Vísir - 22.05.1978, Page 6
Mánudagur 22. maí 1978 vism
Umsjón: Guðmundur Pétursson
í
Kennedy vin-
sœlli en Carter
Edward Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður, er enn kom-
inn fram i sviðsljósið sem
hugsanlegur frambjóðandi for-
setakosningum Bandaríkjanna,
þrátt fyrir allar hans yfirl-
ýsingar um, að hann hafi engan
hug á þvi embætti.
Nýleg skoðanakönnun
Gallups gerði stjórnmálafröm-
uðum i Bandarikjunum bylt við.
Þar kom i ljós, að hinn 46 ára
gamli öldungadeildarþing-
maður naut meiri vinsælda
i Bandarikjunum en sjálfur for-
setinn, Jimmy Carter. Hann
stóð jafnfætis Carter á heima-
velli þess síðarnefnda, suður-
rikjunum.
Gallupkönnunin bauð fólki að
velja milli þingmanns Massa-
chusetts og Carters forseta og
völdu 53% Kennedy, en aðeins
40% völdu Carter. Álit Carters
hefur enda farið mjög hnignandi
heima fyrir sem erlendis sið-
ustu mánuði.
Þessar niðurstöðutöiur eru
þær óhagstæðustu, sem nokkur
forseti Bandaríkjanna (sem
hyggur á endurkjör) hefur hlot-
ið frá því að Gallupkannanir
byrjuðu fyrir 43 árum. — Sam-
timis þessu fréttist svo af ann-
arri könnun, sem sýndi, að
Kennedy hefur þó verið trygg-
asti stuðningsmaður forsetans i
þinginu, siðan Carter kom til
embættis. Það voru aðstoðar-
menn Carters sjálfs, sem kom-
ust að þeirri niðurstöðu, þegar
þeir með aðstoð tölvu fóru yfir
það, hvernig þingmenn höfðu
greitt atkvæði i málum, sem
Carterstjórnin hefur lagt fyrir
þingið. Skýtur þetta nokkuð
skökku við þann kulda, sem
Kennedy þótti sýna Carter i
kosningabará ttunni 1976.
Edward Kennedy var inntur
álits á þessumniðurstöðum
Gallupkönnunarinnar og um
leið spurður að framtiðar-
áætlunum hans varðandi kosn-
ingarnar 1980. Hann sagði: ,,Að
visu þykir mér vænt um þetta
traust, en ég ætla ekki i fram-
boð.” — Hann benti á, að slikt
fylgi i skoðanakönnunum ris og
hnigur á vixl og sagði: ,,Ég býst
við þvi, að flokkurinn tilnefni
forsetann aftur til framboðs, og
ég hlakka til þess að veita
Bflslysið á Chappaquiddick-eyju 1969 kastar enn skugga á stjórnmálaferil Teds.
»...09 gaf þeim upp
málið á okkur báðum«
»Þeir skera svampinn alveg eins og
maður vill og sauma utan um hann líka, ef
maður bara vill.«i
»Já, Lystadún svampdýnur...«
»Hættu nú að tala, elskan mín«
.efni til að spá í
LYSTADÚNVERKSMIÐJAN DUGGUVOGI 8 SÍMI 846 55
honum stuðning minn 1980.”
Ýmsar ástæður liggja til þess,
að Kennedy þingmaður kann að
hafna áskorunum um að leita
útnefningar flokk sins til
framboðs.
Ein sú veigamesta er senni-
lega hið dularfulla slys á
Ch ap pa q u iddi ck-ey j u I
Massachusettes i júli 1969,
þegar ung stúlka, Mary Jo
Kopechne að nafni, fórst i bif-
reið Kennedys, þegar hann lenti
út af brú. Þetta skeði að lokinni
kosningagleði, en Mary Jo hafði
veriðein f jölda ungra stúlkna og
pilta; sem tóku þátt i kosninga-
starfinu fyrir Robert heitinn
Kennedy, bróður Edwards.
Niu ár eru liðin siðan, og
ennþá liggur ekki ljóst fyrir,
hvað raunverulega gerðist.
Edward Kennedy sætti á sinum
tima mikilii gagnrýni fyrir að
tilkynna ekki lögreglunni um
slysið fyrr en mörgum klukku-
stundum siðar. Þeir, sem unnu
að rannsókn málsins, sökuðu
hann cnnfremur um, að hafa
ekki sagt alveg rétt og satt frá
atburðum. — Hann játaði á sig
að hafa yfirgefið slysstaðinn I
stað þess að biða lögreglunnar
og missti ökuréttindin i eitt ár.
