Vísir - 26.05.1978, Page 6
6
/
£>fvr; _
c
Umsjón: Katrín Pálsdóttir
Föstudagur 26. mal 1978. vism
iSVISS:
Þjóðaratkvœði
um klukkuna,
bílinn, brauð-
ið og skólana
ÞjÓðaratkvæðagreiðsla wich-tima. Þa6 vildu ekki allir
fer fram i Sviss um helg-
ina um nokkur sérkenni-
legt mál sem að öllu jöfnu
er ekki skorið úr um með
þessum hætti. Sviss-
lendingar kjósa um hvort
eigi að flýta klukkunni
um eina klukkustund, um
verð á brauði og hvort
banna eigi alla umferð
einkabila einn sunnudag í
mánuði o.fl.
Svisslendingar eru að jafnaöi
kvaddir aö kjörborðinu fjórum
sinnum á ári til aö skera úr um
alls konar mál sem rikisstjórnin
getur ekki tekiö ákvaröanir um.
A kjörskrá i Sviss eru um 3.4
milljónir manna. Þar er sam-
steypustjórn nokkurra flokka
sem leitar til almennings þegar
hún getur ekki komið sér saman
um úrlausn mála. Þau mál sem
kosiö er um þessa helgi eru þau
sérkennilegustu eöa óvenjuleg-
ustu sem komiö hafa til kasta
almennings i áratugi.
Bændur vilja ekki flýta
klukkunni.
Rætt var um það i rikisstjórn
að flýta klukkunni um eina
klukkustund. Það var svo
ákveðið aö svo skyldi gert en þá
hefði klukkan i Sviss veriö
tveim timum á undan Green-
sætta sig viö þessa ráðstöfun.
Fimm ungir bændur hófu aö
safna undirskriftum gegn þess-
ari ákvörðun og varö mjög vel
ágengt. A einum mánuöi höföu
þeir safnaö um 83 þúsund
undirskriftum. Það voru aðal-
lega bændur sem skrifuðu nöfn
sin á mótmælaskjaliö. Bændur
segja að ef klukkunni sé flýtt þá
lengi það vinnudag þeirra, fyrir
utan þaö hve óskemmtilegt það
er aö þurfa aö fara á fætur
klukkutima fyrr en venjulega.
Rikisstjórnin sá sig knúna til
að láta þjóöina skera úr þessu
þar sem samkomulag náöist
ekki innan hennar um málið.
Tómar hraðbrautir
1 oliukreppunni sem kom upp
áriö 1973 var tekið til þess ráös
viða i Evrópulöndum aö banna
umferö einkabila ákveöna daga
til að spara eldsneyti. Sviss-
neska stjórnin bannaði notkun
einkabila þrjá sunnudaga i
nóvember og desember áriö
1973. En fólk varð aö komast
leiðar sinnar. Það tók fram hjól
eöa fór fótgangandi erinda
sinna. Hraöbrautirnar voru
auöar og tómar en venjulega
fara um hraðbrautir i Sviss
milli 1.2 og 2.5 milljónir manna i
einkabilum sinum á hverjum
sunnudegi.
Niu verkfræöistúdentar urðu
yfir sig hrifnir af þessari
s .,v...... - -—— ■ <*****
I Á m . 1 1 I,
Svisslendingar kjósa um það um helgina hvort þeir vilja láta banna alla umferð
einkabila tólf sunnudaga á ári.
ráðstöfun stjórnarinnar og vildu
að þetta yröi tekið upp alla
sunnudaga. Þeir hófu þvi að
safna undirskriftum. Þeim varö
vel ágengt og tverrh árum eftir
aö undirskriftasöfnun hófst áriö
1973 höföu rúmlega 115 þúsund
manns skrifað unþir skjal
þeirra, þess efnis að umferö
yrði bönnuö einkabilum tólf
sunnudaga á ári hverju.
