Vísir - 31.01.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 31.01.1978, Blaðsíða 4
Umsjón: Guðmundur Pétursson Bílasalan Höíðatúni 10 s.18881&18870 FORSTOFUSPEGLAR - Svefnherbergisspeglar i Ijósum og dökkum við. 8 cyl, sjálfskiptur, svartur, útvarp, veltistýri Verð 2,7 millj. Alls kyns skipti. Ætlarðu að kaupa? Þarftu að selja? Viltu skipta? Þá komdu til okkar. ' Höfum fjölda bifreiða fyrir skuldabréf. ATH. Opið alla daga frá 9-8. Benz 280 S sjálfskiptur með vökvastýri og powerbremsum. Rafdrifinn, topplúga, ný upptekin vél, ný dekk, hvitur. Verð kr. 1900 þús. Citroen Special árg. 71, Blár, útvarp. Alls kyns skipti.Verð ca. 1 millj. Cortina árg. 74 1600, sjálfskiptur, blár, snjódekk, sumardekk, ekinn 52 þús. Verð kr. 1400 þús. m ______ Þriðjudagur 31. janúar 1978. vism Njósna- hnettir Sovéskir verkfræöingar viö stjórnborð tölvunnar, sem stýrir Cosmos-gervihnetti. Sovétmenn hafa skot- ið alls sextán njósna- hnöttum á loft af þeirri gerð, sem hrapaði til jarðar i norðvestur auðn- um Kanada i byrjun sið- ustu viku. Allir hafa haft það verkefni að fylgjast með höfunum úr til- tölulega litilli hæð eftir þvi sem gerist með gervihnetti, þar sem þeir svifa á brautum sinum umhverfis jörð- ina. Þeim fyrsta þessara kjarn- orkudrifnu njósnahnatta, Cos- mos-198, var skotið á loft 1967. Sá siðasti, Cosmos-954, fór á loft 18. september siðasta. Cosmos-954 brást, þegar eldflaugarhreyfill, sem stýra átti honum inn á rétta braut, bilaði. Vék hann út af réttri stefnu á leið aftur til jarðar. Sú skekkja leiddi til þess að hann eyðilagðist á leiðinni i gegnum gufuhvolfið og i brotlendingunni I Kanada. Þessir njósnahnettir hafa verið yfirmönnum bandariska flotans mikið áhyggjuefni. Þeir eru gagngert sendir upp til höfuðs stolti flotans, kjarnorkukafbátun- um með Polaris- og Poseidonflug- skeytunum. í striðsleikjum hernaðarsér- fræðinganna leggja þér sovéskuu höfuðáherslu á að geta eyðilagt strax i upphafi, ef strið brytist út, þessa kjarnorkuknúnu kafbáta. Tveir þriðju bandarisku kafbát- anna (25-30) eru hafðir til taks i einu. Bandarisku flotasérfræð- ingunum hefur verið það ljóst, að Sovétmenn hafa komið sér upp njósnakerfi, sem miðar að þvi að hafa uppi á kjarnorkuknúnum kafbátum, fylgjast með þeim og eyðileggja þá, ef til kæmi. Útbúnaður kjarnorkukafbáta Rússa af Viktorgerð og útbúnaður flugmóðurskipsins Kiev (sem aðallega heldur sig á Miðjarðar- hafinu) þykir við það miðaður, að fyljga eftir upplýsingum frá rad- ar-gervihnöttunum og ráðast til atlögu gegn bandarisku kafbát- unum. Þessi samvirki útbúnaður kann að vera orðinn svo fullkominn, að Sovétmönnum sé mögulegt að staðsetja bandarisku kjarnorku- kafbátana nokkurn veginn, þar sem þeir eiga að leynast i djúp- inu, eða að minnsta kosti af- marka svæðið upp á nokkur hundruð ferkilómetra. Regndrifa af flugskeytum á svæðið sæi um afganginn. Bandarikin eiga 41 kjarnorku- kafbát, sem skjóta langdrægum flugskeytum. 1 þeim eru tveir þriðju birgða kjarnorkuhlaðinna flugskeyta USA, og vonlegt, að flotasérfræðingunum standi stugguraf þvi, að Sovétmenn hafi hugsanlega ráb til þess að eyði- leggja þessi mikilvægu vopn i fyrstu atrennu striðsbyrjunar. Til að byrja með var kviða þeirra tekið með vantrú. Það þótti með ólikindum, að Sovét- menn hefðu til að bera þá tækni, sem þyrfti til að útbúa njósna- hnött með slfkan radar. Vandinn væri of mikill vegna raforkuþarf- ar sliks radarbúnaðar. En smám saman hafa runnið tvær grimur á menn, eftir þvi sem Rússar hafa skotið fleiri slikum gervihnöttum á loft. Bandarikjamenn eiga ekki njósnahnetti, sem jafnast á við Cosmos-954. Eiga þó Rússar yfir 60 kafbáta, sem geta skotið lang- drægum flugskeytum með kjarnaoddum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.