Vísir - 30.01.1978, Blaðsíða 12
12
ÞJÓniJITA
PYItlR ÖtlU
DIIRIRUI
BIIA5KIPTI
9 28488
Opiö:
mánud.-föstud.
kl. 9-19,
laugard.
kl. 10-16.
600 fm. bjartur
og upphitaður,
mjög
skemmtilegur
sýningarsalur
ALLTAF PLÁSS
FYRIR BÍLINN
ÞINN.
ÞAÐ FARA
ALLIR ÁNÆCÐIR
FRÁ OKKUR
Ford dortina 1600 L
1974, ekinn 59 þús. km. 2ja dyra. Sjálfskiptur. —
Orange-litur. Verð kr. 1250 þús.
VW 1302, 1974
ekinn 50 þús. km. Bronsbrúnn. Skipti möguleg á
ódýrari bil i svipuðum stærðarflokki. Verð kr. 800
þús.
Sunbeam 1500, 1973
ekinn 80 þús. km. Blágrænn-Útvarp.Verð kr. 800
þús.
Toyota Mark II, 1973
rauður. Útvarp. Skipti möguleg á ódýrari bil.
Verð kr. 1540 bús.
Við seljum alla bila,
hvaöa nafni sem þeir nefnast:
Sífelld þjónusta — Sífelld viðskipti
Mánudagur 30
janúar 1978.
VÍSIR
Unnið að endurnýjun á grindverkinu við Laugaveg.
Ljósm.: JA
Oft ekið ó
grindverkin
Þessa dagana er unnið að
lagfæringu og endurnýjun á
grindverki meö fram Laugavegi
fyrir ofan Hlemm. Þaö hefur
nokkuð verið gagnrýnt, að grind-
verk þessarar gcrðar valdi mikl-
um skemmdum á bilum, sem
lenda á þeim.
— Akbrautirnar eru fyrir
bííana en gangbrautirnar fyrir
gangandi fólk, sagði Ingi Ú
Magnússon, gatnamálastjóri, i
morgun. Ég held, að það sé betra
að bilarnir stöðvist á grindverk-
inu en á gangandi vegfarendum.
Þessi grindverk hafa verið þarna
i 15 ár og á þeim tima hafa þau
verið mikið skemmd.
Aðaltilgangurinn með þeim er
að koma i veg fyrir að fólk sé
hlaupandi yfir götu á stóru svæði.
Við höfum svona grindverk viða i
borginni, t.d. á gatnamótunv til
þess að hindra að gangandi
vegfarendur hlaupi þvert yfir
gatnamót.
Með þessum grindverkum erum
við að reyna að 'fá fólk til að
ganga yfir götu á gangbrautunm.
—JEG
Slökkviliðið
kallað 502
sinnum út ó
síðasta úri
Slökkviliðið í Reykjavík var
kallaðút 502 sinnum á síðasta ári.
Við samanburð á útkallafjölda
áranna 1976 og 1977 kemur i ljós
að útköllum hefur fjölgað veru-
lega , eða um 150 — sem er 42%
fjölgun. Fjölgun þessi er ein-
göngu tvenns konar Það er fjölg-
un á útköllum án elds, þar er hún
25 og útköllum þar sem tjón varð
ekkert, en þar er hún 131. Samtals
eru þetta 156 útköll, þ.e. 6 fleiri en
fjölgunin milli ára. Það eru þvi 6
færri útköll árið 1977, þar sem
eitthvert tjón var, en árið 1976.
Fjöldi sjúkraflutninga hefur
haldist svo til óbreyttur allt frá
árinu 1973, eða um 10000 á ári. Ar-
ið 1976 voru sjúkraflutningar
10177. . _ea.
Ný verkefni fyrir V •;
niuára börnin:
Nú á að teikna
tillitssemina
Menntaniaiaráðuneytið og Um-
ferðarráð hafa efnt til teikni-
myndasamkeppni meðal 9 ára
barna í skólum landsins. Við-
fangsefnið er „Tillitssemi i um-
ferð” Tilgangurinn með keppni
þessari er að vekja nemendur til
umhugsunar um umferðina og til
þess að rif ja upp þá fræðslu sem
þeim hefur verið veitt. Börnin
ráöa sjálf hvaða myndgerð þau
nota.Sömu aðilar hafa einu sinni
áður beitt sér fyrir keppni af
þessu tagi. Það var i febrúar 1976.
Þá var þátttaka mjög göð, svo að
ástæða þótti til að endurtaka
keppnina.
Tiu verölaun eru i boði. Fyrstu
verðlaun enu Kodak EK8 mynda-
vél frá Hans Petersen. Þeir sem
hreppa annað, þriðja eða fjórða
sæti fá vasatölvu frá Skrifstofú-
vélum. Iþróttabúninga frá Sport-
vali fá þeir, sem lenda i fimmta
til tiunda sæti.
Skilafrestur skólanna er til 25.
febrúar og skal senda myndirnar
til Guðmundar Þorsteinssonar^
námsstjóra i umferðarfræðslu,
Hverfisgötu 113, 105 Reykjavik.
—jeg
Þessi mynd var tekin i öðru rallinu sem haldið hér á landi, en það var 1976.
Frá bifreiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur:
Undirbúningur Rallkeppninnar
vel á veg kominn
Undirbúningur rallkeppninnar i
febrúar næstkomandi er nú i full-
um gangi og eru menn þegar
farnir að skila þátttökuumsókn-
um fyrir keppnina. Fyrri frestur
til að skila umsóknum er til 8.
febrúar en eftir það hækkar þátt-
tökugjaldið til 15. feb.
Á mánudaginneftir viku verður
haldinn fundur að Hótel Loftleið-
um, þar sem fyrirkomulag
keppninnar og annað henni við-
komandi verður kynnt bæði fyrir
keppendum og öðru áhugafólki.
Rallökumenn, svo og margir aðr-
ir bila- og vélhjólaáhugamenn,
renna mjög hýru auga til frum-
varpsins sem nú liggur fyrir
alþingi varðandi þessar nýju i-
þróttagreinar hér á landi, og t.d.
með rallið getur þetta þýtt algjör
þáttaskil að þvi leyti að þá verður
hægt að fara að reikna með þátt-
töku útlendinga. Norðmenn hafa
t.d. sýnt mikinn áhuga á að taka
þátt i rallkeppni hér á landi og
telja fjarlægðina ekkert vanda-
mál.
Svipaðasögumá segja bæði um
Breta og Svia, en grundvöllurinn
að því er,að mögulegt sé að bjóöa
upp á hærri meðalhraða en hægt
hefur verið fram að þessu. Eitt
getum við tslendingar þó sagt, að
ekki vantar vegina, en það er eitt
af höfuðvandamálum Breta t.d. I
þessu sambandi er þó rétt að geta
þess til að forðast allan misskiln-
ing, að hækkun hámarkshraða er
i rallkeppni og annarri keppni,
aldrei leyfð nema á lei,ðum sem
eru lokaðar allri annarri umferð
þannigaðþettahefurengahættu i
för með sér gagnvart almennri
umferð. Þar sem rallkeppni er á
vegum innan um aðra umferð
gilda almenn umferðarlög. Lög-
gjöf af þessu tagi er það sem
vantað hefur hér á landi, bæði
hvað varðar öryggi keppenda og
almennings, og til að koma i veg
fyrir náttúruspjöll.
Til dæmis i sambandi við
öryggi keppenda hefur Bifreiða-
iþróttaklúbbur Reykjavikur verið
á undan löggjafanum, því að
klúbburinn er búinn að skylda
menn til að nota veltigrindur,
fjögurra punkta öryggisbelti,
hjálma, og slökkvitæki i rall-
keppni á hans vegum, svo að
að geta þess að reglur og þátt-
tökuumsóknir fyrir rallið i febrú-
ar er hægt að fá á miðvikudags-
kvöldum á skrifstofu BIKR að
Laugavegi 166.