Vísir - 10.11.1977, Blaðsíða 27

Vísir - 10.11.1977, Blaðsíða 27
VXSIÍ&Fimmtudagur 10. nóvember 1977 Hringiðisíma 86611 milli klukkan 13 og 15 eða skrifið til Vísis Síðumúla 14, Reykjavík. V- „ ' - ’*» ‘-V i, % „Eru þingsœti konnski bara tombóluvinningur? ## J K. skrifar: 1 nýútkominni samtalsbók Matthiasar Jóhannessen skrifar hann eftir einum viðmælanda sln- um, Eggert Stefánssyni á þessa leið: „Svona er þetta í skammdeg- inu, það er allt fullt af svörtum púkum i skammdeginu........ Skömmu áður en Alþingi kemur saman á hverju hausti fer ein- hver ofsaleg mæðuveiki um allt land, einhver pest.”- Nú um tiðir hefur þessi pest tekið á sig merkilegt svipmót, auk þess sem henni hefur verið framlengt, þvi nú eru kosningar að vori. Það er umhugsunarvert hvað stjórnar þvi spretthlaupi sem nú fer frám hjá stjórnmála- flokkunum og hvaða hlutverk fjölmiðlar leika i framgosaleik- ritinu. Alla tið hefur einhver hluti þeirra manna sem sitja á Alþingi lent þar fyrir einbera tilviljun. Það hlutfall fer þó vaxandi með tilstyrk fjölmiðla og einstaklinga sem gera sér ekki ljóst vald at- kvæðisins og nota það eins og happdrættismiða. Þar sem hin ýmsu vandamál hverrar þjóðar eru svo margbrot- in að farsælast hlýtur jafnan að vera að hafa sem mesta breidd i þvi liði sem valið er til forystu hverju sinni, hefur þótt eftirsókn- arvert að hafa að leiðsögumönn- um þá sem fram úr hafa skarað á Hvað eígum við að hlusta ó? Tvær i Breiðholti hringdu: NU þegar búið er aö þagga niður I tJtvarp Akureyri hvað eigum við unga fólkið þá að hlusta á? Sinfóniur og annað slikt? nei, takk. Þó aö þessi poppþáttur sé eldsnemma á sunnudagsmorgnum, þá er það ekki nóg.Hvað er þvi til fyrir- stöðu að leyniútvarpsstöð fái aö starfa hér? Við biðjum um svar. sviði atvinnu og félagsmála gegn- um árin, eða hafa sýnt ótviræða hæfileika á sviði stjórnunar. „Langar i eitt stykki þingsæti” En nú eru slik sjónarmið fyrir bi . Auglýsingatæknin hefur tékið völdin. Nú er það einkum gæfu- legt að fá menn I framboð sem al- menningur þekkir að þvi einu, að eftir þá hafa birst greinar i blöð öðru hverju. Sérstakan gæða- stimpil hafa svo þeir sem hafa komist inn á hvert heimili gegn- um útvarp og sjónvarp og gildir þá einu þó þeir hafi aðeins verið að sinna starfi sinu á fullum laun- um. Auglýsingin lætur ekki að sér hæða. Undangengnar vikur hefur mátt lesa i greinum og stórfyrir- sögnum um innanbúðarstúlku i kaupfélagi á Vesturlandi sem „ætlar að gefa kost á sér”.Ekki hafa slik ummæli þótt fyrir sagn- arefni hjá öðrum frambjóðendum i sama kjördæmi. En stúlkan hef- ur lika merkilegt innlegg i þjóð- málaumræðurnar. Henni finnst ó- þarfi að byggja allar þessar brýr og hún ætlar sér annað sætið á þessum lista og er hvergi smeyk. Kvenmanninn langar sumsé i eitt stykki þingsæti og telur ber- sýnilega ekki ástæðu til að búast við ljónum á veginum. Og blöðin og greinarhöfundar fyllast fjar- stýrðri hrifningu. Nema hvað?! Þessa dagana biða atkvæðin spennt eftir