Vísir - 12.05.1978, Síða 27

Vísir - 12.05.1978, Síða 27
vism Föstudagur 12. mai 1978. 31 GUÐSORÐ Nú er mikill áhugi sýndur þvi, sem i einu lagi er kallað þjóölegur fróðleikur þ.e. hvers- konar vitneskja um fyrri kyn- slóöir og þá fyrst og fremst sein- ustu aldar, kjör þeirra og lifs- háttu. Það væri að bera i bakkafull- an lækinn að fara að bera sam- an kjör og kosti á liðinni tið og það, sem rikir hjá okkur i dag. En ekki er ófróðlegt að gera i þessu sambandi athugun á þvi, hve fólkið áður fyrr fann öryggi og andlega fótfestu, ákveðið og sannfært i Guðstrú sinni og þeim náðar- og hjálpræðisverk- um, sem góður Guð gerði mönn- unum til handa með þvi að senda inn i þennan fallvalta, synduga heim sinn eingetna son til að vera manneskjunni leið- togi, lausnari og lifið sjálft. í öruggri trú á himnaföðurinn og forsjón hans, i trausti til frelsar- ans, sem fólst i þessari játn- ingu: Athvarf mitt jafnan er til sanns — undir purpurakápu hans — þar hyl ég misgerð mina -----Það var þetta athvarf traustsins og trúarinnar á Guð og frelsarann, sem var fyllingin og festan i lifi svo margs fólks áður fyrr, gæddi það þreki og þrótti i erfiðleikum, styrk og bjartsýni þegar syrti að, var þvi hið bjarta og lýsandi vonarljós við aðkomu dauðans. — Þessarar huggunar, þessa styrks, leitaði fólkið i Orðinu — heilagri ritningu, bæði þvi, sem farið var með ,við húslestra i heimahúsum, meðan heimilis- ræknin var rækt, hvert kvöld a.m.k. yfir vetrartimann. Og svo einnig og ekki siður i guðs- þjónustum kirkjunnar, sem sóttar voru af ótviræðri skyldu- rækni hvern helgan dag þegar ekki hindruðu einhver sérstök forföll. Slik umgengni við hina helgu bók var börnunum innrætt þegar við fyrstu kynni af prent- uðu máli meðan þeim var kennt að lesa á Bibliuna. Hér koma svo ennfremur fram á sjónar- sviðið öndvegisritin i trúarbók- menntum okkar: Passiu- sálmarnir og Vidalinspostilla. 1 þær sótti fólkið, hver kynslóðin af annarri, næringu trúarlifi sinu, orð og upplýsingar, sem var þvi andlegur kraftur i lifi og deyð. Þannig var lif fólksins frá bernsku og fram á elliár allt meira og minna samtvinnað hinu trúarlega viðhorfi til lifs- ins, viðhorfi, sem byggði á orði Guðs einsog það er að finna i hinum spámannlegu og postul- legu ritum og útlagt af mestu andans mönnum þjóðarinnar. Til hvers er að vera að rifja þetta upp? Eru þetta ekki horfnar stund- ir, langt að baki — liðnir timar, sem ekki koma aftur? Þannig mun eflaust margur hugsa á þessum ókirkjulegu timum. Þegar bókstaflega allt er svo breytt á þvi sviði og ólikt þvi, sem var i fyrri daga. En minnumst þess kristnir menn að einn er sá sem aldrei breytist — er hinn sami þrátt fyrir umbyltingu alls i hinum ytra heimi — Jesú Kristur — Drottinn okkar og frelsari er hinn sami i gær og i dag og að ei- lifu. Og til hans megum við koma með öll okkar vandamál okkar titrandi hönd og kviönu hjörtu. Eitt sinn kom ungur náms- maður til þekkts læknis og skýrði honum frá þvi að hann þjáðist af stöðugum ótta og kviða sem lamaði námsþrek sitt og svifti sig allri sálarró og gerði sér ómögulegt að stunda námið. Þegar læknirinn hafði at- hugað og talað við sjúklinginn sagðist hann ætla að senda hann til læknis sem áreiðanlega gæti hjálpað honum og hefði „lækningastofu sina i Nýja- Testamentinu”. Og hann skrifaði á lyfseðil ritningar stað einn II Tím. 1„ 7. sem hann sagði honum að hann skyldi lesa gaumgæfilega. Unga mannin- um þótti þetta i fyrstu nokkuð undarleg afgreiðsla en fór samt að ráði læknisins og fletti upp fyrrnefndum stað og þar stóðu þessi orð: „Þvi að ekki gaf Guð oss anda hugleysis heldur anda máttar, kærleika og stillingar.” Ungi maðurinn sem siðar varð sjálfur læknir segist stöðugt hafa hugsað um þessi orð þau hafi bókstaflega fyllt huga sinn og áður en langt leið hafi óttinn og kviðinn veriðhorf- inn og hann hefði öðlast innri frið. I Sr. Gísli Brynjólfsson jskrifar: Þetta er fagurt dæmi um áhrif Guðs orðs ekki á fyrri kynslóðir sem lifðu i heimi trúarinnar heldur aiveg nýtt af nálinni. Og þetta er eitt af mörgum dæmum þess hverjum krafti Orðið býr yfir og hvert erindi það á til okk- ar enn i dag. Það eru vissulega sannindi sem við stundum syngjum: Guðs orð er lif og andi með undrakrafti i sér Guðs orð er ævarandi þá annað gjörvallt þver. Þann kjörgrið kjósum vér, i hreinu hjarta geymum það hnoss og aldrei gleymum að best það arfleifð er. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ Vandervell vélalegur Ford 4-6-8 strokka benzín og díesel vélar Opel Austin Mini Peugout Bedford Pontiac B.M.W. Rambler Bulck Range Rover Chevrolet Renault 4-6-8 strokka Saab Chrysler Scania Vabis Citroen Scout Datsun benzin Simca og diesel Sunbeam Dodge — Plymouth Tékkneskar Fiat bifreiðar Lada — Moskvitch Toyota Landrover Vauxhall benzín.og díesel Volga Ma*da Volkswagen Mercedes Benz Volvo benzín benzín og diesel og díesel ÞJÓNSSON&CO Skeifan 17 s. 84515 — 84516 l Dagflug á þriðjudögum. Haegt aö velja um dvöl í hinum undurfagra ferðamannabæ við Napolíflóann, ævintýraeyjunni Kaprí eða hinni sögufrægu og fögru Rómaborg, borginni eilífu. íslensk skrifstofa Sunnu í Sorr- entó og Róm. Farið verður: 4. og 25. apríl, 16. maí, 6. og 27. júní, 18. júlí, 8. og 29. ágúst og 19. sept. Pantið strax. SVNNA Bankastræti 10. Simar 16400 12070 - 25060 - 29322. ■Pl Já, svo sannarlega. Vfsir veitir þér innsýn í fréttnæmustu atburði dagsins, og ernotarleg afþreying hvort sem þú ert heimavinnandi eða grípur hann til lestrar þegar heim kemur að loknum vinnudegi. Áskrift er ekki aðeins þægilegri fyrirþig, heldur og einnig hagkvæmari, auk þess að gefa g/æsi/ega vinningsvon. 1. júní verður dreginn út Simca GLS frá Chrys/er í áskrifendagetraun Vísis, léttum og skemmtilegum leik sem þú tekur að sjálf- sögðu þátt í gerist þú áskrifandi. VÍS/R KEMUR ALL TAF E/NS OG KALLAÐUR!

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.