Aðrir eftirmálar urðu ekki af
slysinu.
Ýmsir fréttaskýrendur i
Bandarikjunum, telja að skugg-
inn af þessu máli hafi aftrað
Edward Kennedy frá þvi að
gefa kost á sér til útnefningar
flokksins í forsetaframboð.
Sumir þeirra ætla þó, að nú sé
nægilega langur timi liðinn frá
þvi, til þess að hann þurfi ekki
að óttast slika uppvakninga.
Fylgi hans i skoðanakönn-
unum i suðurríkjunum, þar sem
fólk er yfirleitt siðavandara, og
lá einna mest honum á hálsi á
sinum tima vegna slyssins, gæti
stutt þessar ályktanir. En aðrir
eru svartsýnni fyrir hans hönd,
og spá þvi, að um leið og
Kennedy lýsti þvi yfir, að hann
hyggði á forsetaframboð, mundi
allt málið vakið upp með öllum
þeim sárindum, sem þvi geta
fylgt. Reyndustu stjórnmála-
menn telja, að það gæti orðið
honum örlagarikt.
önnur veigamikil ástæða þyk-
ir liggja i heimilislifi K-
ennedy-anna. Slúðurdálkahöf-
undar hafa að undanförnu gert
mikið veður út af því, að Ted og
kona hans, Joan, búa ekki
saman um þessar mundir,
nema þá einn og einn dag vik-
unnar. Hún býr i ibúð þeirra i
Boston og stundar tónlistarnám
í Cambridge. Hann býr
ásamt börnum þeirra þrem i
McLean-úthverfinu i
Washington.
Bæði hafa eindregið borið á
móti þvi, að þau eigi i hjóna-
bandsörðugleikum, og segja, að
nám hennar og starf hans hafi
kallað fram þennan aðskilnað i
bili, en þau hittist ekki sjaldnar
en einu sinni i viku. — En það
hefur einnig verið haft eftir
Joan: „Ég fer að visu annað
veifið út og skemmti mér, en
Ted er vel kunnugt um það.” —
Eins komst orðrómur á kreik
um Ted i vetur þegar hann fór i
skiðaferð eina helgi með Suzy
Chaffee, fyrrum keppanda ‘á
Ólympiuleikunum. Suzy bar
hinsvegar allt slikt umtal til
baka.
Það hefur mætt töluvert á
Edward Kennedy sem heimilis-
föður eftir fráfall bræðra hans,
John F. Kennedy og Roberts.
Auk einnar dóttur og tveggja
sona (annar varð að láta taka af
sér annan fótinn fyrir nokkrum
árum vegna krabbameins)
hefur hann orðið að ganga nán-
ast i föðurstað ellefu börnum
Roberts og tveim börnum John
F., fyrrum forseta.
Má vera að skyldutilfinningar
hans gagnvart öllum þessum
barnahóp fæli hann frá þvi að
sökkva sér i til vill i annriki
Hvita hússins.
Einnig kann að vera að frami
hans í þinginu svali metnaðar-
girnd hans nægilega. Þar hefur
hann getið sér orð fyrir mátu-
legt frjálslyndi og barist fyrir
málum eins og sjúkrasamlagi
og bættum almennum trygg-
ingum. Næsta ár mun hann taka
við formannsstarfi einnar
áhrifamestu þingnefndar
öldungadeildarinnar. Má vera,
að hann telji sig geta haft meiri
áhrif á þjóðmálin þar, en hann
gæti I Hvita húsinu. Og jafn-
tryggur flokksmaður og hann
hefur reynst, er öruggt, að hann
mundi hugsa sig tvisvar um,
áður en hann etti kappi við
forseta demókrata.
En athafnasemi hans i
þinginu, atkvæðamikið stjórn-
málastarf og eftirtektarverður
ræðustill tryggir það, að hann er
ávallt i sviðsljósinu, enda lætur
maðurinn nær alla hluti til sin
taka. Gildir einu, hvort um er að
ræða mannréttindi i Chile,
sambúðina við Kúbu, eða
almennar reglur fyrir flug-
félögin.
Ted Kennedy þingmaður, i ræðustól, en kou hani, Joan, cttar að
baki honum og hlýðir á.