Vísir - 22.05.1978, Blaðsíða 9

Vísir - 22.05.1978, Blaðsíða 9
Einar hringdi: Reykjavik hefur verið bless- unarlega laus við marga af ó- kostum stórborga heimsins, þótt vissulega hafi borgin okkar smátt og smátt fengið á sig meiri stórborgarbrag. Eitt er það sem mér hefur ætið þótt til litillar prýði i erlendum borgum, en það eru auglýsingaskilti sem þekja alla veggi. Hingað til hefur Reykja- vik verið laus við-þessar vegg- og götuauglýsingar. En fyrir stuttu brá svo við að auglýsing um jass-hljómleika i Háskólabiói var hengd upp hjá Miklatorgi. Og nú um daginn var svo önnur sett upp þar. Hvað á þetta að þýða? Er þetta kannski upphafið að þvi að Reykjavik verði þakin aug- lýsingaspjöldum? Hverjir ráða þessu? Eru það borgaryfirvöld eða einstaklingar? Ég ætla bara að vona að stjórnendur borgarinnar sjái til þess að ekki verði haldið áfram á þessari braut. Haldið Reykja- vik hreinni af auglýsingaspjöld- um ! Við höfðum samband við Inga Ú. Magnússon gatnamálastjóra og spurðum hann hvort þetta væri leyfilegt. „Þetta er sett upp i algjöru óleyfi og við erum búin að gera ráðstafanir til þess að láta fjar- lægja þessa auglýsingu’,* sagði Ingi. „Það má enginn setja svona upp nema að fengnu leyfi okkar og lögreglunnar. Ef við verðum varir við svona aug- lýsingar þá látum við fjarlægja þær.” Sýn þú mér trú þína af verkunum Sigurður Jónsson skrif- ar pLaugardaginn 6. mai sl. birt- ist i Visi viðtal við Björn Th. Björnsson.listfræðing, sem þar, eins og löngum fyrr, kennir sig mjög við marxisma. B.Th. B. hnýtir um leið i „kapítalism- ann”, sem siðvenja er sósial- ista og annarra þeirra, er telja sig trúa kenningum Karls Marx. mörg slík, þótt hér verði látið staðar numið að sinni”. Vegna þessa bréfs hafði Visir samband við Björn Th. Björns- son. „Það er rétt að ég sé um út- gáfu á afsteypum á minjagrip- um eftir hlutum 1 Þjóðminja- safni tslands i samráði við þjóð- minjavörð. Það er rétt sem fram kemur i bréfinu að fyrirtækið sem stend- ur að útgáfunni heitir tslenzkir minjagripir”. —JEG Nú væri i sjálfu sér ekkert við þetta að athuga, ef ekki vildi svo til, að B.Th. B. væri ekki oröaö- ur talsvert við kapitalisma. Þannig er mál með vexti, aö skömmu fyrir 1970 stofnaði hann fyrirtækið Islenzkir minjagripir, sem hefur fengið einhvers konar „einkaleyfi” á sölu á eftirlfkingum af Isl. safn- gripum og seldir eru á Þjóö- minjasafninu. — t öðrum lönd- um annast söfnin sjálf yfirleitt framleiðslu og sölu á slíkum varningi. — Sá er þetta ritar hringdi til kunningja sfns, sem hefur aðgang að skattskrá Reykjavikur, er gefin er út ár- lega, en ekki fannst þar nafn fyrirtækisins tslenzkir minja- gripir, og litur þvi út fyrir, að sú höndlun sé einkafyrirtæki B.Th. B. Er hér gott dæmi þess, hvern- ig kommar koma ár sinni fyrir borð i hinum vondu kapitalista- þjóðfélögum, og mætti nefna Þessi gamll askur er meðal muna á Þjöðminjasafninu. Mynd: Loftur. LAUSSTAÐA Staða forstjóra Iðntæknistofnunar ís- lands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfs- manna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um ald- ur, menntun og fyrri störf, sendist iðnað- arráðuneytinu fyrir 16. júni. Iðnaðarráðuneytið, 16. mai 1978. KJORFUNDUR vegna borgarstjórnarkosninga i Reykja- vik sunnudaginn 28. mai n.k., hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 23.00 þann dag. Yfirkjörstjórn mun á kjördegi hafa að- setur i Austurbæjarskólanum, ogþar hefst talning atkvæða þegar að loknum kjör- fundi. Yfirkjörstjórn vekur athygli kjósenda á eftirfarandi ákvæði laga nr. 6/1966: ,,Áður en kjósandi fær afhentan kjör- seðil, skal hann, ef kjörstjórn óskar þess, sanna hver hann er, með þvi að framvisa nafnskirteini eða á annan fullnægjandi hátt”. Yfirkjörstjórnin i Reykjavik, 18. mail978. Björgvin Sigurðsson. Ingi R. Helgason. Guðmundur Vignir Jósefsson. □□□DDUDODDDDDDODDaDODDDDaDDOQDDOQDODDDDDDOODD □ | Bif vélavirki □ g eða menn vanir viðgerðum óskast strax. □ □ D | Afgreiðslumaður á lager i + Sendill o g þurfa að hafa bilpróf. Uppl. i sima 85235. □ D □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□DDDDDDDO□□□□□□□□□□□□□□□□ LAUSSTAÐA Staða rikissáttasemjara er laus til umsóknar. Launakjör verða ákveðin af Kjaradómi. Umsóknarfrestur er til 31. maí 1978. FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 19. MAÍ 1978. Nemendaleikhúsið sýnir í Lindarbæ leikritið Slúðrið eftir Flosa Ólafsson i kvöld kl. 20.30. Siðasta sýning. Miðasala í Lindarbæ frá kl. 17. Sími 21971. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 104. og 108. tbl. Lögbirtingablaösins 1977 og 1. tbl. Lögbirtingablaðsins 1978, á fasteigninni Faxa- braut 53, Keflavik.þingl. eign Grétars Þórs Sigurössonar, fer fram á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 25. mai 1978 kl. 10 f.h. Bæjarfógetinn f Keflavik. □□□□□□□□□□□□□□□□□□□DODDj

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.