúsund atkvæði. Björgvin Guðmundsson var efstur á lista flokksins og náði kjöri. Hann fekk þó nokkrar útstrikanir eins og gengur, en hvergi nærri þvi marki að þær yrðu til aö fella hann. Við prófkjör flokksins um sfðustu helgi fékk Björgvin um helming greiddra atkvæöa, en tvö þúsund átta hundruö niutlu og þrfr greiddu atkvæði. Þessar töiur eru hafðar eftir Alþýöublaðinu. I.ætur þvf nærri aö I prófkjörinu hafi verið greidd jafn mörg atkvæði og flokkurinn fékk við sfðustu borgarstjórnarkosningar, og mun það mega kallast fádæma mikil kjörsókn. Verður hún með engu móti skýrð á annan veg en þann, að Viimundur Gylfason hafði látið að þvi iiggja, að ynni Björgvin Guð- mundsson kosninguna við Eyjóif Sigurðsson myndi hann ekki gcfa kost á sér f prófkjör vegna þing- kosninganna. öflugar klikur hafi tekið þátt i próf- kjörinu með þaö fyrir augum að hafa áhrif á úrslit þeirra. Framsóknarmenn fögnuðu úrslitum i prófkjöri Alþýðu- flokksins Strax og úrslit prófkjörsins voru kunn mátti greinilega heyra á Framsóknarmönnum hér f borg- inni, að þeir fögnuðu mjög niður- stöðunni. Hafa um sinn skapast nokkrir kærleikar meö Björgvini Guðmundssyni og öðrum aðalfull- trúa Framsóknar i borgarstjórn, þótt þeir kærleikar einir áér séu ekki nægileg skýring á úrslitum prófkjörsins. Vitað er að þessu prófkjöri var öörum þræði stefnt gegn Vilmundi Gylfasyni, sem hafði látið að þvi liggja, að ynni Björgvin kosning- una myndi hann ekki gefa kost á sér i prófkjöri til þingframboðs á vegum fiokksins. Vitað er að fram- boð Vilmundar i Reykjavik yrði af Framsóknarmönnum talin alvar- leg móðgun eftir það sem á undan er gengið. Með þvi að styðja að kosningu Björgvins i prófkjörinu töldu Framsóknarmenn, eða öllu heldur flokksmaskina Alfreðs Þorsteins- sonar og Kristins Finnbogasonar, að þeir væru að vinna i þágu Ólafs Jóhannessonar, og þar af leiðandi i þágu flokks sins. Fögnuöur Fram- sóknarmanna yfir kosningasigri manns i öörum flokki á áer raunar engar aðrar skýringar. Að kosningu Björgvins unnu ýmsir, sem eiga undir gjaldeyrisnefnd— ina að sækja Að kosningu Björgvins unnu jafnframt ýmsir þeir aðilar, sem þurfa undir gjaldeyrisnefnd bank- anna að sækja. Þessi sælgætissalar hópuðu sig saman og leigðu heilan flota bfla frá Bilaleigu Akureyrár, sem hefur útibú hér i borginni, og voru ólatir við að drifa stuðnings- menn Björgvins á kjörstað. Leituðu þeir viða fanga eftir þessum stuðningi, sem er leyfilegt, þar sem prófkjör Alþýðuflokksins eru opin öllum, sem ekki eru skráðir meðlimiri öðrum flokkum. Arangurinn af þessum fyrirgangi og fyrirhöfn varð slðan 1448 at- kvæði eða næstum hálft kjörfylgi Alþýöuflokksins i siðustu borgar- stjórnarkosningum. Eyjólfur Sigurðsson hlaut átta Neðanmóls ---------------------\ Indriði G. Þorsteinsson skrifar um þau öf I sem tókust á í borgar- stjórnarprófkjöri Al- þýðuflokksins og þátt hagsmunahóps manna i fleiri stjórnmála- flokkum, er vill hafa nokkra spillingu í gangi. v__--------y----------)

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.