Vísir - 19.12.1977, Síða 11

Vísir - 19.12.1977, Síða 11
A I VÍSIR Mánudagurinn 19. desember 1977 15 Blaðamennsku-sagnfræði Bðk þeirra Ólafs og Einars Karls um Gúttóslaginn minnir fjarska ákveðið á bók Baldurs Guðlaugssonar og Páls Heiðars Jónssonar um inngöngu tslands i Atlantshafsbandalagið og slaginn á Austurvelli, sem út kom i fyrra. Kjarni beggja bók- anna er nákvæm útlistun á nokkurra klukkustunda viður- eign lögreglu og andófsmanna i Reykjavik, en atburðirnir um leið settir i samhengi við þjóð- arsögu og stjórnmálaátök. Höf- undar beggja bóka leita viða fanga, m.a. i óprentuðum máls- skjölum og viðtölum við sjónar- votta, þó styðjast þeir Einar og Ólafur meira við samtimafrá- Slagurinn mikli Bókin hefst á stuttri og rök- semdalausri lýsingu á atburð- um 9. nóvember 1932, bæjar- stjórnarfundi i Góðtemplara- húsinu og átökunum sem á eftir fylgdu. Þetta er liflega ritaður inngangur og vel til þess fallinn að gripa áhuga lesenda, en myndi gera sitt gagn þótt styttri væri. t siðari hluta bókar er sama saga sögð á hundrað blaðsiðum og nú teflt saman margvisleg- um heimildum og reifaður á- greiningur manna um það, hvað raunverulega hafi gerzt. Þessi bókarhluti er, eins og inngang- urinn, stilaður af Einari Karli. Tekst honum það býsna vel sem það og götuna fyrir framan. Þegar lögreglan ryður húsið og portin, hafa andófsmenn svig- rúm til að hörfa á skammri stundu. Og þegar lögreglumenn voru komnir út á götu og sættu þar meiöingum, virðast aövif- andi menn hafa átt hægt með að nálgast þá og koma þeim brott þegar þeir voru óvigir. Allt þetta visar fremur i þá átt, að meirihluti andófsmanna hafi haldið sig frá vettvangi hörö- ustu átakanna, en nokkrir tugir manna, aðallega skipulögð sveit kommúnista, hafi langmest gengið fram fyrir skjöldu. Aftur á móti virðast höfundar gera ráð fyrir mjög almennum og vigreifum samhug verka- manna, og má þaö rétt vera, en verðskuldar nánari rökstuðn- ing. Frásagnir þessar verða að vera stuttar, mest teknar eftir blöö- um, en ekkert leitað til sjónar- votta. Þó er mjög mikill fengur að þessu yfirliti, bæði sjálfs þess vegna og til skilnings á Gúttó- slagnum. Eftir 9. nóvember tekur ólaf- urafturtilog segir frá eftirköst- um átakanna, málaferlum og stofnun varalögreglu og lýsing- um bardagans i verkum skálda. Þá lýsir hann þvi, hvernig viö- brögð dómsmálaráðherra við atburöum 9. nóvember urðu aðalkosningabomban fimm ár- um seinna, er þeirri lýsingu skipað fremst i bókinni, næst inngangi til að vekja forvitni um tilefni kosningarifrildisins. STÉITASTRÍDK) Á ÍSLANDI Ólafur R. Einarsson og Einar Karl Haraldsson GÚTTÓSLAGURINN 9. nóvember 1932. Baróttuórið mikla í miðri Örn og Örlygur 1977 sagnir blaða og við prentaðar endurminningar, en minna við munnlegar frásagnir, er það eðlileg afleiðing af þvi, hve langt er liðiö frá atburðunum sem þeir lýsa. Ólafur og Einar Karl kalla vinnubrögð sin blaðamennsku- sagnfræði. Þeir leggja sig eftir hraðri og spennandi frásögn, skipa efninu þannig að það laði til lestrar, og brjóta textann með fjölda mynda og millifyrir- sagna. Hins vegar vitna þeir til heimilda jafnharðan, bæöi rit- aðra og munnlegra. Það sem blaðamennskulegt kann að þykja við vinnubrögð höfunda, rýrir i engu sagnfræðilegt gildi bókarinnar, nema það helzt hve hratt hún er unnin. Höfundar kveðast hafa gengið til verks á útmánuðum þessa árs og þó með öðrum störfum. Er satt að segja mesta furða, að slikur flýtir setji þó ekki skýrara mark á bókina en raun ber vitni. heimskreppunni. mestur er vandinn i frásögn af þessari gerð: að halda spennu i söguþræðinum þrátt fyrir mjög hæga yfirferð. Vitaskuld eru ekki auðgripnir upp sjónarvottar