Vísir - 07.03.1978, Blaðsíða 24
VÍSIR
Mál Hauks Heiðars
Fjórir hestar
brunnu inni
Fjórir hestar brunnu inni þegar eldur kom upp I
hesthúsi viö Akureyri i nótt. Tilkynnt var um eidinn
rétt eftir klukkan hálf eitt i nótt.
Eigandi hestanna var
þá á staðnum, en hest-
húsið er við Breiðholt
við Miðhúsaklappir,
rétt ofan við bæinn. Eig-
andinn hafði verið að
þfða vatn með gas-
lampa, þegar eldurinn
kom upp, og er talið að
logi úr gaslampanum
hafi verið orsök eldsins.
Eigandanum tókst að
bjarga 6 af tiu hestum
sem voru i húsinu. Fjór-
um gat hann hins vegar
ekki bjargað. Það voru
þrjú folöld og eitt fjög-
urra vetra hross. Til- -
tölulega fljótt mun hafa
gengið að slökkva eld-
inn, en hesthúsið er talið
ónýtt eftir.
-EA
Engm ný gegn i
tve mánuði
„Málið var fullrannsakað og tilbúið til ákæru þann
31. janúar. Það hefur verið beitt röngum rannsóknar-
aðferðum og dómarinn hefur ekki ehidur gætt þeirrar
skyldu sem iög bjóða að hann geri og þess vegna er
ing sakadóms fyrir
framlengingu gæsluvarð-
haldsins, hafði Visis sam-
band við Svein.
þetta kært. Úrsiit þessa máls varða ekki Hauk Heiðar
einan heldur allan almenning”, sagði Sveinn Snorra-
son hrl., réttargæslumaður Hauks Heiðars, i samtali
við Visi i morgun.
Sveinn kærði úrskurð
sakadóms,um áframhald
á gæsluvarðhaldi Hauks
Heiðars, til Hæstaréttar
og verður kæran tekin þar
fyrir i dag eða á morgun.
Þar sem eitt dagblaðanna
birti i morgun rökstuðn-
„Samkvæmt 1. grein 40.
málsgreinar laga er það
grundvallaratriði i opin-
berum rétti að sönnunar-
byrði hvilir á ákæruvald-
inu. í þessu máli hafa
engin sönnunargögn
komið fram nema þau
sem Haukur hefur bent
á og þau voru öll
komin fram 11. janúar.
Rannsóknarlögreglan
stóð i vegi fyrir þvi i heil-
an mánuð að féð frá Sviss
væri flutt i vörslu Lands-
bankans”. sagði Sveinn
Snorrason.
I
i
I
S
l
«
!
I
I
I
I
I
I
I
I
—SG
Prófkjör Sjálfstœðisflokksins í Reykjavfik um helgina:
-J
Nýir hjá Framsókn
Sigurður Óli Brynjólfsson, kennari, hlaut 348 at-
kvæði i fyrsta sæti i skoðanakönnun Framsóknar-
flokksins á Akureyri til bæjarstjórnar, sem fór fram
3.-5. mars. Samanlagt hlaut Siguröur 658 atkvæði.
Tryggvi Gislason
skólameistari, hlaut 228
atkvæði i fyrsta og ann-
að sætið, en samanlagt
564 atkvæði'.
1 þriðja sæti varð Sig-
urður Jóhannesson,
framkvæmdastjóri,
með 320 atkvæði i
fyrsta, annað og þriðja
sæti, en samanlagt
hlaut hann 476 atkvæði.
Jóhannes Sigvalda-
son, ráðunautur, hlaut
250 atkvæði i fyrsta til
fjórða sæti, en saman-
lagt 370 atkvæði. Hann
hlaut fjórða sætið.
Þrir menn sitja i
bæ jarstjórn fyrir
Framsóknarflokkinn á
Akureyri. Þeir eru:
Sigurður Öli Brynjólfs-
son, Stefán Reykjalin,
sem er forseti bæjar-
stjórnar, og Valur Arn-
þórsson. Tveir hinir sið-
asttöldu gáfu ekki kost á
sér til skoðanakönnun-
arinnar.
