Vísir - 11.10.1977, Side 5

Vísir - 11.10.1977, Side 5
vism Þriðjudagur 11. október 1977. 5 Tyrkneskir hermenn á ferö í brynvagni. Framverðir NATO Þegar deila Tyrkja og Grikkja vegna Kýpur náði hámarki með innrás Tyrkja á norðurhluta eyjarinnar hrikti i undir- stöðum varnarsamtaka NATO/ sem báðar þessar þjóðir eru aðilar að. Mikilvægi Tyrklands í varnarkeðjunni liggur í hlutverki framvarðarins í eldlínunni. Tyrkir eiga að gæta lengstu landa- mæra, sem nokkurt NATO-ríki á liggjandi að Sovétríkjunum. Þau teygja sig yfir 450 km. Landamæri Noregs að Sovétríkjunum (sem eru næst lengst) eru 125 km. Austur-Tyrkland er eini far- artálminn á leið Sovétmanna að hinum mikilvægu oliusvæðum íraks og Saudi-Arabiu. Þarf ekki að fletta neinum blöðum um þýðingu þess fyrir austur eða vestur. Hernaðarsérfræð- ingar NATO eru enda ekki i neinum vafa um, að sovéski herinn mundi reyna að brjóta sér leið suður eftir Tyrklandi, ef kæmi til styrjaldar — til þess að komast yfir oliuna, eða i það minnsta hindra, að vestrið hafi not af henni. Innrás i Austur-Tyrkland mundi einnig draga liðsafla NATO frá Sæviðarsundi, en yf- irráðum þess þurftu Sovétmenn að ná, ef þeir ætluðu að opna Svartahafsflota sinum leið að Miðjarðarhafinu. James Foley, fréttamaður Reuters, naut fyrir skemmstu leiðsagnar tyrkneskra foringja um þessar slóðir, og lýsir i fréttaskeyti þaðan þvi and- rúmslofti, sem rikir þar, er her- menn gráir fyrir járnum standa andspænis hverjir öðrum við þvi versta búnir af hinum. „Þeir eru okkar hefðbundnu erfðafjendur,” sagði Tayyar Bilen, tyrkneski ofurstinn, sem lýsti staðháttum fyrir Foley, og kinkaði i þvi kolli til rússnesku hermannanna i varðturninum hinum meginn landamæranna. „Við köllum þá hina raun- verulegu óvini, en ekki Grikk- ina. Fjandseminn liggur i loft- inu, „hélt ofurstinn áfram. Klæðaburður hans og útgangur eins og undirstrikaði orðin. I vigvallabúningi og með stál- hjálm tiltækin en skammbyssu við beltisstað. Bilen ofursti er yfirmaður 14. bryndrekadeildar Tyrkjahers, og hefur hann það ábyrgðar- starf með höndum að stjórna vörnum þessarar hásléttu, sem um aldanna raðir hefur verið leið innrásaherja i Austur-Tyrk- land. Hann kunni af nýlegu dæmi um árekstrarhættuna þarna að segja vestrænum blaðamönn- um, sem voru þarna ásamt Fol- ey, af þvi, þegar rússarnir hefðu á dögunum skotið þrem loft- varnareldflaugum að tyrk- neskri orrustuþotu, sem villtist inn yfir i rússneska lofthelgi. Enginn þeirra hæfði. Fyrr á þessu ári höfðu tveir sovéskir liðsforingjar flúið yfir- um. Þeir syntu yfir Arpacay- ána, sem er hin náttúrulegu landamæri á þessum slóðum. Tyrkirnir settu blaðamönn- unum strangar reglur, áður en þeir fóru með þá frameftir. Flestar miðuðust þær við að gera ekki rússana uppvæga. Bannað var að taka myndir og blaðamönnunum var tekinn sér- stakur vari fyrir þvi að benda á nokkurn hlut handan landa- mæranna. „Niður með krumlurnar,” hvæsti einn liðsforinginn, þegar einum varð á að baða út öngum i átt rússneska þorpsins, Harto, sem stendur á hæð við ána gegnt draugabænum, Ani, en hann lagðist i eyði i jarðskjálfta árið 1319. Það grillti i sovésku hermenn- ina i háum varðturni um 750 metra i burtu, en annar turn slikur var 800 metrum neðar hjá ánni. Há girðing liggur sovét- meginn um 500 metra frá landa- mærunum. Tyrkirnir sögðu blaðamönnunum, að rafstraum- ur léki um hana, sem hindraði hverjum yfir hana að komast, er á annað borð hefði sloppið yf- ir þéttplantað jarðsprengju- svæðið. Yfir svifu fálkar, sem slangur er af þarna i fjöllunum, og láta þeir engin landamæri hefta ferðir sinar. Jafn ósnortnir virt- ust tyrknesku hjarðmennirnir, sem veðurbitnir riða fjallahest- um sinum um þessa grösugu há.