að 45 ára gömlum viðburðum. Þó hafa höfundar haft tal af 5 þátttak- endum i slagnum, tveimur lög- regluþjónum og þremur for- sprökkum kommúnista. (Alls er vitnað til 8 heimildarmanna i allri bókinni, en 3 þeirra leggja ekki til lýsingarinnar á slagnum sjálfum.) Skaði er, að ekki hefur hafizt upp á fulltrúum óbreyttra þátttakenda i slagnum eða á- horfenda að honum. Þó er fyrir mestu að fá lýsingar kommún- istanna, þvi að þeir neituðu að svara spurningum við réttar- höldin sem á eftir fylgdu. Lýsing atburðanna er mikið sett saman af beinum tilvitnun- um, en þær eru skilmerkilega tengdar, svo aö auðvelt er að ná samhenginu. Að þvi einu má finna, að sá frægi atburður þeg- ar Héðinn Valdimarsson rétti verkamönnum stólfætur út um glugga til að verja sig með, er settur of seint i atburðarásina, honum er lýst eftir að lögreglan var búin að hrekja andófsmenn langt frá glugganum. Hverjir slógust? Höfundar ganga ekki mjög langt i þvi að geta i eyður heim- ildanna eða fella dóma um þær, þar sem þeim ber i milli. Þeir búa gögnin i hendur lesendum og gefa þeim nokkurt svigrúm til að glima sjálfir við ráðgátur matsins, fer oft vel á þessu. Fá- einum atriðum hefði þó mátt leggja nánar út af. Til dæmis hefði stærð herbergja og ann- arra svæða sem við sögu koma, geta gefið nokkra visbendingu um fjölda þátttakenda i einstök- um þáttum slagsins. Þá finnst mér litill gaumur gefinn þvi af- ar sérkennilega atriði allra slagsmálanna, hve litið gætir troðnings og þrengsla. Þeir 16g- regluþjónar, kommúnistar og bæjarstjórnarmenn sem ekki er verið að þjarma að þá og þá stundina, labba óhindrað um fundarhúsið, portin umhverfis Sögulegt samhengi Aðra kafla bókarinnar, rifan helming hennar, ritar Ólafur R. Einarsson. Hann lýsir i stuttu máli kjörum islenzks verkalýðs á fyrstu árum heimskreppunn- ar, atvinnuleysinu og atvinnu- bótavinnunni, húsnæðismálum og hrakningum þeirra sem lentu á sveitinni. Einnig rekur Ólafur helztu atburði stettaátakanna árið 1932 fyrir Gúttóslaginn. Og þar urðu sannarlega mikil tið- indi. Formanni nýstofnaðs verkalýðsfélags i Keflavik var rænt og fluttur nauðugur til Reykjavikur. Riffilkúla flaug inn um glugga hjá foringja verkfallsmanna i Vestmanna- eyjum. Hannibal Valdimarsson var fluttur nauðugur frá Bol- ungavik til tsafjarðar, en frels- aður þar og fluttur rakleitt til baka. Formaður verkamanna- félagsins á Siglufirði framdi sjálfsmorð eftir að hann var svi- virtur óheyrilega i blaðaskrif- um. Um mitt sumar urðu hörð átök lögreglu og mannfjölda við dyr Góðtemplarahússins, einm- itt við bæjarstjórnarfund, og voru nokkrir kommúnistar hafðir i haldi við vatn og brauð meðan málið var rannsakað. Gagnleg bók Ýmsa hnökra má finna á þessu verki þeirra Ólafs og Ein- ars Karls, sem munu mest stafa af vinnuhraöa þeirra. Þannig má finna endur- tekningar i texta og litt fágaðar setningar þó ekki til stórlýta. Og auðvitað mætti lengi óska fyllri heimildakönn- unar og fleiri sjónarvotta. Vegna þess hvaða heimildir hafa verið höfundum nærtæk- astar, verður frásögnin á köfl- um nokkuðeinhliða séð frá sjón- arhóli kommúnista. Þá ber við að óbeit höfunda á forkólfum i- haldsins og atvinnurekenda verði nokkuð ber i frásögninni, og getur það veikt sannfær- ingarmátt hennar. En i aðalatr- iðum er bókin lofsverð. Hún er i senn læsileg og gagnfróðleg. Kreppan og verkalýðshreyfing- in eru tvö atriði islenzkrar nú- timasögu sem litt hefur veriö sinnt á sagnfræðilegan hátt. GÚTTÓSLAGURINN er myndarlegur inngangur aö hvoru tveggja. Helgi Skúli Kjartansson ERLENDAR JOLABÆKUR I MIKLU URVALI BOKAVERSLUN SNÆBJARNAR HAFNARSTRÆTI 4 OG 9

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.