Vísir - 31.01.1978, Blaðsíða 23

Vísir - 31.01.1978, Blaðsíða 23
23 VISIR Þriðjudagur 31. janúar 1978. Leikir sem vort eiga heima í bílskúr Blaðinu hefur borist bréf frá Sveini Einarssyni, þjóðleikhús- stjóra, varðandi ummæli Krist- jáns Jóhannssonar hér i Visi síö- astliðinn þriðjudag. Bréf Sveins fer hér á eftir: „Mér þætti vænt um ef þér kæmuð á framfæri eftirfarandi fyrirspurn til ungs söngvara, Kristjáns Jóhannssonar, en við hann birtist viðtal i heiðruðu blaði yðar i gær undir fyrirsögninni: „Þú skalt þegja, en syngja þvi meira”, sem mérskjlst einhver kunnugur hafi sagt við hann. Undirritaður hefur haft spurnir af þessum unga söngvara og vitað til þess hann væri i námi og þætti óvenjuefnilegur. Er gott til þess að vita að frumraun hans á söng- sviði fyri norðan virðist bera þvi vitni, að honum ætli að nýtast nám sitt. t viðtalinu eru eftirfarandi um- mæli, sem undirrituðum þætti eðlilegt, að hinn ungi söngvari út- skýrði nánar: „óperur hafa veriö vel sóttar, þegar til þeirra hefur veriö stofnað hér heima, það vita allir. En þvi miður viröist oft þannig á málum haldið hjá Þjóð- leikhúsinu, að þangað komi stundum leikir, sem vart eiga heima i bilskúr”. Með þökk fyrir birtinguna Sveinn Einarsson. „Það liggja vissar ástæður til þessara ummæla,” sagði Krist- ján Jóhannssonar er við bárum undir hann efni bréfsins. ,,Ég tel hins vegar ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál. Þið megið aftur á móti geta þess að ég tel Þjóðleikhúsið eigi að vera virðulegasta menningarstofnun landsins, og sem slikt ætti það að sýna verk eftir þekkta og viður- kennda meistara. Þjóðleikhúsið á ekki að vera staður fyrir byrjend- ur og minni spámenn. Al B Hft B g urtollar á Ijós og sportvörum 9908-7153 hringdi: Ég er mjög óanægður með toll af sport- og ljósmyndavörum hér á landi. Ég var I Vestur- Þýskalandi fyrir stuttu. Þar keypti ég mér nokkuð vandaða 35 mm ljósmyndavél. Vélin kostaði 4000 kr. Hér kostar hún vart undir 70.000 kr. út úr búð. Nú um daginn ætlaöi ég að kaupa eilifðarflass á vélina. Hér kosta þau frá 8000 til 16.000 kr. Úti gat maður keypt þau fyrir svona 1.500 kr. Ekki tók svo betra við þegar ég ætlaði aö fá mér aðdráttarlinsu. Hún átti að kosta 23.000 kr. en úti var verðið 1800 til 1900 kr. Ja, ef þetta er ekki mafia þá veit ég ekki hvað hægt er að kalla mafiu. Ég er einnig veiðiáhugamað- ur og þess vegna kikti ég á verð- lag á rifflum. Og þvilikur verð- munur! Góðir 222 kalibera riflar, framleiddir i Vestur- Þýskalandi kosta um 6000 kr. Það var svo annað eftir þessu, hvort heldur það var verð á skotum eða öðrum hlutum. Bjór i hverri búð Fyrst ég er byrjaður á þessu á annað borð, þá má ég til með að minnastá bjórinn. Þarna úti gat maður labbað inn i nánast hvaða verslun sem var og keypt bjór eða vin. Sem dæmi um verðlagið get ég nefnt að létt koniak kostaði 400 kr. Hér heima er maður aftur á móti hreinlega neyddur til að drekka þennan sterka fjanda. Þá væri nú betra að geta fengið léttan og hollan bjór. Ég sagði hollan, þvi bjórinn er hollur og góður. Nei, þetta er sko mafia i verki. vism á fuiui rm Ég undirritaður óska að gerast áskrifandi að Visi. Siðumúla 8 P.O.Box 1426 101 Reykjavik SÍMI 86611 Nafn Heimilisfang Syeitaríél./Sýsla Simi Nafn-nr. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 62. 64. og 66. tbl. Lögbirtingablaðs 1977 á Þverholti 2, þingl. eign Dagblaðsins hf. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík og Lifeyrissj. verslunarmanna á eigninni sjálfri fimmtudag 2. febrúar 1978 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eignunum Birkilundur 75, 77, 78 og 79, Mosfellshreppi, þingl. eign Guðrúnar A. Ellingsen, fer fram á eignunum sjálfum föstudaginn 3. febr. 1978, kl. 4.00 e.h. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 67. 71. og 73. tölublaði Lögbirtingablaðs- íns 1977 á eigninni Byggöarholti 7, Mosfellshreppi, þingl. eign Arna V. Atlasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar i Reykjavík, á eigninni sjálfri föstudaginn 3. febr 1978 kl. 3.00 e.h. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 67. 71. og 73. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1977 á eigninni Akurholti 2, Mosfellshreppi, þingl. eign Einars Friðberg Kjartanssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik, á eigninni sjálfri föstudag- inn 3. febr. 1978 kl. 3.30 e.h. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta i Æsufelli 4, þingl. eign Amunda Amundasonar fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 2. febrúar 1978 kl. 15.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 53. 57. og 61. tölublaði Lögbirtingablaös- ins 1977 á eigninni Dvergholti 8, neðri hæö, Mosfellshreppi, þingl. eign Helga Arnasonar, fer fram eftir kröfu Inn- heimtu ríkissjóös, á eigninni sjálfri föstudaginn 3. febr. 1978 kl. 2.30 e.h. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 67. 71. og 73. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1977 á eigninni Dvergholt 8, efri hæð, Mosfellshreppi, þingi.eign Arna Arnasonar fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóös, á eigninni sjálfri föstudaginn 3. febr. 1978 kl. 2.00 e.h. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu Nauðungaruppboð annaö og siðasta á Þingholtsstræti 5, þingl. eign isafoldar- prentsmiðju hf. fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 2. febrúar 1978 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. t Þökkum innilega auðsýnda vinsemd og samúð við andlát og útför eiginkonu minn- ar SIGRÍÐAR MARÍUSDÓTTUR THORSTENSEN f.h. vandamanna Ekhardt Thorstensen

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.