að sjá hvað flokkarn- ir muni endanlega bjóða upp á. Óliklegustu menn hafa verið lagðir i einelti til að reyna að fá þá i prófkjörsslaginn. En fæstir sem eitthvað lið væri i,gina við flugunni. Erfitt er að koma auga á hvaða erindi þeir eiga i húsið við Austurvöll, margir þessara manna sem ýmist aðrir eða þeir sjálfir, hafa lagt til að fengju hlut- deild i stjórn landsins. Eða eru þingsæti kannski bara einhvers- konar tómbóluvinningur? Gaman verður og fróðlegt að sjá hvaða framkvæmdastjórn við sitjum uppi með til að stjórna verðbólgufyrirtækinu okkar þeg- ar viman rennur af mönnum og þetta afbrigði af pestinni hans Eggerts Stefánssonar er gengið yfir. Þá fyrst sést hvort almenning- ur hefur notað atkvæðið sitt af kappi eða forsjá. Skemmdirnar í slitlagi Kefla- víkurvegarins J.G. Keflavik hringdi: Eg er einn þeirra, sem hafa nú nýlega gerst áskrifendur að VIsi og kann vel að meta blaðiö. Bæði finnst mér efnisvalið vera fjölbreytt og framsetningin öll hin aðgengilegasta. Helgarblaö- ið er svo alveg i sérflokki. En það var nú ekki eingöngu út af blaðinu sjálfu sem ég vildi snúa mér til lesendasíðunnar. Heldur út af veginum okkar Keflavlkurveginum, sem að réttu heitir nú vist Reykjanes- braut. / Eftir slysið alvarlega, sem varð þar nú I vikunni, þar sem sjö manns slösuðust og einn lét lifið finnst mér yfirvöld vega- mála verða að gera eitthvað til þess að minnka slysahættuna á þessum vegi. Hann er nú einn hættulegasti vegur landsins og ekki sist i frosti og hálku. Eins og fram kom i Visi á þriðjudaginn var það hálkan i hjólförunum, sem myndast hafði iveginum, sem slysinu olli að einhverju leyti. Okumaður annars bflsins misstivald á hon- um á þessu glæra sveili. Þessar lægðir, sem hjól bilanna hafa markað niður i slitlagið eru stórhættulegarog þærverður að fylla upp sem allra fyrst. Það er fyrir neðan allar hellur hvað lit- ið viðhald hefur verið á þessum vegi en meðal annars þess vegna hafa orðið þarna hörmu- leg slys. Vænti ég þess, að þeir, sem með þessi málhafa aö gera, taki nú til höndunum og lagi Kefla- vikurveginn, þannig að pollar og hálka myndist ekki á honum I þvi magni, sem verið hefur. „Verðum oð vokno óður en honinn golor ó sunnudogum" Tveir hafnfirskir fjósapiltar skrifa i tilefni af þvi að þeir fréttu að það ætti að færa lög unga fólksins yfir á mánudaga og „pikka af þeim 10 min, fyrir hina fjölmörgu iorföllnu sinfón- iuaðdáendur sem til eru I land- inu”, eins og þeir segja. Segja þeir unglinga ekki fagna þessari ákvörðun. Segja þeir að til þess að ná i besta þáttinn verði þeir að vakna „áð- ur en haninn galar á sunnudög- um” og þar að auki sé boðið upp á uppáhaldstónlist unglinga ekki ósjaldan á skólatima. Vilja þeir þvi gjarnan að úr þessu verði bætt. vltn á FUEi.ni mn Ég undirritaður óska að gerast áskrifandi að Visi. Nafn i lleimilisfang '# : Sveitarfél./Sýsla « Simi Nafn-nr. Síðumúla 8 P.O.Box 1426 101 Reykjavík SIMI 86611

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.