Vísir - 31.01.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 31.01.1978, Blaðsíða 2
2 m Þriðjudagur 31. janúar 1978. VXSJH c j Vísir spyr í Keflavík: Hvernig líkaði þér sjón- varpsleikritið Póker? Friðrik Óskarsson, sjómaður: Ágætt en nokkuð langdregið. Sigurjón Jónsson, verkstjóri: Agætt — stórfint. Magnús Jóhannsson, leigubii- stjóri:Nokkuð góð lýsing á þvi sem var, en þó má segja að það eimi nokkuð eftir af þessu ennþá. Jón B. Georgsson, leigubil- stjóri: Myndin var nokkuð ■ góð, en hefði getað verið betri. ■ Stjórn Herjólfs hefur nú ákveðið að stefna þeim sem smiðuðu skipið og krefst 35 milljón króna skaðabóta. Norski byggingaraðilinn neitar að borga Stjórn Herjólfs hf. í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að höfða skaða- bótamál gegn Sterkoder, norsku skipasmíðastöð- inni/ er smíðaði Vest- mannaeyjaferjuna Herj- ólf/ vegna framleiðslu- galla á skipinu. Bótakröf- ur nema um 35 milljónum islenskra króna. „Gallarnir komu I Ijós þeg- ar ábyrgðaskoðun skipsins var tekin út i Reykjavik og var þá viðstaddur maður frá Norska Veritas. Þetta kemur fram eftir sex mánaða reynslutimann”, sagði Ólafur Runólfsson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs hf., i samtali við Visi. ólafur sagði að það sem aðallega hefði verið að, hefði verið bognir öxlar og hefði þurft að skipta um öxul 2. og 3. ,,Aður höfðu við látið styrkja skipið að aftan vegna titrings sem var i þvi”, sagði ólafur . ,,en nú er komið i ljós að þessi titringur stafaði af bognu öxlunum. Við urðum fyrir tilfinnanlegu tjóni vegna þessa þvi að þegar við gerð fór fram var yfirvinnubann og töfðumst við i 10 vikur vegna þess, Styrkingin að aftan kost- aði okkur um 20 milljónir.” Sagði Ólafur að Sterkoder heföi verið búið að samþykkja að greiða kostnað vegna þeirra galla á skipinu sem umboðs- maður frá Norske Veritas skrif- aði upp á. En þegar þeir hefðu fengiðreikninginn i hendur neit- uðu þeir að greiða hann og hafa ekki komið meö neitt sáttatil- boð. ólafur sagði ennfremur að bótakröfurnar byggðust ein- göngu á kostnaði vegna öxl- anna, en styrkingin að aftan og uppihaldið vegna viðgerðanna væri ekki inni i þeim. „Þvi mið- ur verður málið rekið i Noregi”, sagði i ólafur og er við búið að bað taki langan tlma, þannig að bæturnar verða ekki verðmiklar ef þær koma þá nokkurn tíma”. Jón Hjálmtýsdóttir, húsmóð- ir: Ágæt, en hefði mátt vera lengri. Prófkjörin byrjuð að slappast Þá er mesti skjálftinn að hlaupa úr prófkjörunum, þessu nýja leikfangi kjósenda og stjórnm álaf lokka, og sýna heildartölur prófkjörs Alþýðu- flokksins, vegna bæjarstjórnar- kosninga f I-Iafnarfirði og Kópa- vogi, að ástandið er að verða eðlilegt. Rúm sex hundruð greiddu atkvæði i Hafnarfirði og rúm fjögur hundruð I Kópavogi. Það eru skiljaniegar tölur þegar Alþýðuflokkurinn er annars vegar, og ólíkt líkari Alþýðu- fiokknum en heildaratkvæðatöl- ur i prófkjöri fiokksins i Reykja- vík vegna borgarstjórnarkosn- inganna fyrr i vetur. Þá eru horfur á þvi að mesta ólgan sé að fara úr Fram- sóknarmönnum, sumum, i Reykjavik vegna úrslita I próf- kjörum fiokksins um fyrri helgi. Varð þó enginn friður um niðurstöður fyrr en kaliað hafði verið til sérhæft lið, bókbindar- ar úr Edduprentsmiðju