Vísir - 30.01.1978, Blaðsíða 5
VISIR
Mánudagur 30 . janúar 1978.
Kafsnjór í miðvesturfylkjum Bandaríkjanno:
B an da rik j a st j ór n
sendi með flugvélum 30
smálestir af matbjörg tii
Cincinnati-fylkis, þar
sem allt er á kafi i snjó.
Er það i fyrsta skipti i
sögu Bandarikjanna að
gripa verður til slíkra
matvælasendinga vegna
náttúruhamfara.
Matvælivoru orðin af skornum
skammti i Ohio eftir að fylkið nær
fennti i kaf i hriðarveðrinuj sið-
ustu viku, sem lamaði öll mið-
vesturfylkin.
Vélsleðar áttu að flytja mat-
björgina til heimila, sem einangr-
ast höfðu i ófærðinni. Er þetta
einkum þurrmjólk, egg, dósa-
matur, grænmeti og barnamatur.
Þúsundir manna sátu fastar i
björgunarskýlum hér og hvar i
Indiana og Ohio, en það eru þau
tvö fylki þar sem snjóþyngslin
eru mest. Snjómokstur var þá
hafinn og ruðningur vega, meðan
björgunarsveitir leituðu uppi
bágstatt fólk i fenntum bifreiðum.
Þjóðvarðliðið i Ohio taldi sig
hafa komið flestum þeim, sem
festust i bifreiðum sinum, i ör-
uggt skjól, og einbeitti sér i gær
að þvi að koma matvælum til ein-
angraðra heimila og sveitabæja.
Flytja þurfti i þyrlum sjúkt fólk,
sem komast þurfti á sjúkrahús.
Höfðu þyrlur flota og strandgæslu
farið yfir 300 slikar ferðir frá þvi
á föstudag.
Vegagerðarmenn í miðvestur-
fylkjunum töldu að það yrði ekki
fyrr en undir lok þessarar viku,
að búið yrði að opna alla vegi að
nýju. Aætlanir járnbrautalesta
eru komnar i lag að nýju og flug-
vellir hafa allir verið opnaöir.
Blindhríð í
Skotlandi
Versta
hríðarveð-
ur í 30 ár
Lestir fóru af teinun-
um, fólksbflar festust i
sköflum og einn maður
varð úti, þegar hann
yfirgaf bil sinn til þess
að ganga til byggða, i
einhverju versta
hríðarveðri sem komið
hefur i Skotlandi i þrjá-
tiu ár.
Þyrlur vörpuðu hlýjum
ábreiðum og matvælum til far-
þega járnbrautarlestar sem fór
af teinunum og festist i skafli.
Tókst siðar að flytja fólkið, um
70 manns, með þyrlunum til
byggða.
En skafrenningurinn var sli'k-
ur i gærkvöldi, að naumast sá
handa skil og snjórinn safnaðist
i allt að sex metra háa skafla.
Var óttast að margir ökumenn
mundusitjafastiri bilum sinum
næsta sólahringinn. Fólkið sem
fast var i lestinni varð að biða i
tuttugu klukkustundir, áður en
þvi var bjargað.
Viða urðu ferðamenn að leita
skjóls i heiðakofum, ef þeir ekki
náðu til næstu kráar.
Fannfergi var einnig mikið i
norðurhluta Wales og á
Norður-trlandi. Fjallgöngu-
maður fórst á laugardag i
N-Wales og tollþjónn drukknaði
þegar hann fauk i höfnina i ein-
um hafnarbæja N-Irlands.
Frá lestarráninu 1975. — Johannes Manusama sést fara fyrir
hópi s-mólúkkanskra hryðjuverkamanna, sem gefist hefur upp.
S-Mólákkar
skutu miffi-
göngumanninn
Tveir Suður-Mólúkkar skutu
og særðu i gærkvöldi. einn fram-
ámanna innflytjenda frá S-
Mólúkkaeyjum. — Maðurinn er
Theodorc Kuhuwael, 63 ára
kennari sem hafði milligöngu i
samningaviðræðum yf«* valda
við lestarræningjana i fyrra
sumar.
Árásarmennirnir skutu
Kuhuwael i bakiðog sluppu sið-
an á flótta.
Kuhuwael er hættur kennslu-
störfum en starfar sem ráðgjafi
hollenska menntamálaráðu-
neytisins. Hann var tilkvaddur
af stjórninni tvivegis i fyrra
sumar til þess að ræða við rót-
tæka hryðjuverkamenn frá Suð-
ur-Mólúkkaeyjum. — Arið 1975
var hann einnig milligöngu-
maður i viöræðum við lestar- og
mannræningja sem náðu ræðis-
mannskrifstofum Indónesiu i
Amsterdam á sitt vald.
Hann gegndi um hrið mennta-
málaráðherrastörfum i útlaga-
stjórn Jóhannesar Manusama,
leiðtogaþeirra40 þúsund Suður-
Mólúkka,sem flust hafa til Holl-
ands. Þeir tilheyra báðir hinum
hófsamari armi Mólúkka, se-
halda hópinn i Hollandi og berj-
ast fyrir sjálfstæði S-Mólúkka-
éyja og frelsun undan stjórn
Indónesiu
Kuhuwael var staddur á
heimili sinu i Van Blankenburg-
straat i Haag, þegar hann varð
fyrir árásinni i gærkvöldi. Gat
hann lýst árásarmönnunum
fyrir lögreglunni, aður en hann
var fluttur á sjúkrahús.
Grunur leikur á þvi að of-
stækisfullir landar hans hafi
staðið að árásinni. Kuhuwael
hefur nýlega verið skipaður i
nefnd, sem Indónesar ætla að
senda til S-Mólukkaeyja i næsta
mánuði til aö afla upplýsinga
fyrir væntanlegar viðræður um
framtiðarstjórn eyjanna. Dr. L.
Mantouw, einn af þrem öðrum
nefndarmönnum, hefur skýrt
frá þvi, að skotið hafi verið á
hús hans fyrir nokkrum vikum.
Bernstein
FLÓTTATILRAUN
ÚR FANGELSI
Flóttamennirnir tóku
með sér 12
gísla þar af 10 konur
Fangar í New Westminst-
er-fangelsinu i Bresku Kolumbiu
hafa á valdi sinu tólf gisla sem
þeir tóku i gær i tilraun til þess að
strjúka. Skiptu þeir i gær á tveim
konum og matvælum, tóbaki og
deyfandi lyfjum.
Fangarnir fimm tóku þrettán
gisla þar á meðal tiu konur sem
voru að heimsækja aðra fanga.
Slepptu þeir einni konunni i gær.
New Westminster-fangelsið er
öryggisfangelsi ætlað til geymslu
á hættulegustu refsiföngum og
strokgjörnum.
í óperu
Vínar
Hljómsveitarstjórinn og
tónskáldið Leonard Bernstein
stjórnaði i gær hljómsveit
Vinaróperunnar við flutning
„Fidelios” eftir Beethoven.
Flutningnum var sjón-
varpað beint og er það i fyrsta
sinn i átján ár sem sjónvarpaö
er frá óperunni. Hefur austur-
riska sjónvarpið staðið i
samningamakki við óperuna
siðustu tiu ár.
I hléi afhenti Bernstein 21,3
milljónir króna<sem hann gaf
Amnesty International/en það
var afrakstur af einni
hljómplötu hans.