Ferðaskrifstofumenn i Sviss
eru á móti þessu umferðabanni
og segja aö um hundrað þúsund
manns komi til Sviss á bilum
sina um hverja helgi. Rikis-
stjórnin var komin i klemmu og
lætur nú almenning skera úr.
Fóstureyðingar og aukið
f jármagn til háskóla
Kosið var um þaö i september
á siðasta ári hvort leyfa ætti
frjálsar fóstureyðingar en nýju
lögin voru felld i þjóöarat-
kvæöagreiöslu. Nú um helgina
veröur þetta mál á dagskrá einu
sinni enn. Þeir sem berjast fyrir
þessu máli i Sviss hafa nú safn-
að f jölda undirskrifta og ekki er
talið fært annaö en aö láta
þjóöina skera úr málinu. Kosiö
verður um þaö hvort eigi aö
leyfa fóstureyöingu vegna
félagslegra jafnt sem læknis-
fræöilegra ástæðna. Þau lög
sem i gildi eru um fóstureyðing-
ar geta kantónurnar túlkað á
mjög frjálslegan hátt og i 25
þeirra geta þær konur sem hafa
um fimmtiu til sextiu þúsund
krónur undir höndum fengið aö-
geröina framkvæmda. Þetta
misræmi vilja margir ekki
sætta sig við.
Stjórnvöld i Sviss ákváöu aö
veita mun meira fjármagni til
háskóla i landinu en hingað til
vegna sivaxandi fjölda
stúdenta. Hægri flokkarnir i
landinu hafa nú mótmælt
þessu og þvi verður aö skera úr
meö þjóöaratkvæði. Áætlaður
kostnaöur var ráögeröur um
12.5 milljónir dala en þeir sem
eru á móti þessu segja að hann
verði mun meiri eða allt að 30
milljónum dala. Stúdentum
hefur fjölgað mikið og gert er
ráð fyrir aö þeir veröi um 70
þúsund árið 1985. Þvi þótti
stjórninni nauðsynlegt aö auka
fjárframlög til háskólanna.
Mótmæltu hækkun á
brauðum
Sósialdemókratar i Sviss mót-
mæltu kröftulega þegar hækka
átti brauð i landinu. Flokkur
þeirra er einn af stjórnar-
flokkunum i landinu. Hækka átti
brauð um sem svarar fimmtiu
islenskum krónum hvert kiló.
Þessar ráðstafanir voru geröar
þegar það fékkst ekki i gegn að
leggja á nokkurs konar viröis-
aukaskatt. Varaforseti sviss-
neska verkalýössambandsins
mótmælti þessari hækkun
einnig fyrir hönd félags sins og
sagði að þaö væri nær að leggja
skatta á hina fjölmörgu banka i
landinu áður en farið væri að
taka fé af almenningi.
Svissneskir kjósendur veröa
að taka að sér að leysa úr þess-
um deilumálum með þvi að
ganga að kjörborðinu um helg-
ina.
—KP
Sendum
Dregið í kvSld
Drœtti ekki frestað
Afgreiðslan er i
Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1.
VNNINGAR:
lln/alsferö fyrir 4 til Mallorka kr. 480.000.00
Útsýnarferð fyrir 2 til Grikklands — 320.000.00
Útsýnarferð fyrfr 2 tll ítalíu — 260.000.00
Úrvalsferð fyrir 2 til Mallorka — 240.000.00
Úrvalsferð fyrir 2 til Ibiza — 240.000.00
Úrvaisferð fyrir 2 til Ibiza — 240.000.00
Útsýnarferð fyrlr 2 til Spánar — 240.000.00
Útsýnarferð fyrlr 2 til Júgóslavíu — 240.000.00
Sími 82900
9. far með Fluglefðum
fyrlr 2 til New York
10. farmeð Flugleiðum
fyrir 2 til Parísar 8/21
11. far með Fluglelðum
fyrir 2 til Luxemburg 8/21
12. far með Flugleiðum
fyrir 2 til London 8/21
- 223.600.00
- 170.800.00 S
- 160.800.00
- 133.800.00 £
2.949.000.00
Sœkjum