Vísir - 12.05.1978, Blaðsíða 7
KINVERJAR
BERA RÚSS-
UM Á BRÝN
ÁRÁS YFIR
USSURI-Á
Almenningi i Kina var i dag
sagt, að rússneskur herflokkur
hefði farið yfir landamæri rikj-
anna fyrir þrem dögum og ráð-
ist á kinverska ibúa landa-
mærahéraða. Frá Moskvu hefur
ekkert heyrst um málið.
Erlendir sendifulltrúar i Pek-
ing undrast þögn Sovétmanna,
sem ekkihafa svarað ásökunum
Kinverja einu orði þennan
sólarhring, siðan þær fyrst voru
bornar fram.
Ifrétt, sem lesin var i Peking-
útvarpinu —ekki sem aðalfrétt,
þvi að það var frásögn af heim-
komu Hua Kuo-fengs, for-
manns, frá N-Kóreu, — var
sagt, að sovésk herþyrla og
átján sovéskir bátar hefðu farið
með 30 hermenn yfir Ussuri-ána
og inn á kinverskt landssvæði.
Ussuri-áin markar landamæri
rikjanna i Heilungkianghérað-
inu. 15. mars 1969 kom til harðra
átaka sovéskra og kínverskra
hermanna á bökkum Ussuriár-
innar og féllu nokkrir úr liði
beggja. Að þessu sinni segja
Kinverjar að innrás rússneska
herflokksins hafi verið gerð i
Yueyapoao, sem er nokkru
sunnar en landamæraátökin
urðu 1969.
FréttaskýrenduriPeking áttu
bágt með að trúa þvi, að Rússar
hefðu efnt til vandræða við
landamærin einmitt núna með-
an standa yfir samningaviðræð-
ur þeirra við Kinverja um lausn
landamæradeilu rikjanna.
Leonid Ilyichev, aðstoðarutan-
rikisráðherra Sovétrikjanna,
kom til Peking 26. april, til þess
að taka aftur upp þráð samning-
anna, þar sem frá var horfið
fyrir rúmu ári. Fundir hófust 4.
maí.
IfréttKínverjanna er sagt, að
átökin hafi átt sér stað 9. mai.
Fundu eitt hreiður Rauðu herdeildarinnar
Guilio Andreotti, forsætisráð-
herra italiu, tekur sjálfur við
innanrfkisráðherraembættinu af
Cossiga og þar með við yfirstjórn
itölsku lögreglunnar, sem leitar
nú dyrum og dyngjum að
moröingjum Aldos Moros.
Francesco Cossiga vék úr emb-
ættinu til þess að taka á sig
ábyrgðina á vanmætti lögregl-
unnar til að hafa uppi á ræningj-
um Moros eða bjarga honum úr
klóm Rauðu herdeildarinnar.
Á meðan hafa hryðjuverka-
menn á Italiu aukið aðgerðir sin-
ar i þágu „öreiganna”, og á sið-
ustu tveim dögum tvivegis ráðist
á yfirmenn stórfyrirtækja. I gær
var einn af aðstoöarbankastjór-
um banka eins i Milanó skotinn i
fæturna. 1 fyrradag særðu þeir
framkvæmdastjóra rikisverk-
smiðju.
Lögreglan telur sig nú hafa
fundið fylgsni Rauðu herdeildar-
innar i Torino og aðalstöðvar,
greinilegt var þó, að hryðju-
verkamennirnir voru fluttir þaö-
an.
62% Frakka
ónœgð með
d'Estaing
Frakkar bera meira traust
til forseta sins, Valery
Giscard d ’Estaings, en þeir
hafa nokkru sinni gert fyrr
þessi fjögur ár embættistima
hans.
í skoðanakönnun, sem
Sofres-stofnunin gerði fyrir
eitt frönsku blaöanna, bentu
niðurstöður til þess, að 62%
Frakka væru ánægðir með
forseta sinn. Á þessum tíma i
fyrra voru þaðekki nema 41%.
15% þeirra, sem spurðir
voru, létu i ljós vonir um, aö
d ’Estaing gæfi kost á sér til
endurkjörs þegar kjörtimabil
hans rennur út 1981.
