Vísir - 12.05.1978, Blaðsíða 17

Vísir - 12.05.1978, Blaðsíða 17
VISIR Föstudagur 12. mai 1978. 21 »- Ui i i-n* tui1 iftv 1MÍ VWt^nMi FINNSKIR LISTA- MENN SÝNA í EDEN Þri'r finnskir listamenn opna málverkasýningu í Eden i Hverageröi i kvöld kl. 20. Listmálararnir eru Elína 0. Sandström, Juhani Taivaljarvi og Liisa Urholin Taivaljarvi. Þau sýna 90 oliumálverk lands- lags og blómamyndir. Elina Sandström hefur haldiö fjölmargar sýningar hér á landi og er þetta i fjóröa skiptiö sem hún sýnir i Eden. Juhani Taivaljarvi hefur einnig sýnt hér áður, i Norræna hiisinu árið 1971. Sýningin iEdenstendur til 21. mai. "Slúðrið" tólf sinnum Nemendaleikhúsiö hefur nú sýnt leikrit Flosa ólafssonar tólf sinnum i við mjög góöa .Slúðrið Linda rbæ aðsókn. Leikarar i sýningunni eru 8 talsins og er þetta lokaáfangi þeirra i námi við Leiklistar- skóla tslands. Við frumsýningu á Slúörinu brautskráði skólastjóri Leik- listarskólans, Pétur Einars- son, leikarana viö hátiðlega athöfn á sviðinu i Lindarbæ. Slúðrið er þriðja isienska leikritið, sem frumsýnt er i Nemendaleikhúsinu. Leikstjóri sýningarinnar er Þórhildur Þorleifsdóttir og hefur hún i samvinnu við Leif Þórarinsson og Messiönu Tómasdóttur gert þetta að mjög athyglisverðri sýningu. Næstu sýningar á Slúðrinu verða i Lindarbæ f kvöld (föstud. 12. mai) og mánudagskvöld 15. mai kl. 20.30. Þjóðleikhúsið: Káta ekkjan annan i hvitasunnu kl. 20. miðvikudag kl. 20. Stalin er ekki hér, i kvöldkl. 20. Siðasta sinn. Litla sviðið: Mæður og synir annan i hvitasunnu kl. 20.30. Fröken Margrét þriðju- dag kl. 20.30. Næst siðasta sinn. Leikfélag Reykjavikur: Saumastofan, i kvöld kl. 20.30. Siðasta sinn. Skáld-Rósa 2. hvitasunnudag kl. 20.30. Nemendaleikhúsið Slúðrið i Lindarbæ i kvöld kl. 20.30. Kjarval sstaðir: Sigurður örlygsson og Hörður Karlsson sýna. Norræna húsið: Myndir Gunnars Brusewitz i bóka- safninu. Mokka: Vorsýning Myndlista- og handiðaskólinn GalIeriSúM:Samsýning. Gott úrval frí- merkja ó upp- boði ó morgun Leikarahópunnn i saumastofunni. Soumavélarnar þagna Saumavelarnar, sem snúist hafa glatt i bráðum 3 ár á sviði Iðnós, þagna á föstudaginn, en þá veröur tvöhundraðasta og jafnframt siðasta sýning á saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson. Jafnréttisumræða kvennaársins varð til þess að þetta verk fór á svið, en efni leiksins er mestmegnis fólgið i lifsreynslusögum persóna, aðal- lega kvenna, sem strita saman á saumaverkstæði. Þetta verk hefur notið fá- dæma vinsælda, og kannast nú flestir orðið við söngvana úr þvi, enda hafa þeir komið út á hljómplötu. Saumastofan hefur verið sýnd úti á landi tvö undan- farin sumur i leikferðum Leik- félagsins. Hún er væntanleg á svið i færeyskum búningi hjá sjónleikarafélaginu i Þórshöfn. Helgi Már Barðason og Magnús Arsælsson leika Leif og Lúlla. Myndin cr tekin á æfingu. ## „Skog och sjö í Norrœna húsinu — Gunnar Brusewitz, sœnskur rithöfundur og teiknari,sýnir Sænski rithöfundurinn og teiknarinn Gunnar Brusewitz er nú staddur hér á landi ásamt konu smni i boði Norræna húss- ins og dveljast þau hér á landi i tvær vikur. Gunnar er mjög þckktur dráttlistarmaður og grafiker og þykja fúgla-myndir hans og náttúrulýsingar hinar mestu gersemar, og eru eftir- sóttar af söfnurum um allan heim. I bókasafni Norræna hússins hefur verið sett upp sýning á nokkrum vatnslitamyndum, teikningum og grafikmyndum eftir Gunnar Brusewitz. Sýning- una nefnir hann „Skog ochsjö”. Fáeinar myndanna eru til sölu en sýningin verður opin til 21. mai. Gunnar hefur skrifað og myndskreytt á annan tug bóka, og fjalla þær flestar um náttúruskoðun, — fugla, dýr og gróður. Hann er einnig þekktur útvarps- og sjónvarpsmaður i heimalandi sinu og hefur gert nokkrar kvikmyndir um riki náttúrunnar. A morgun klukkan 16:00 heldur Gunnar erindi i Norræna húsinu og sýnir kvikmynd sem nefnist „Skog och sjö” og lýsir dýra- og fuglalifi i skógum og við vötn. —EA. Frimerkjauppboð verður i ráðstefnusal Hótels Loftleiða á morgun, laugardaginn 13. mai kl. 13.30. Verður uppboðsefnið til sýnis á uppboðsstað frá klukkan 10—11.30 sama dag. 316 númer verða boðin upp en það er nýtt fyrirtæki, Hlekkur sf. sem stendur að uppboðinu og býður öllum frimerkjaáhuga- mönnum þjónustu sina. A boð- stólum er mjög gott úrval af fri- merkjaefni frá mörgum eigend- um, á lágmarksverði, sem allir venjulegir safnarar ráða við, eins og segir i skrá um upp- boðið. —EA Dýrasta númerið á uppboðinu. Gunnar Brusewitz og nokkrar mynda hans. Leifur Ijónsösk- ur í Dynheimum Leik klúbburinn Saga á Akureyri hefur tekið til sýninga barnaleikritið Leifur Ijónsösk- ur. Höfundur er Torben Jets- mark, en leikritið þýddi Halla Guðmundsdóttir. Þetta er þriðja verkefni leik- klúbbsins, en i honum eru ung- menni á aldrinum 15 til 20 ára. Leikmynd, svið og búningar er unnið i hópvinnu af leikurum, undir leiðsögn Þráins Karlsson- ar. Leikstjórar eru Theódór Júliusson og Þórir Steingrims- son. Leifur er sirkusljón, sem finnst vistin i fjölleikahúsinu heldur dapurleg og strýkur þaðan. Hann leitar sér að at- vinnu, en ekki reynist honum erfiðleikalaust að fá vinnu við sitt hæfi. Knútur og Toppur hin- ir heimsfrægu og treggáfuðu lögregluþjónar eru ávalit á hæl- um hans og gera Leifi lifið leitt. Sextán leikarar taka þátt i sýningunni. Með helstu hlutverk fara Helgi Már Barðason, Magnús Ársælsson, Snjólaug Brjánsdóttir, og Jóhanna Kr. Birgisdóttir. Leifur Ljónsöskur verður á sviðinu i Dynheimum á sunnu- dag kl. 14, en leikklúbburinn mun sýna leikinn i nágranna- byggðum Akureyrar á næst- unni. —KP.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.