Alls kusu 830 manns,
en það er um 50 prósent
af þvi atkvæðamagni
sem flokkurinn fékk i
siðustu kosningum árið
1974. -KP
Sjö borgarfwlltrúar
náðu bindandi kjöri
Sjö borgarfulltrúar, með
Birgi isleif Gunnarsson
borgarstjóra i fararbroddi,
náðu bindandi kosningu i
prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins I Reykjavík um helgina.
Einn borgarfulltrúi, Elln
Pálmadóttir, sem lenti i átt-
unda sætinu, náði ekki bind-
andi kosningu, og annar,
Ragnar Júlfusson, féll niður i
10. sæti.
Af borgarfulltrúunum
bætti Davið Oddsson mest
stöðu sina frá siðasta próf-
kjöri, þvi aðhann hækkaðnúr
tiunda sæti þá,i fjórða sæti
nú.
Atkvæði greiddu 10.833,
sem er 40,2% af atkvæðum
flokksins i siðustu kosning-
Prófkjör Sjálfstœðismanna á Akureyri:
Það viöraöi vel á Akureyri um helgina og þar er hvitt yfir að lita. Ovenju mikill snjór
er i bænum og þarf ekki aö kvarta yfir skiöafærinu þessa dagana. Vfsismynd:
Matthias Gestsson.
Oisli efstwr
Talningu atkvæða i prófkjöri Sjálfstæðismanna á Akureyri
lauk klukkan f jögur i nótt. Alls tóku 1455 manns þátt i kjörinu,
sem er bindandi fyrir fjögur efstu sætin.
Gisli Jónsson, mennta-
skólakennari, hlaut 1209
atkvæði i fyrsta sætið. í
öðru sæti varð Sigurður J.
Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri, með 875
atkvæði. Sigurður
Hannesson, bygginga-
meistari, varð i þriðja
sæti með 862 atkvæði,
Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri, i fjórða
sæti með 756 atkvæði og
Tryggvi Pálsson, fram-
kvæmdastjóri, i fimmta
sæti með 674 atkvæði. 1
sjötta sæti varð Ingi Þór
Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri, með 573
atkvæði.
Gisli Jónsson, Sigurður
J. Sigurðsson og Sigurður
Hannesson skipuðu þrjú
efstu sæti Sjálfstæðis-
manna i siðustu kosning-
um. Jón G. Sólnes, al-
þingismaður, og Bjarni
Rafnar, læknir, sem skij>
uðu fjórða og fimmta sæt-
ið i siðustu kosningum
gáfu ekki kost á sér.
1 siðustu kosningum ár-
ið 1974 kusu 923 i próf-
kjöri, en að þessu sinni
tóku 1455 manns þátt i
kosningunni, eins og fyrr
segir.
-KP
um. Auðir og ógildir seðlar
voru 198.
Úrslitin i 13 efstu sætunum
urðu annars sem hér segir:
1. Birgir tsleifur
Gunnarsson, borgarstjóri,
með 9.305 atkvæði eða 85.9%.
Arið 1974 fékk hann 7776
atkvæði eða 91.8% og hlaut
þá einnig efsta sætið.
2. ólafur B. Thors.borgar-
fulltrúi, með 7.755 atkvæði
eða 71.6%. Arið 1974 fékk
hann 6.509 atkvæði, eða
76.8%, og lenti i þriðja sæti.
3. Albert Guðmundsson,
borgarfulltrúi, með 7.559
atkvæði eða 69.8% Arið 1974
hlaut hann 6.580 atkvæði eða
77.7% og hlaut annað sætið.
4. Davið Oddsson, bórgar-
fulltrúi, með 6.628 atkvæði
eða 61.2%. Hann hlaut áriö
1974 2.811 atkvæði eða 33.2%
og lenti i tiunda sæti.
5. Magnús L. Sveinsson,
borgarfulltrúi, með 5JB84
atkvæði eða 54.3%. Árið 1974
fékk hann 3.587 atkvæði eða
42.3% og lenti i sjötta sæti.
6. Páll Gislason, borgar-
fulltrúi, með 5881 atkvæði
eða 54.3%. Arið 1974 fékk
hann 3.267 atkvæði eða 38.5%
og varð i niunda sæti.
7. Markús örn Antonsson,
borgarfulltrúi, með 5.650
atkvæði eða 52.2%. Arið 1974
hlaut hann 4.771 atkvæði eða
56.3% og hlaut fjórða sætið.
