Vísir - 16.03.1978, Page 23
visra Fimmtudagur 16. mars 1978
Framsóknarflokkurinn:
Nokkrir af fulltrúum á þinginu en þaö var mjög fjölmennt.eitthvaö á fimmta hundrað fulltrúar.
Vísismynd BP
Framkvœmdastjórn og blað-
stjórn Tímans endurkjörnar
— vilja lœkka vexti- efla jöfnunarsjóði- hallalausan ríkisbúskop
Framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins og blaöstjórn
timans voru endurkjörnar á
fundi miðstjórnar Framsókn-
arflokksins i gær.
Ólafur Jóhannesson var end-
urkjörinn formaður flokksins og
Einar Agústsson varaformað-
ur. Steingrimur Hermannsson
var endurkjörinn ritari og Tóm-
as Árnason gjaldkeri. Þeir eru
sjálfkjörnir i Framkvæmda-
stjórn ásamt formanni SUF
Magnúsi Ólafssyni. Aðrir i
framkvæmdastjórn eru Egg-
ert Jóhannesson, Erlendur Ein-
arsson, Eysteinn Jónsson,
Guðmundur G. Þórarinsson,
Hákon Sigurgrimsson, Helgi
Bergs, Jónas Jónsson,
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir
og Þórarinn Þórarinsson.
I blaösstjórn Timans voru
endurkjörnir: Einar Agústsson,
Eysteinn Jónsson, Erlendur
Einarsson, Jón Kjartansson,
Magnús Bjarnfreðsson, Ólafur
Jóhannesson, Pétur Einarsson,
Steingrimur Hermannsson,
Gerður Steinþórsdóttir. Blað-
stjórnin kýs sér sjálf formann
og jafnframt ræður blaðstjórn
in framkvæmdastjóraTimans.
Flokksþingi Framsóknar-
flokksins lauk á þriðjudags-
kvöld og voru afgreiddar frá þvi
ályktanir ummargvisleg mál-
efni. Stærstu ályktanirnar voru
almenn stjórnmálaályktun og
ályktun um efnahagsmál.
Tvö núll aftan af
krónunni.
1 stjórnmálaályktun flokksins
segir að Framáóknarflokkurinn
tekji það meginverkefni næstu
rikisstjórnar að ráðast gegn
verðbólgunni. Þar er lögð sér-
stök áhersla á að stefnan i efna
hagsmálum verði samraémd og
ákvarðanir á sviði efnahags-
mála taki fullt tillit til afkomu
þjóðarbúsins.
Atvinnuvegunum verði tryggt
eðlilegt rekstararfé með viðráð-
anlegum kjörum. Samhliða
breyttri efnahagsstefnu verði
Ólafur Jóhannesson I ræðustól á 17. flokksþingi Framsóknarflokks-
ins.
Visismynd BP.
vextir lækkaðir en jafnframt
tekið tillit til hagsmuna spari-
fjáreigenda.
Jöfnunarsjóðir verði stórefld-
ir. Auka ber áhrif rikisvaldsins
ástjórn þeirra til að tryggja að
lagt verði i sjóðina þegar mark-
aðsverð er hagstætt og aflahorf-
ur góðar.
Tryggður veröi hallalaus
rekstur rikissjóðs og eftirlit
aukið með útgjöldum rikis-
sjóðs.
Þá er lögð áhersla á að hægt
verði á fjárfestingum um sinn,
jafnt á vegum hins opinbera
sem einkaaðila. Stjórn fjárfest-
ingar eigi fyrst og fremst að
beinast að þvi að auka fram-
leiðslu og framleiðni atvinnu-
veganna.
Gildandi visitölukerfi verði
endurskoðað Þannig að verðbæt
ur miðist fyrst og fremst við af-
komu þjóðarbúsins. Ollum
landsmönnum veröi þó tryggð
lágmarkslaun er nægi til fram-
færslu.
Samhliða breyttri efnahags-
stefnu verði gildi krónunnar
breyttþannig að ein króna svari
til hundrað króna i dag.
Lagður verði sérstakur verð-
bólguskattur og skattur á sölu-
hagnað til að jafna eignaskipt-
inguna i þjóðfélaginu.
Þá segir i stjórnmálaályktun-
inni að f lokksþingið telji að ekki
beri að veita öðrum þjóðum
heimildir til fiskveiða innan
fiskveiðilögsögunnar á meðan
við getum einir fullnýtt fiski-
miðin.
Varnarliðiö hverfi úr
landi
Flokksþingið áréttar fyrri
stefnu i öryggis- og varnarmál-
um. Að óbreyttum aðstæðum
verði Islendingar áfram aðilar
að varnarsamtökum vestrænna
þjóða. Hins vegar er minnt á
þann fyrirvara að á Islandi
verði ekki her á friðartimum og
að það sé algerlega á valdi
Islendinga hvenær hér væri er-
lendur her. Samkvæmt þessu
vill Framsóknarflokkurinn
vinna að þvi að varnarliðið
hverfi úr landi, segir i stjórn-
málaályktuninni. Ennfremur
visar flokksþingið á bug hvers
konar hugmyndum um að Is-
lendingar geri dvöl varnarliðs-
ins að féþúfu.
-KS.
Buick Sport Wagon árgerð 1969.
Hvítur með viðarklæðningu — rauður innan.
Vél V8 350 cub — keyrður 57.885 milur.
Sjálfskiptur — 3 speed kassi.
Power-stýri.
Po wer-bremsur.
Power-rúður i öllum hurðum (5 st).
Ballansstöng framan og aftan.
Loffc-demparar að aftan (nýir).
Krómfelgur — Buick Sport,7 tommu breiðar —5 st.
Ný dekk,bestu gerð,Radial 5 st.
Dráttarbeisli að aftan.
Tvöfalt pústkerfi — fremri rör og kútar nýtt.
Sólrúður i þaki — 3 st.
Toppgrind.
Útvarp — fram-og afturhátalarar.
Segulband — Stereoband — Buick Special.
Nýjar bremsur i öllum hjólum.
Nýir demparar framan og aftan.
Viðarklæðning á hliðum.
Nýr bensintankur og mælir i tank.
Afturhurð opnast á tvo vegu.
Bfll allur sem nýr — I algjörum sérflokki.
Verð — tilboð.
&
iy|; UM FERÐASTYRK TIL RITHÖFUNDAR
t fjárlögum fyrir árið 1978 er 100 þús. kr. fjárveiting handa
rithöfundi til dvalar á Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar stjórn Rithöf-
undasjóðs islands, Skólavörðustig 12, fyrir 20. april 1978.
Umsóknum skulu fylgja greinargerðir um, hvernig um-
sækjendur hyggjast verja styrknum.
Reykjavik, 14, mars 1978.
Rithöfundasjóður tslands.
Urval af
bílaáklæðum
(coverum)
Sendum
í póstkröfu
Altikabúðin
Hverfisgötu 72. S. 22677
r
Texos Inskuments tölvu
-ÚR
sýna:
Klst.
AAín.
Sek.
AAán.
Dag.
Texas gerði rafeindatímavörslu að veruleika 1958, með tilkomu dvergrása og
hef ur síðan verið leiðandi af I í þróun nútíma tímatöku. Texas kvars-kristal-úr-
in eru hátækni-þróuð gæðavara, sem stenst saman-
burð við önnur úr í nákvæmni, áreiðanleika og út-
liti, og verðið er ótrúlega hagstætt. Texas er fram-
tíðarúrið í dag. Lítið inn og skoðið úrvalið.
y
3 W