til að telja atkvæði i þriðja sinn sl. laugardag. Kom þá i Ijós að niðurstöður af fyrri talningum voru nokkurn veginn réttar, og engin breyting varð á uppröðun iistanna. Núverandi stjórn fuii- trúaráðs fiokksins, sem ætia má að hafi verið á móti niðurstöð- um prófkjörsins, fær því ekki tækifæri til að kjósa upp- stillingarnefnd, og verður ein- faldlega að sætta sig við að hafa tapað. Þar með er brostin for- sendan fyrir áhrifum þeirra Kristins Finnbogasonar og Jóns Aðalsteins Jónassonar á flokk- inn i Reykjavik. ólafur Jó- hannesson, formaður flokksins, lýsti því yfir i sjónvarpi, um það bil sem átti að fara að telja at- kvæðin i þriðja sinn, að engu skipti hverjir ynnu prófkjör, aftur á móti sýndi atkvæða- magnið að flokkurinn myndi koma sterkur út úr kosningum. búninginn. Glotta þeir félagar I laumi og telja að vandfundnir verði menn til að útvega flokkn- um þær tiu milljónir, sem taliö er að kosningarnar i Reykjavik niuni kosta flokkinn. Þrátt fyrir þetta er ekki ástæða til annars en ætla að Einar Ágústsson, utanrikisráð- Horfur eru á þvi aö Jón Aðal- steinn, núverandi formaður fulltrúaráðsins, biðjist undan endurkosningu i vor og láti full- trúaráðinu eftir að kjósa nýja stjórn, sem meira er við hæfi úrslita prófkjörsins. Kemur þá til kasta hinnar nýju stjórnar að afla fjár i kosningasjóð, en einn helsti styrkur þeirra Krist- ins Finnbogasonar og Jóns Aðalsteins var, að hvorki skorti flokkinn fjármagn eða bila þeg- ar þeir sáu um kosningaundir- herra, muni draga töluvert af atkvæðum til flokksins eins og venjulega. Sigur hans I próf- kjörinu bendir til þess að fylgi hans I flokknum I Reykjavik sé óskert, og munu þá ekki ráða úrslitum fjárframlög og bila- floti heldur vinsældir Einars. Þótt formaöur flokksins telji litlu máli skipta hvaða menn sigra I prófkjörum, en sjálfur fékk hann Bresnéfs-úrslit I Norðurlandskjördæmi vestra, þá má telja nokkurn veginn vist, að fólk mun fremur kjósa Einar Agústsson en Framsóknar- flokkinn sem slikan á kosninga- daginn. Við þriðju talningu á laugar- daginn fóru leikar svo, að Kristján Benediktsson bætti við sig hundrað atkvæðum. Fer hann samkvæmt þvi að verða með allra vinsælustu mönnum i flokknum hér i borginni. Kristj- an er vel að þessum vinsældum kominn, enda traustur og hæg- látur maður, sem vinnur flokki sinum eins og hann getur. Þriðji vinsælasti maður flokksins er án efa Þórarinn Þórarinsson, þótt hann fengi ekki nóg af at- kvæðum til að komast i fyrsta eða annað sætið. Það vann bara enginn fyrir hann. Franskir stjórnmálamenn eiga sér gjarnan samastað á hótelum. Og stjórnmálamenn Framsóknarflokksins hafa gjarnan farið að dæmi þeirra. t einn tima kom Klúbburinn mik- ið við sögu. En nú er Guð- mundur G. Þórarinsson kominn I baráttusætið. Hann var mikið á móti Klúbbnum og þeim hópi, sem þar stundaði átveislur og drykkjur stórar. Samt virðist Guðmunur gera sér grein fyrir þvi að stjórnmálamaður i Framsóknarflokknum verður að hafa aðstöðu til að vökva sálarblóm stuðningsmanna. Hann hefur þvi tekið upp póli- tiskt aðsetur á óðali, og er nú eftir að sjá hvort það veitinga- hús fær s éra fgreiös lur hjá Afengisverslun rikisins. Svarthöfði

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.