Allir þeir, sem hér hafa
verið taldir, fengu yfir 50%
greiddra atkvæða, og eru úr-
slitin þvi bindandi um þau
sæti.
1 næstu sætum eru:
8. Elin Pálmadóttir,
borgarfulltrúi, með 4.690
atkvæði eða 43.3%. Árið 1974
hlaut hún 4.420 atkvæði eða
52.2% og hlaut fimmta sætið.
9. Sigurjón Fjeldsted
skólastjóri og sjónvarpsþul-
ur, með 4.336 atkvæði eða
40,0%. Hann tók ekki þátt i
prófkjörinu 1974.
Sjálfstæðisflokkurinn á nú
niu borgarfulltrúa I
Reykjavik, og hefur þvi
Sigurjón lent í baráttusæt-
inu, en eins og áður segir eru
úrslitin i áttunda og níunda
sætinu ekki bindandi.
10. Ragnar Júlfusson borg-
arfulltrúi, með 4.239 atkvæði
eða 39.1%. Arið 1974 fékk
hann 3.491 atkvæði eða 41.2%
og varð i sjöunda sæti.
11. Hilmar Guðlaugsson,
varaborgarfulltrúi, með
3.490 atkvæði eða 32.2%. Árið
1974hlaut hann 1604 atkvæði
eða 18.9% og lenti þá i 15
sæti.
12. Bessi Jóhannsdótlir,
varaborgarfulltrúi, með
3.471atkvæði eða 32.0%. Arið
1974 fékk hún 1.288 atkvæði
eða 15.2% og varð i 17. sæti.
13. Margrét Einarsdóttir,
varaborgarfulltrúi, með
2.983 atkvæði eða 27,5%. Arið
1974 hlaut hún 2.618 atkvæði
eða 30.9% og lenti i 12. sæti.
—ESJ.
Prófkjör Sjálfstœðismanna á Seltjarnarnes
Sigurgeir bœjar-
stjóri hlaut 90%
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri varð I efsta sæti i prófkjöri Sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi, hlaut 87,71 prósent atkvæða. Talningu lauk laust eftir miðnættiö í
nótt. Alls greiddu 750 manns atkvæði.
Sigurgeir hlaut 408 atkvæði f fyrsta sæti, 95 f annað sæti, 40 í þriðja sætið og 60 í
fjórða til sjöunda sætið. Alls hlaut hann 603 atkvæöi.
Magnús Erlendsson
varð i öðru sæti, hlaut
60.36 prósent atkvæða.
Hann hlaut 108 atkvæði i
fyrsta sætið, 169 i annað
sætið, eða samtals 277 at-
kvæði i tvö efstu sætin.
Samtals hlaut hann 400
atkvæði.
Snæbjörn Ásgeirsson
hlaut 62.14 prósent at-
kvæða, eða 69 atkvæði i
fyrsta sæti, 142 i annað
sæti og 108 i þriðja sæti.
Samtals 319 atkvæði i
þrjú efstu sætin. Hann
hlaut samtals 453
atkvæði.
Július Sólnes varð i
fjórða sæti, með 52.13
prósent greiddra at-
kvæða. Július hlaut 33
atkvæði i fyrsta sæti, 70 i
annað, 85 i þriðja og 75 i
fjórða sætið, eða alls 263
atkvæði i fjögur efstu sæt-
in. Hann hlaut alls 380 at-
kvæði.
Gunnar Magnússon
varð i fimmta sæti og
hlaut alls 280 atkvæði i
fimm efstu sætin, en sam-
tals 332 atkvæði.
Jón Gunnlaugsson varð
i sjötta sæti — með 314
atkvæði i fyrstu sex sætin.
Samtals hlaut hann 340
atkvæði
I siðustu bæjarstjórn-
arkosningum á Seltjarn-
arnesi hlaut Sjálfstæðis-
flokkurinn 766 atkvæði og
fimm bæjarfulltrúa af
sjö.
-KP
AEG-TELEFUNKEN litsjórivarpstoeki
r r
DREGIÐ20.APRIL
SMAAUCLYSINGASIMINN ER 86611
Smáauglýsingamóttaka
alla virka daga frá 9-22.
Laugardaga frá 9-15 og
sunnudaga frá 18-22. '