Yfirbuguðu flugrœningja
Lögregla eyjarinnar Curacao
réðist um borð i kólombiska far-
þegaþotu, sem rænt var i gær-
kvöidi og neydd til þess að lenda á
eyjunni.
Tveir ræningjanna særðust og
• •
ÞINGIÐ LEGGST EKKI GEGN SOLU
Á HERÞOTUM TIL SAUDI-ARABÍU
tveir lögreglumenn, en enginn
alvarlega. Engan sakaði af 5
manna áhöfn vélarinnar, sem var
um borð, enfarþegunum 119 hafði
veriðsleppt úr vélinni, þegar lög-
reglan gerði áhlaupið.
Flugræningjarnir þrir höfðu
tekið stjórn vélarinnar i sinar
hendur, þegar hún var i. innan-
landsflugi. Þeir kröfðust 60.000
dollara lausnargjalds og var för-
inni heitið til hollensku eyjarinn-
ar Aruba i' Karibahafi.
Dauðaslysum
fœkkar
iJapan
Dauöaslysum í umferðinni i
Japan fækkaði i fyrra niður i
8.945 tilfelli, sem er lægsta
dánartala umferðarinnar þar i
landi siðan 1959. Eru þetta nær
helmingi færri dauöaslys, en
metáriö 1970. — Embætti for-
sætisráðuneytisins segir i til-
kynningu sinni, að þetta megi
þakka auknu lögreglueftirliti i
umferðinni og betri vcgum.
Carter forseti er nú sannfærður
um, að Bandarikja þing muni
samþykkja áætlun hans um að
selja ísrael, Egyptalandi og
Saudi-Arabiu herþotur.
Utanrikisnefnd öldunga-
deildarinnar greiddi i gær at-
kvæði um tillögu, sem fól i sér að
fella áætlun Carters og herþotu-
söluna. Féll tillagan á jöfnum at-
kvæðum, 8 gegn 8.
Þeir, sem gerst þekkja til
þingsins, telja vist, að öldunga-
deildin muni samþykkja söluna,
og þar með hefur Carter komið
málinu i höfn, þvi að meirihluta
þurfti i báðum þingdeildum til
þessað ógilda þessa áætlun hans.
TRUDEAU HÆTTUR
VIÐ KOSNINGAR
Pierre Trudeau, forsætisráð-
herra Kanada, glimir nú við þann
vanda að stöðva fylgishrun
Frjálslynda flokksins og rikis-
stjórnar hans, eftir að hann féll
frá þeirri ætlun sinni að efna til
þingkosninga i júli.
Flestir höfðu búist við þvi, að
Trudeau mundi efna til kosninga I
sumar, og hafa menn siðustu
vikurnar átt von á þvi, hvenær
sem skyldi, að hann tilkynnti
kosningadaginn. Sjálfur hafði
Trudeau með ferðalögum um hin
ýmsu riki Kanada, sem báru með
sér kosningakeim, látið á sér
finna, að hann byggi sig undir
kosningar, sem yrðu á næstunni.
En í gærkvöldi batt Trudeau
enda á þessar vangaveltur, þegar
hann kunngerði þinginu, að kosn-
ingar væru ekki á næsta leiti.
I siðustu viku höfðu skoðana-
kannanir gefið til kynna, að fylgi
kjósenda hefði óvænt snúist gegn
frjálslyndum. Niðurstöður sýndu
að jafnmargir studdu nú Frjáls-
lynda- sem íhaldsflokkinn i
stjórnarandstöðunni.
Trudeau sagði ekki, hvenær
mundi boðað til kosninga, en
benti þingmönnum einungis á, aö
kjörtimabil hans rennur ekki út
fyrr en i júli á næsta ári.
A blaðamannafundi siðar bar
hann á móti þvi, að hinar óhag-
stæðu niðurstöður skoðana-
könnunarinnar hefðu einar ráðið
þessari ákvörðun hans.
Babv
^awder
Baby
\>otion
SAVLON
S? SAVLON >
Baby
Cane
Babv Cream
^jppyHaST-
tip‘i • v '
Fœst um allt land. ltTTrWw
Heildsölubirgðir: