Vísir - 12.05.1978, Side 11

Vísir - 12.05.1978, Side 11
11 VISIR Föstudagur 12. mai 1978. UM HVAÐ ER KOSIÐ Á NISKAUPSTAÐ? Höröur Stefánsson: „Holrcsa— og gatnagerö eru forgangs- framkvæmdir”. r „Spurning um leiðir, ekki markmið" segir Hörður Stefánsson „Ég ætla ekki að fara að gefa nein sérstök kosningaloforð. Þau málefni sem unnið hefur verið að siðasta kjörtimabil eru i sjálfu sér góö og gild, það er frekar spurning um leiðir en markmið”, sagði Hörður Stefánsson starfsmaður flug- umferðarstjórnar efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Hörður sagöi að mikilvægasta verkefnið i bæjarmálum væri holræsa— og gatnagerð og ný vatnsveita. Hann lagöi áherslu á að það yrði lokið við þau verk- efni sem væru i gangi en ekki ráðast i það mikið i einu að öll verk drægjust úr hömlu. Innan tiðar yrði tekin i notkun við- bygging við sjúkrahúsið og þá væri merkum áfanga náð. Þá væri hafin smiði grunnskóla en þvi verki miðaði eitthvað hægt áfram en þar ætti rikið hlut að máli lika. Hörður var tregur til að spá um kosningaúrslit. Hann taldi þó fullvist að Alþýðubandalagið myndi tapa manni til Fram- sóknar. En Sjálfstæðismenn myndu halda sinum hlut og vel það. Hörður er fæddur að Karls- skála við Reyðarfjörð árið 1935. Hann fluttist til Neskaupsstaðar fyrir um 15 árum. Hann hefur ekki átt sæti i bæjarstjórn en hann hefur verið á lista Sjálf- stæðisflokksins áður. —KS Kristinn V. Jóhannsson •fsti maður G-listans: Sterkur félags- lega sinnaður meirihluti „Alþýðubandalagið á Nes- kaupsstað hefur um árabil veriö forystuafl i atvinnulifinu og i meirihiuta i bæjarstjórn. öflugt atvinnulif hefur verið tryggt meö félagslegri uppbyggingu undirstöðuatvinnuveganna, út- geröar og fiskvinnslu, og hér hafa ailir nóg að starfa”, sagði Kristinn V. Jóhannsson, skóia- stjóri, sem skipar efsta sætiö á G—lista Alþýðubandaiagsins. „1 bæjarstjórn hefur verið lagt kapp á lausn verkefna á sviði heilbrigðis-, félags- og skólamála. Við erum stoltir af þvi, að viðtækasta félagslega könnun, sem gerð hefur verið á Islandi, staðfestir að hvergi hérlendis er dagvistunarmálum barna betur borgið en i Neskaupstað. Siðasta kjörtimabil hefur ein- kennst af uppbyggingu eftir hiö mikla áfall i árslok 1974, er helstu atvinnustofnanir bæjar- ins skemmdust eða eyðilögöust með öllu. Varð þá hvort tveggja i senn, mikil skeröing á tekjum bæjarins og mikil útgjöld og röskun á áætluðum fram- kvæmdum. En margt hefur á- unnist sem til framfara horfir, og hafa bæjarbúar allir sýnt mikinn samhug og dugnað við endurreisn atvinnutækjanna. Helstu verkefni á vegum bæjarins voru: 1. Gerö nýrrar hafnar við botn fjarðarins. 2. Lagning malbiks á aðalgötur bæjarins. 3. Þreföld stækkun sjúkrahúss- ins. 4. Bygging vatnsmiðlunar- geymis ofan við bæinn. 5. Bygging 12 leigu—• og sölu- ibúða.” Alþýðubandalagið mun nú eins og jafnan áður gera bæjar- búum grein fyrir stefnumiðum sinum i bæklingi um bæjarmál. Verkefni næstu ára verða m.a.: 1. Ljúka stækkun sjúkrahússins, búa það tækjum og i tengslum við það auka þjónustu við aldr- aða. 2. Aukin áhersla á skipulags— og umhverfismál, en verulegt átak hefur verið gert i þeim efn- um. 3. Lagning bundins slitlags og gangstétta eftir 10 ára fram- kvæmdaáætlun. 4. Bygging fyrsta áfanga fjöl- brautarskóla meö áherslu á verkmenntunaraðstööu jafn- hliöa bóknámi. 5. Ymis verkefni á sviði æsku- lýðs—, iþrótta— og félags- mála. Neskaupsstaður er viðurkenndur framfarabær. Sterkur félagslega sinnaöur bæjarstjórnarmeirihluti, fram- sýnir forystumenn og dugmiklir ibúar bæjarins hafa ráðið mestu um hvernig til hefur tekist. Bæjarbúar þekkja af reynslu störf og stefnu Alþýðubanda- lagsins. Þeir vita þvi að leiðin til að tryggja áframhaldandi framfarir og félagslega upp- byggingu i Neskaupsstað er að kjósa G—-listann i komandi kosningum,” sagði Kristinn. Kristinn fæddist i Neskaups- stað 1934 og hann hefur átt sæti i bæjarstjórn siðan 1966. Hann sagði að Alþýðubandalagsmenn legðu höfuðáherslu á að halda meirihlutanum i kosningunum 28. mai. —ESJ. Haukur Ólafsson, efsti molur B-listans: Gœfa ef meiri hlutinn félli „Við stefnum að þvi að fá tvo menn kjörna”, sagði Haukur Ólafsson, verslunarmaður, sem skipar efsta sætið á B-lista Framsóknarflokksins á Neskaupstað. „Af þeim mörgu málum, sem við leggjum áherslu á i kosn- ingabaráttunni, get ég t.d. nefnt eftirfarandi. 1 húsnæðismálum teljum viö nauðsynlegt, að stefnt veröi að því að þeir, sem hingaðvilja flytjast, geti það, en þurfi ekki frá aö hverfa vegna húsnæðis- skorts. t vegamálum hefur ekki verið nógu vei að verki staöið. Við viljum stuðla að þvi, að þar verði gerð bragarbót á, bæði varöandi lagningu varanlegs slitlags og viðhalds malarvega. I hafnarmálum hefur vissu- lega ýmislegt áunnist, en samt sem áður er knýjandi nauösyn á frekari umbótum á þvi sviði, og margt reyndar þannig, að ekki má dragast að bæta þar úr. Þá má geta þess, að vatns- málin hafa verið höfuðverkur okkar hér lengi. Það er mikil- vægt fyrir okkur að fá gott og öruggt neysluvatn, en hingað til höfum við bara haft ofanjarðar- vatn úr fjallshlíðinni hér fyrir ofan bæinn. Ég vil lika taka það fram, að hðr er verið að vinna að ýmsum framkvæmdum, sem allir eru sammála um, svo sem viðbygg- ingu sjúkrahússins og fjöl- brautaskólanum. Það er þörf á að koma hluta sjúkrahússbygg- ingarinnar i gagnið eins fljótt og hægt er. I þvi efni eigum við mikið undir velvilja stjórn- valda, þar sem fjármagnið kemur að mestu leyti frá Alþingi. Viö stefnum að þvi að fá tvo menn kjörna,” sagði Haukur ennfremur. „Við stefnum ekki hærra, þótt vissulega væri það gæfa fyrir byggðarlagið, ef við fengjum fleiri menn og meiri- hlutinn félli. En svo bjartsýnir erum við sem sagt ekki”. Kristinn fæddist i Vestmanna- eyjum árið 1917, en ólst upp á Neskaupstað og hefur starfað þar alla tið. Hann hefur samtals setið þrjú kjörtimabil sem aöal- maöur i bæjarstjórn, en var áður um árabil varamaður. —ESJ. pur í borginni andstæðingarnir hafi nú ekki meira i farangrinum en þetta, eða þá að tillögur minni hlutans hafa komið svo öndvert á rikjandi skoðanir, að auðvelt hefur verið að sundra þeim, og þvi fylgi sem hugsanlega hefði verið þeim meðmælt. Nú bregður hins vegar svo við að andstæðingar borgar- stjórnarmeirihlutans virðastengin meiriháttar mál bera fyrir brjósti, og þar með liður óðum að kosningum án nokkurra sér- stakra átaka eða brýninga. Og þögnin er talin vinna með and- stæðingum Sjálfstæðisflokksins. Farsœl stjórn Stjórn Sjálfstæðisflokksins á borginni hefur um margt farið farsællega fram hin siðari ár. Henni hefuri ýmsum efnum verið stjórnað i samráði við andstæðingí i borgarstjórn, þótt ráðum um öll hin stærri mál, eins og ákveðnar áætlanir, hafi verið ráðið hjá forustu meirihlutans. Aður fyrr, á meðan borgin stóð á blistri vegna mikilla aðflutninga fólks til hennar, hefði mátt ætla að meiri- hlutinn næðist af Sjálfstæðis- flokknum.Svofór þó ekki, jafnvel þótt ekkert útlit væri fyrir malbik, og miðaldra fólk i heilum borgarhverfum hefði á orði, að ekki mundiþað nú sjá gangstétt. i þessu lifi. Nú eftir malbiks- byltinguna, grænu byltinguna, bláu byltinguna og boðaða at- vinnubyltingu, hafa sjálfstæðis- menn verulegar áhyggjur af þvi að meirihluti þeirra sé i hættu. Að hjóla framhjó húsi Öddu Báru Og vist má álita svo, að verði ekki um neina .stigamögnun kosn- ingabaráttu að ræða þá fimmtán daga, sem eftir eru til kosninga, — Þór Vigfússon „Það vantar eiginiega skepn- ur f borgina.” Sjálfur hefur hann lýst þvl yfir að hann kjósi að hafa tvær geitur i eidiviðar- skúr. Þetta er aðeins nefnt sem dæmi um það, hvað jafn- vel mætustu frambjóðendur leggjast dúpt I ihygli, þegar athyglin beinist að borgar- máíum. geti