Vísir - 07.10.1977, Side 23

Vísir - 07.10.1977, Side 23
visir Föstudagur 7. október 1977 c ,rt,'v-t-4í[i{nWi><»Fwií>Vsfiv Hringið í síma 86611 milli klukkan 13 og 15 eða skrifið til Vísis Síðumúla 14, Reykjavík. __23 m v sirtAS ||V* HÆKKUN I STAÐ ## FORRÉTTINDANNA ff „Frábært starf hjá Tony Knapp”, segir lesandi, en Knapp hefur nii sagt skilið við tslendinga og snúið sér að norðmönnum. FRAE HJÁ TONY KNAPP Landsliðsaðdáandi skrifar: Ég vil koma á framfæri þakk- læti til Tony Knapps, fyrir frá- bært starf. Ég vil benda þeim sem skrifuðu í „Lesendur hafa orðið” undir fyrirsögninni: Vilja sókn og engan Knapp,á frábæra leiki, til dæmis gegn A-Þjóðverjum, sem lyktaði 2-1 fyrir Island. Einnig á leikina gegn Irum og Norðmönn- um. Þið viljið sóknarleik en hafið þiö gert ykkur grein fyrir and- stæðingum landsliðsins, eins og Hollendingum, Belgum og írum en allt eru það þrautþjálfaðir at- vinnumenn sem skipa þeirra lið og á heimsmælikvarða. Nei, ég er ánægður með árangur Tony Knapps og islenska landsliösins. ÍTARF G.T. hringdi: Vegna fréttarsem birtist á bak- siðu Visis á fimmtudag þar sem rætt er við Harald Steinþórsson framkvæmdastjóra BSRB, lang- ar mig að koma meÖ tillögu. 1 fréttinni eru talin upp þau þrjú atriði sem helst hafa verið talin til forréttinda opir.berra starfs- manna sem Haraldur metur litils. Þau eru verðtryggður lifeyris- sjóður, ódýrmatur i mötuneytum og æviráðning. Ég legg til að þessi atriði verði felld niður svo og önnur hlunn- indi, svo sem fri blöð, en i staóinn komi til hækkun i krónutölu á launin. Ég imynda mér að það sé drjúgur skildingur sem felst i þessum þremur atriðum. Fréttir heldur korter fyrir átta "I Reykvikingur hringdi: Ég var að lesa um það i Visi að breytingar yrðu hugsanlega gerðar á fréttatimum útvarps- ins. Kemur m.a. fram að einn útvarpsráðsmanna telji morg- unfréttirnar ekki nógu góðar og hafi þvi lagt til að íréttatimarn- ir kl. 7.30 og 8.15 yrðu sameinaö- ir i einn itarlegri fréttatima klukkan 8. Ég vil taka undir þetta og álit það heppilegra i alla staði. Þó kysi ég fremur að hafa þennan fréttatima kl. 7.45, þar sem ég og auðvitað fleiri gætu þá hlust- að á fréttir á leið til vinnu, en þeir eru margir sem eiga að vera mættir kl. 8 til vinnu sinn- ar. Ég tel að þessi fréttatlmi mætti vera öllu itarlegri og meiri en áður hefur verið og ég er viss um að það verður vel þegiö, hvernig svo sem Jjjtta fyrirkomulag kemur til með að henta fréttamönnum útvarps. En eftir þvi hlýtur þetta jú að fara. Er sementið dýrara hér en erlendis? Borgfirðingur hringdi: „1 forsiðufrétt i Visi á laugardaginn fullyrðir Svav- ar Palsson forstjóri Sementsverksmiðju rikisins, að perlusteinn sé dýrari hér en i öðrum löndum. Ég vildi af þessu tilefni beina þeirri fyrirspurn til Svavars hvort sementið sé ekki dýrara hér en erlendis og eins hvort gæði þess séu sambærileg. Það er til dæmis spurning hvort ekki sé hagkvæmara fyrir Austfirðinga að flytja sement beint inn heldur en að fá það frá Akranesi. Vel má vera að þaö sé þjóðhags- lega hagkvæmt að framleiöa sement innanlands, en á undanförnum árum hafa oft orðiö ógnvænlegar hækkanir á þessari vöru. Gagnvart þeim stendur fólk varnar- laust, eins og raunar gagn- vart öllum rikisreknum fyr- irtækjum, sem hafa einokunaraöstöðu. VIII frœðast meira um landið — og óskar eftir pennavini „Lengi vel hef ég haft mikinn áhuga á að skrifast á við Is- lentiing, en þvi miður hefur mér ekki tekist það ennþá. Nú vona ég að svo verði. Ég hef alltaf •:aft mikinn áhuga á íslandi og vildi gjarnan fræðast rr^íira um landið með hjálp islenskra pennavina. Island er land sem mig langar að heimsækja, en eins og er, verð ég að láta mér nægja að dreyma um það.” Kona sem býr I Kanada, Jean Pyke segir þetta meöal annars i bréfi sem hún sendi blaðinu. Til- gangurinn er að eignast penna- vin á Islandi og i bréfinu segir hún ennfremur: „Áhugamál mín eru fri- merkjasöfnun og söfnun sér- stæðrar glervöru frá árunum 1900-1921. Ég hefði mikla ánægju af að skipta á frimerkj- um við fólk sem hefur áhuga á þeim á tslandi og ennfremur að aðstoöa það við þau áhugamál sem það kynni að hafa”. „tslensk frimerki finnst mér sérlega falleg og áhugaverð. Ég yrði þvi hrifin af að fá einhvern slik. Og ég vona að ég heyri frá einhverjum á Islandi.” Vilji einhver skrifa, þá að að senda bréfið til: Mrs. Milton Pyke. R.R. 2 Carleton Place, Ontario Canada VILTU HÆTTA AÐ REYKJA? ísletiska bindindisfélagið mun halda að Lögbergi við Iláskólann námskeið til að hjálpa fólki að hætta reykingum. Nám- skeiðið hefst sunnudaginn 9. október og stendur i 5 kvöld. Leiðbeinendur verða Sigurður Bjarnason og Snorri Ólafsson. Námskeið þes®i eru byggð upp samkvæmt erlendri fyrirmynd og hafa verið haldin viða um lönd með mjög góðum árangri. Gefin eru ráð um það hvernig styrkja megi viljann og hvernig megi á sem skemmstum tima losna við nikótin áhrifin úr likamanum. Jafnframt eru gefnar leiðbeiningar um mataræði hentugt fyrir þá sem eru að hætta reykingum og hvernig varast megi að likamsþunginn aukist. Mörg önnur góð ráð eru gefin á námskeiði þessu. Frekari upplýsingar og innritun á skrif- stofutima i sima 13899 3.-7. okt

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.