Vísir - 19.12.1977, Qupperneq 18
22 Mánudagurinn 19. desember 1977
VISÍR
HAFA GEFIÐ HUNDRAÐ ÞÚSUND EIN-
TÖK AF NÝJA TESTAMENTINU
Allir islendingar á
aldrinum ellefu til
þrjátiu og fimm ára
ættu nú að eiga eintak
af Nýja testamentinu. v
Gideon-félagið á ís-
landi hefur nú afhent
hundrað þúsund eintök
af Nýja testamentinu.
1 tilefni af þvi afhenti félagið
forseta lslands dr. Kristjáni
Eldjám Bibliuna i morgun og á
morgun mun það afhenda bisk-
upi Islands herra Sigurbimi
Einarssyni og kirkjumálaráð-
herra Ólafi Jóhannessyni sitt
hvora Bibliuna.
Gideon-félagiö hóf að afhenda
skdiabörnum Nýja testamentiö
árið 1954, en hefur auk þess gef-
ið Bibliuna i fangelsi, á hótel, i
farþegaflugvélar og nýja testa-
mentið á sjUkrahus og tii elli-
heimila. NU er veriö að prenta
nýja testamentið með stærra
letri fyrir elliheimilin.
Auk þess hafa hjúkrunarkon-
um, sjUkraliðum og ljósmæðr-
um verið afhent eintak af Nýja
testamentinu um leið og prófi er
lokiö. -EA
HANDBOK UM NÆRRI HUND-
RAÐ BOKASÖFN
Nýlega kom út á vegum Fé-
lags bókasafnsfræðinga, Bóka-
varðafélags islands og Félags
bókasafnfræöinema ritið SKRÁ
YFIR RANNSÓKNAR- OG
SÉRFRÆÐIBÓKASÖFN
OPINBERRA STOFNANA OG
FÉLAGASAMTAKA í
REYKJAVÍK eftir Ingibjörgu
Arnadóttur bókavörð.
Var þetta lokaverkefni
hennar til 3ja stigs prófs I
bókasafnsfræði við Háskóla is-
iands, vorið 1976. Hér er um að
ræða há'ndhægt uppsláttarrit,
sem i er að finna greinargóöar
upplýsingar um tæplega hundr-
að bókasöfn ýmissa stofnana og
félagasamtaka á höfuðborgar-
svæðinu, efnissvið þeirra, hús-
rými, safngógn og þjónustu.
Meðai stofnana, sem þarna er
að finna má nefna Landsbóka-
safn islands, Bókasafn Alþingis,
Bókasafn Lyfjanefndar, Bóka-
safn Veðurstofu islands, Bóka-
safn Dagsbrúnar, svo að ein-
hver dæmi séu tekin.
Ritið er 161 fjölrituð siða og er
gefið Ut i 250 eintökum. Bókina
má panta i sima 353 46 eða hjá
Félagi bókasafnsfræðinga,
Pósthólf 1167, 101 Reykjavik.
Verðið er kr. 2000.00
Þjónustu-
auglýsingar
ekki í dag
Vegna þrengsla i blaðinu i dag
var ekki rúm fyrir þjónustuaug-
lýsingarnar, sem venjulega eru
hér aftantil i blaðinu. Ef einhverj-
ir þyrftu á þeirri þjónustu aö
halda, sem þar er venjulega vak-
in athygli á, viljum við i þetta
sinn vinsamlegast benda lesend-
um á að fletta upp i laugardags-
biaðinu. Þar voru þjónustuaug-
ivsinear VIsis á blaðsiðu 38.
SÓLRÍS
ÍVESTRI Gréta Sigfúsdóttir A -
Gréta
Sigfúsdóttir
SÓL RÍS í VESTRI
Norður er nú uppeftir suður niðureftir, austur er til hægri og
vestur er til vinstri — eða öfugt. Svo er jafnvel komið að sól
ris i vestri. Þannig lýsir Gréta siðgæðisvitund okkar. Hún
sýnir okkur stéttamismun, vafasama viðskiptahætti, póli-
tiskan loddaraleik og siðspillingu.
Guðmundur
G. Hagalín
HAMINGJAN
Hamingjan er ekki alltaf otukt segir Guðmundur Hagalín.
I þessari nýju skáldsögu bætir hann enn við hinn sérstæða
persónuleika, sem hann hefur skapað á nær 60 ára ritferli.
Hér er það lítill og ljótur maður - Markús Móa-Móri. Það
er einmitt ljótleikinn sem ræður sköpum - gerir Markús
að miklum manni og hamingjumanni.
RAGHME
Spennandi saga úr bandarísku þjóðlífí í byrjun þessarar
aldar. Við kynnumst hetjum og úrhrökum, auðmönnum,
sósíalískum byltingarseggjum og kynþáttahatri. Viður-
kennd einhver merkasta skáldsaga síðustu ára.
Þýðandi Jóhann S. Hannesson.
Kári
Tryggvason
Kóri Tryggvason
RNMM
11181
ipi ° tti
BÖRNIN
og heimurinn þeirra
er úrval úr ýmsum barnabókum Kára Tryggvasonar og að
hluta smásögur, sem ekki hafa birzt áður. Efnið er valið
af höfundi sjálfum.
Skáldsagan Fifa er háðsk nútimasaga, ádeilusaga og ástar-
saga. Hún segir frá Fifu ráðherradóttur, sem neitar að gerast
þátttakandi i framakapphlaupi föður sins, og gerir yfirleitt aiit
andstætt þvi sem faðirinn hefði kosið.
ch
Almenna Bókafélagið
Austurstræti 18, Bolholti 6.
••r, 1970' slmi 3262«
Árni Ólo
skrifar um
huliðsheim
Setberg hefur gefið út bók-
ina Huliðheimur eftir Arna
Óla. Hann verður niræður á
næsta ári og telur þetta sið-
ustu bók sina en þvi skyldu
menn trúa varlega þvi að
hann er enn sprækur i besta
lagi.
Arni Óla hefur um langa
ævi kappkostað að kynna sér
sem best islensk þjóðfræði og
þó sérstaklega þann þátt
þeirra er fjallar um kynni
manna af ósýnilegum ver-
um. Hann hefur ritað um
þetta margar bækur og nú
siðast Huliðsheima. I þess-
ari bók leitast Árni óla m.a.
við að sýna hve náin tengsl
hafa verið milli trúar og hjá-
trúar. -KS.
MORÐ
Setberg hefur gefið út bókina
Sakamál 1081 eftir Karl Schutz,
þýska rannsóknarlögregiumann-
inn er starfaði hér á landi að
lausn afbrotamála.
1 þessari bók segir Karl Schutz
frá sérkennilegu afbrotamáli sem
gerðist i smábæ i Þýskalandi
fyrir nokkrum árum. Málið vakti
almenna undrun og reiði og var
lengi vel dularfullt og erfitt viður-
eignar.
Mánuðum saman unnu hundruö
lögreglumanna undir stjórn
Schutz að iausn málsins. Lesand-
inn fyigist með hinni flóknu rann-
sókn og hvernig Karl Schutz og
mönnum hans tókst að ieysa það.
Bókina þýðir Veturliði Gunnars-
son.