- fjallasléttu. Þar hafa þeir gnægð beitar fyrir geitur sinar og hrossastóð. Sléttan sjálf er um 2.000 metra yfir sjávarmáli, en yfir henni gnæfa siðan snæviþaktir tindar (allt að 1.500 metra háir). Þessi fjöll og illfær skörðin á milli þeirra, eru bandamenn Tyrkja. 1 Kákasus hafa rússar 18 her- deildir, sem NATO-sérfræðing- ar telja, að beitt yrði til sóknar inn i Austur-Tyrkland, ef til kæmi. Þar i eru þrjár vagna- deildir með 800 skriðdreka, sem sótt. gætu fram i skjóli 500 her- flugvéla. Arásum úr öðr- um áttum þykir helst mega bú- ast við á suðurströnd Svarta- hafsins og suður með hinu sögufræga fjalli, Ararat, sem er um 200 km sunnan við Ani. Þriðji her Tyrklands gætir þessara landamæra. Aðstaða til varnar er hin ákjósanlegasta vegna náttúrunnar. Allar inn- rásarleiðir liggja um illfær gil og þröng fjallaskörð, sem auð- velt er að verja. Jafnvel þótt in- rásarliði tækist að brjótast þar inn, á það á hættu að lenda i her- kvi og verða jarðað undir skriðuföllum, sem hrundið yrði af stað með sprengjum. Tyrkjaher var að endurnýja vopnabúnað sinn um það leyti, sem hann gerði innrásina á Kýður 1974. Eftir það hættu Bandarikin vopnasölu til Tyrk- lands, og hefur þá afturkippur komið i vigbúnaðinn. Þótt skriðdrekar Tyrkja séu gamaldags, og mundu litils mega sin gegn hinum nýju T-72 skriðdrekum Rússa, er engan bilbug að heyra á tyrknesku herforingjunum. — Burhanettin Bigali, hershöfðingi og yfirmað- ur 3. hersins, sagði i þessu sam- bandi við blaðamennina: „Hættulegasta vopnið i öllum styrjöldum er hermaðurinn, sem er reiðubúinn til þess að fórna lifu sinu i orrustu. — Við eigum einmitt slika hermenn.” Hið sögufræga fjall Ararat# þar sem örkin hans Nóa strandaði/ þegar syndaflóðinu lauk, en suður með hlíðum þess hafa leiðir innrásarherja legið um aldirn- ar. 31 Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar að róða eftirtaíið starfsfólk: HJÚKRUNARFRÆÐINGA við heima- hjúkrun — deildarstjóra við heilsugæslu i skólum. STARFSKRAFT við berklavarnadeild. Starfið er m.a. fólgið i afgreiðslu og smá- vegis vélritun. Umsóknum sé skilað til hjúkrunarfram- kvæmdastjóra Heilsuverndarstöðvarinn- ar fyrir 20. október n.k. sem jafnframt gefur upplýsingar i sima 22400. HÚSBYGGJENDUR-Einanpnarplast Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi - föstudags. Afhendum vöruna á byggingar- stað, viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi hvBM 09 briqarafaal 93-7359 »iwl 93-7370 ninniim: ilfurþúfiuh Brautarholti 6, III h. Simi 76811 Móttaka á gömlum Teppi Ullarteppi, nýlonteppi, mikið úrval á stofur, herbergi, stiga, ganga og stofnan- ir. Gerum föst verðtilboð. Það borgar sig að lita við hjá okkur. TEPRABÚOIN Reykjavlkurvegi 60 Hafnarfiröi, simi 53636 @?£ótet ($otgameð “Hótel Borgarnes Nýja veitingabúðin er opin frá kl. 8.00—23.30. Við minnum á okkar rúmgóðu og snyrtilegu hótelherbergi. Pantanir teknar i sima 93-7119-7219

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.