Vísir - 09.10.1977, Side 11
Sunnudagur 9. október 1977
11
- EF LITIÐ ER Á ÞAÐ, SEM UPP ÚR GNÆFIR, SEGIR HELGI
____-_c_________________________________
SÆMUNDSSON RITSTJÓRI í VIÐTALI VIÐ HELGARBLAÐIÐ
Nafn:
Helgi Sæmundsson.
Fæddur:
17. júlí 1920 á Stokkseyri.
Foreldrar:
Sæmundur Benediktsson, sjómaður og Ástríður
Helgadóttir, kona hans.
Menntun:
Samvinnuskólinn.
Störf:
Blaðamaður og ritstjóri við Alþýðublaðið 1943-
1959. Ritstjóri Andvara og starfsmaður bókaútgáf u
MenningarsjóðS frá 1960.
Maki:
Valný Bárðardóttir frá Hellissandi.
Börn:
Sjö synir: Helgi, Gísli, Gunnar, Óttar, Sigurður
Bárður og Sæmundur, sem fórst á sjónum fyrir
nokkrum árum.
blaðamennskan að sumu leyti
skemmtilegt starf — bæði
lifandi og fjölbreytilegt — en
hún var skrambi erfið oft á
tiðum.
Blaðamenn þeirra tima
þurftuað vera mjög fjölhæfirog
geta gert nánast allt. Verka-
skipting var eiginlega ekki til i
þeirri merkingu sem við höfum
nú.
Hins vegar gaf þetta
afskaplega mikil og skemmtileg
sambönd við fólk. Þá var það
siður, að allir, sem komu i
bæinn, og voru á linu blaðsins
eða flokksins, komu á rit-
stjórnina og vildu gjarnan tala
við blaðamennina og auðvitað
ritstjórann, svo þetta var oft á
tiðum eins og málfundur dag
hvern.”
Blöðin eru opnari
og heiðarlegri núna
„Blöðin hafa breyst mikið frá
þvi sem þá var. Samkeppnin við
nýju f jölmiðlana — útvarpið og
sérstaklega þó sjónvarpið —
hefur orðið blöðunum til góðs,
gert þau betri, látið þau fjalla
meira um dagsins mál og
liðandi stund.
Þau eru lika stærri, og ég tala
nú ekki um hvað þau eru betur
sett upp en var i gamla daga.
Framfarimar i prentiðnaði hafa
m.a. komið hingað á vegum
blaðanna. Og ég myndi halda,
að það væri að sumu leyti miklu
meira gaman að vera blaða-
maður núna, ef maður væri
ungur og friskur.
Þá eru blöðin einnig það sem
kallað er frjálsari. Þau flytja
miklu meira af fréttum en áður
var. Hins vegar hefur sumt efni
ekki fylgt þessari þróun. Ég
held að framfarirnar séu lang
mestar i fréttunum.
Það liggur auðvitað i augum
uppi, að fréttamennska er alltaf
áhorfsmál og umdeilanleg, en
mér finnst, að blöðin séu yfir-
leitt opnari og heiðarlegri en
þau voru.”
Var alltaf á
vinstri kantinum
,,Ég var ritstjóri Alþýðu-
blaðsins á árunum 1956 til 1960.
Það var umbrotatimi i stjórn-
málunum. Hræðslubandalagið
svonefnda milli Framsóknar-
flokksins og Alþýðuflokksins
fæddist um þetta leyti.
Ég varmótaðuraf þvi að vera
á vinstra kanti stjórnmálanna.
Þegar ég var litill drengur
vorum við vinstrisinnuð heima
hjá mér. Foreldrar minir skiptu
sér bæði af pólitik. Þau voru
ekki alveg sammála i stjórn-
málum, en ég vildi auðvitað
fylgja báðum. Þetta jafnaðist
afskaplega mikið með rikis-
stjórninni 1934-1937, sem var
samstjórn Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins. SU stjórn
var m jög vinsæl, a.m.k. á þeim
stöðum, þar sem ég þekkti til,
við sjávarsiðuna og i þorpunum.
Mér leist ákaflega vel á
samvinnu milli Alþýðuflokksins
og Framsóknarflokksins ef hún
yrðihliðstæð þvi samstarfi, sem
var milli þessara flokka 1934-37.
En auðvitað varð maður fyrir
vonbrigðum. Timarnir voru
orðnir öðruvisi og flokkarnir
höfðu breyst. Rikisstjórnin, sem
mynduð var eftir þingkosning-
arnar 1956, svaraði þvi ekki þeim
vonum, sem menn höfðu borið
til hennar i upphafi enda var
hún stutt við lýði.
Bandalag Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins setti
markið alltof hátt, að ætla að ná
hreinum meirihluta i kosn-
ingunum 1956. Svo höfðu menn
asnast tU þess, ef ég má orða
það svo, að lýsa þvf yfir, að ekki
yrði farið í stjórn með Alþýðu-
bandalaginu. Svo var aúðvitað
ekki staðið við það og farið i
stjórn með Alþýðubandalaginu.
Samt tókst þetta nú ekki.”
Eina vinstri stjórin
var á árunum 1934-1937
,,En þegar verið er að tala um
vinstri stjórn, þá miða ég nú
ekki við þessa stjórn, þótt ég
hafi átt þátt i að Hræðslubanda-
lagið varð til. Ég hef alltaf litið
svo á, að eina raunverulega
vinstristjórnin sem hafi verið
við völd hér, hafi verið rikis-
stjórnin 1934-1937, enda gerði
hún þrekvirki á mjög erfiðum
tima. 1 erfiöleikum heims-
kreppunnar endurnýjaði hún
atvinnutæki viðs vegar um land
og kom á félagslegri nýskipun,
sem við höfum byggt á i megin-
atriðum siðan. f þessum efnum
báðum vorum við, að þvi er mér
finnst eftir á,i forystu á þessum
tima.
Hvers vegna mistókst þetta
1956-1958? Þaö var óneitanlega
afskaplega erfitt árferði á
þessum timum. Dýrtiðin jókst
mikið, og þótt það væru
smámunir i samanburði við
það, sem siðar hefur orðið, þá
var m jög erfitt að ná samkomu-
lagi um aðgerðir til tausnar á
dýrtiðarmálum.
Ég held hins vegar, að
stjórnin hafi farið frá af hálf-
gerðum m i s s k 11 n i n g í.
Framsóknarflokkurinn gafst
upp. Ef stjórnin hefði þraukað
út kjörtimabilið þá hefði margt
kannski orðið öðruvisi.
En siðan komu upp ný
viðhorf, þegar samvinnan tókst
með Sjálfstæðisflokknum og
Alþýðuflokknum”.
Skák, sem tefldist
öðruvisi en
til var ætlast
„Hvers vegna komst þettu
samstarf á? Ég held. aö þetta