þögnin orðið það úrslitavald, sem ræður niðurstöðum i borgar- stjórnarkosningunum. Hverfa- fundir og annað smálegt dundur verður ekki til að ráða úrslitum. Takist andstæðingum meirihlut- ans að sitja á strák sinum, og neita um skotfærin i kosningabar- áttuna, getur farið svo að það eigi eftir að reynast hin snjallasta kosningabrella. Varla þarf þó borgarstjórnarmeirihlutinn að kviða þessu. Timinn og Þjóðviljinn eru farn- ir að brydda upp á hugmyndum, sem að haldi mega koma i borgarlifinu. Siðastliðinn miö- vikudag birti t.d. Þjóðviljinn við- tal viö þriöja mann á lista Al- þýðubandalagsins i borgar- stjórnarkosningunum, sem sam- kvæmt öllum sólarmerkjum á að sitja i borgarstjórn fyrir banda- lagið næsta kjörtimabil. Þessi væntanlegi fulltrúi lýsir þvi hvernig hann fer á reiðhjóli I vinnuna, hjólar framhjá húsi öddu Báru og sækir þangað „mikinn kraft, fær „inspirasjón” undir glugga Arna Bergmans, og á leiö um Álfheima sér hann „upp i gluggana hjá Kjartani Ólafs- syni”. Siðan segir: „Það er rétt að nefna þessar andlegu upp- sprettur sem maöur hefur.” Geitur í eldiviðarskúr Nú er þetta allt heimspekilega grundaö hjá þriðja manni banda- lagsins. Hann lýsir ástæðunum fyrir framboði sinu þannig: „Ég hef auðvitað mikinn áhuga á að sósialisminn nái fram aö ganga sem viðast....” En i löngu viðtali kemur hvergi fram hvernig eigi að koma þessum sósialisma fram, eða hverju hann munu breyta okkur borgarbúum til hagsbóta. Aftur á móti drepur þriðji maður á eitt mál, sem vert er aö hugleiða, bæöi sem framlag Alþýöubandalagsins til borgar- málefna og sérlegt hugöarefni þriðja manns. Hann segir i upp- hafi viðtals: „Það vantar eiginlega skepnur inn i borgina, t.d. beljur eöa eitt- hvað af hrossum. Það væri dá- samlegt fyrir börnin i borginni og reyndar hina fullorðnu lika.” Sjálfur hefur hann áður lýst þvi yfir að hann kjósi sér að hafa tvær geitur i eldiviðarskúr, sem er áfastur viö húsið. Þetta er aðeins nefnt sem dæmi um þaö, hvað jafnvel mætustu menn leggjast djúpt I ihygli þegar — Birgir tsleifur Gunnarsson Sem betur fer hefur borgar- stjórnarmeirihlutinn látið sitja viö byltingar á borð við malbik og gróöur. Húsdýra- byltingin hefur aldrei verið á dagskrá hjá honum. athyglinbeinist að borgarmálum. Sem betur fer hefur borgar- stjórnarmeirihlutinn látið sitja við byltingar á borð við malbik og gróöur. Húsdýrabyltingin hefur aldrei verið á dagskrá hjá honum. Leiðréttingar á augljósum misfellum Timinn hefur jafnvel farið sér enn hægar en Þjóðviljinn við að kynna hugmyndir um borgarsýsl- ið. Geitabúskap eöa annan bú- skap hefur ekki borið þar á góma, og hefur þó Timinn aldrei verið fyrir það að gleyma land- búnaðinum. Kristján Benedikts- son, sem helztur er í forsvari á lista Framsóknarmanna, hefur tekiö þann kostinn aö minna af hógværö á þá staðreynd, að Framsóknarmenn hafa ekki setiö aðgerðarlausir i borgarstjórn. Hann telur upp björgun Elliða- ánna, sem voru að visu fullar af laxi þegar þeim var bjargað, til- lögu um fólkvang frá 1969, skiða- miðstöð og stöðvun gróöureyöing- ar. Allar þessar tillögur munu hafa verið samþykktar i borgar- stjórn. En þetta eru svo sem eng- in stórmál, mikið frekar leiðrétt- ingar á augljósum misfellum. Borg er útlit og þrifnaður Og þannig er nú þetta borgar- málastarf. Það er auövitaö hægt að gera heildaráætlanir um ein- stök atriði, sem hafa dregizt úr hömlu, eins og þegar götur voru malbikaðar og svörin ræktuð — að mestu, en aö öðru leyti standa menn ekki nötrandi frammi fyrir stórfelldum ákvarðanatökum á degi hverjum. Borg er aö stórum parti útlit og þrifnaður, og sam- kvæmt þvi virðist engin ástæða vera nú til að fella borgar- stjórnarmeirihlutann, fyrst það var ekki gert á subbuskaparárun- um, þegar fólk hélt aö þaö dæi áö- ur en það sæi gangstétt. IGÞ.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.