Vísir - 30.01.1978, Side 24

Vísir - 30.01.1978, Side 24
V VÍSIR 'gffiift AVlú Opiö virka daga til kl. 22.00 Laugardaga kl. 10-12 Sunnudaga kl. 18-22 Smáauglýsing í Vísi er engincj^t^auglýsing AS17L Odíö virka daaa til kl. 22.00 ^BB I ■ Owvll Sjaldan gengið eins vel að manna bátana — Vísbending um þrengingar á vinnumarkaði Það hefur sjaldan gengið eins vel að manna bátana eins og nú i upphafi vertiðar. Visir hafði samband við Sigriði Friðriks- dóttur, starfsmann L.Í.Ú., er hefur haft milligöngu um ráðningar háseta á bát- ana. Sigriður sagði að nú væru frekar fáir bátar á lista hjá sér. Til samanburðar voru i fyrra að meðaltali á skrá 40-60 bátar þar sem vantaði einn eða fleiri há- seta, en i ár hefðu þeir aldrei farið yfir 20 og væru yfirleitt um 10. Þannig að útvegsmönnum gengi miklu betur að fá sjómenn nú en í fyrra. Sigriður sagði að á skrifstofu L.Í.Ú., hefðu ekki komið fleiri menn en undan farin ár að spyrj ast fyrir um pláss. Það hefði alltaf verið talsverð umferð þar, mest unglingsstrákar. Sigriður sagði ennfremur að nú hefðu fleiri bátar byrjað á linu en und- an farin ár og þvi þyrfti eitthvað’ færri menn á þær veiðar, en þegar bátarnir færu á net þyrfti ef til vill eitthvað fleiri menn á þá. Visir spurði Jónas Haraldsson, skrifstofustjóra L.Í.Ú., hvort hann kynni einhverja skýringu á þvi að betur gengi að fá menn á bátana nú en áður. Jónas sagði að sjómenn hefðu ekki meiri tekjur nú en áður og ekki væri meiri aflavon. Hins vegar hélt hann að atvinnuástand i landi réði miklu i þessu sam- bandi. Það væri farið að þrengj- ast á atvinnumarkaðnum i landi og þá sæktu menn frekar á sjó- inn. —KS Engar upp- lýsingar Sama leyndin hvílir enn yfir rannsókn Landsbankamáls- ins. í samtali við VIsii morgun sagði Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri, að það væri ekki á döfinni að sinni að gefa upplýsingar um rannsóknina. Allt frá þvi að rannsókn hófst hefur fjölmiðlum verið neitað um upplýsingar um gang mála og sagt að slikt gæti skaðað rannsóknina.-SG James Bellamy á Borginni Þeir sem leggja leiö sina á Borgina helgina 17. til 20. febrúar n.k. þurfa ekki að láta sér bregða þó þeir sjái James Bellamy úr sjónvarpsþáttunum Húsbændur og hjú stika þar um sali. Simon Williams, eins og hann heitir kemur hingað til lands á vegum Angliu og verð- ur gestur félagsins á árshátið þess, sem haldin verður þann 18. febrúar. Williams kemur hingað með konu sinni og dvelst hér á landi nokkra daga. Þegar Anglia hafði samband við Williams, sagði hann að hann hefði mikinn áhuga á þvi að koma hingað til lands og skoða sig um.-KP. Simon Williams I hlutverki James Bellamy i „Húsbænd- um og hjúum.” Allir vildu sjá hárið! Það komust færri að en vildu á mikla hárgreiðslusýningu, sem haldin var i gær i Sigtúni. Þar var sýnd nýjasta tiskan i hárgreiðslu og klippingu, bæði fyrir konur og karla. Myndina tók Björgvin Pálssonjjós- myndari áður en sýningin hófst, en þá voru sýningarstúlkur ióða önn að snyrta sig og undirbúa, áður en áhorfendur fengju að lita þær augum. Vonandi hafa þær Kristin og Sigrún ekki orðið fyrir vonbrigðum með undirtektir áhorfenda, þegar þær gengu um salinn. Nýir listar hjá krötum á Reykjanesi Nú um helgina efndu Alþýðu- flokksmenn i Kópavogi, Hafnar- firði og Keflavik til prófkjörs vegna væntanlegra bæjar- stjórnakosninga. í Kópavogi kusu 448. Guðmundur Oddsson, yfirkennari hlaut flest atkvæði i fyrsta sæti eða 281. Rannveig Guðmundsdóttir, húsmóðir fékk 277 atkvæði i annað sætið og SteingrfinurSteingrimsson mun skipa 3 sæti bæjarstjórnar- listans. 1 Hafnarfirði kusu 630, en i kosningunum til bæjarstjórnar 1973 fékk flokkurinn 906 at- kvæði. Hörður Zophaniasson hlaut fyrsta sætið með 330 at- kvæðum. 1 annað sætið hlaut Jón Bergsson kosningu með 287 atkvæðum. Lárus Guðjónsson fékk 247 atkvæði i þriðja sætið. Grétar Þorleifsson fékk 395 at- kvæði alls i fjórða sætið. Liklegt er að endurtalið verði i Hafnarfirði, þar sem aðeins eitt atkvæði skildi þá Lárus Guðjónsson og Guðna Kristjánsson að. Báðir buðu sig fram i 1., 2., og 3. sæti, þannig að sá sem tapar fellur út. 1 Keflavík greiddu 669 at- kvæði. Fyrsta sæti mun Ólafur Björnsson skipa, en hann hlaut 321 atkvæði. 1 annað sæti fékk Guðfinnur Sigurvinsson 534 at- kvæði og þriðja sætið mun Karl Steinar Guðnason skipa en hann fékk 385 atkvæði. —JEG Fjölmenni var saman komið á Hallærisplaninu á laugardag til að undirstrika kröfur sinar um verndun gamalla húsa i miðbæn- um. Að fundinum stóðu m.a. Torfusamtökin, og fbúasamtök vesturbæjar. Ávörp voru flutt og ýmis skem mtiatriði. Spilverk þjóðanna var á palli og flutti fólki boðskapsinn.Á bls. 7 er viðtal við þá arkitekta sem stóðu að undir- búningi að deiliskipulagi þvi sem skiptar skoðanir hafa verið um og Torfusamtökin hafa m.a. lýst óánægju sinni yfir. Visis-mynd B.P. Manni bjargað úr gúmbáti Skipverjar á Litlafelli björguðu á laugardagskvöldið manni úr gúmbjörgunabáti sem var á reki úti á Skerja- firðinum. Slysavarnafélagið, sem hélt fimmtiu ára afmæli sitt hátið- legt um hejgina, kom litið ná- lægt björgun mannsins. Klukkan 19.06 hringdi maður, sem séð hafði neyðarblys, i félagið, en þegar fara átti af stað með björgunarsveit var hringt aftur. Þá, eða klukkan 19.13, var það tilkynning frá Litlafellinu um að þeir hefðu komið auga á manninn. Maðurinn sem bjargaðist var einn i gúmbátnum, og hafði verið einn á fjögurra tonna báti, sem sökk. Honum varð ekki meint af volkinu, enda hafði hann verið i stuttan tima i gúmbátnum þegar honum var bjargaðvGA Ók niður um- ferðarmerki Ijósastaur og girðingu Mikill eltingarleikur varð um helgina eftir að ökumaður, réttindalaus og grunaður um ölvun, lenti i árekstri og stakk siðan af. Þetta gerðist aðfararnótt sunnudags. Lenti fyrrnefndur i árekstri við bil á mótum Suðurlandsbrautar og Skeiðarvogs en stakk af. Var hann eltur af lögreglumönnum og þegar leikurinn stóð sem hæst ók hann á ljósastaur úr tré, umferðarmerki og i gegn- um girðingu. Endaði eltingar- leikurinn með þvi að hann lenti á lögreglubil. Mun hann hafa valdið skemmdum á f jór- um bilum. Enginnslasaðist þó alvarlega þrátt fyrir allt. —EA „Siðan lækkun á smjör- verðinu kom til þann 18. janú- ar hafa selst um eitt hundrað tonn”, sagði Kristinn Guðna- son. sölustjóri hjá Mjólkur- samsölunni, isamtali við Visi i morgun. Nú eru þvi til um eitt þúsund tonn af smjöri i landinu, þvi að áður en niðurgreiðslur voru auknar voru til um ellefu hundruð tonn. Að sögn Kristins er venjuleg smjörneysla á þessum tíma um 30 til 40 tonn en eins og áður segir þá hafa selst um eitt hundrað tonn af smjöri frá þvi verðið lækkaði úr 1342 krónur i 880 krónur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.