Vísir - 22.07.1978, Qupperneq 2
Laugardagur 22. júli 1978 vlsœ
Litið við á landsmóti — Litið við á landsmáti — Litið við á landsmáti — Litið við á landsmáti
„Ætf! jþeffa verði ekki
FF
eins 09 á Laugarvatni
— sögðu menn sem lágu og sleiktu sólskinið, alsœlir á svip
Þaö var glaöa sólskin og hiti á
Selfossi þegar viö iitum þar viö i
gær og heilsuöum upp á gesti og
keppendur á 16. landsmóti
UMFt. Þeir sem ekki voru i
keppni, lágu og sleiktu sólskiniö,
alsælir á svip. „Ætli þetta veröi
ekki bara eins og á Laugarvatni’
65”, sögöu menn.
Búist er viö aö um 15 tii 20 þús-
und manns sæki þetta mót.
„Sleppum ekki bikarn-
um”
t tjaldbúðum UMFN voru leik-
menn körfuknattleiksliðsins að
skrafa um andstæðinga sina um
leið og þeir nutu sólarinnar.
Njarðvíkingar ætla ekki að láta
titilinn af hendi fyrr en i fulla
hnefana. „Við erum að safna bik-
urum, og ef við höldum titlinum á
þessu móti þá eigum við tvo”,
sagði fyrirliðinn Gunnar Þor-
varðarson. Þeir álitu að HSK
strákarnir yrðu skæðir keppi-
nautar en þeir myndu hafa það
samt. úrslitaleikurinn i körfu-
knattleiknum verður á sunnudag.
Leynifundur
Við rákumst á hóp stráka sem
voru á leynifundi út undir vegg á
iþróttahúsinu. Þeir voru að funda
um þaðhvernig best væri að taka
Keflvikinga i karphúsið. Þetta
var lið Einherja frá Vopnafirði
sem keppir fyrir Austurland i
knattspyrnu á mótinu. „Það er
auðvitað algjört leyndarmál hvað
við vorum að ræða um”, sagði
þjálfarinn Ingólfur Hannesson,
„en við höfum fundið lykilinn að
sigrinum.”
,,Við mölum þetta”
„Við burstuðum Keflavik, sem
er í fyrstu deildinni 2-1”, sagði
Einar Boliason og Hafsteinn Guömundsson.
SKIPTAR SKOÐANIR — SKIPTAR SKOÐANIR — SKIPTAR SKOÐANIR — SKIPTAR SKOÐANIr]
si kiptar skoðanir um útflu tningsl lannið
„Tilgangurinn var
að skapa pólitískan
ávinning fyrir flokk
forvígismanna
ii
— segir Jónas Haraldsson lögfrœðingur hjó LÍÚ
— Telurþú aö löglegt sé
og heimilt aö beita aö-
geröum eins og til dæmis
útflutningsbanni i verka-
lýös- og kjarabaráttunni.
Ef ekki hvernig má koma
i veg fyrir aö slikum aö-
gerðum sé beitt?
,,Ef ég á að svara þessu
á staðnum um lögmæti
útflutningsbannsins þá tel
ég með hliðsjón af dóma-
praksis Félagsdóms að
þessi aðgerð Verka-
mannasambandsins sé
lögmæt, aldrei þessu
vant.
I lögunum um stéttar-
félög og vinnudeilur núm-
er 80/1938 eru ákvæði um
boðun verkfalla og með
hvaða hætti ákvarðanir
um vinnustöövanir skuli
teknar. Þar sem lögin
hafa ekki aö geyma nein
ákvæði um ákveðna
framkvæmd vinnustöðv-
ana verður að telja að
verkalýösfélögin hafi
nokkuð frjálsar hendur
um þaö, hve viðtæk hver
vinnustöðvun skuli vera.
Annars er vinnulög-
gjöfin óskýr um mörg at-
riði og löngu úrelt og þvi
brýn nauðsyn aö setja
nýja vinnulöggjöf sem
samrýmist nútimanum,
enda þótt verkalýðsfor-
ystan telji þessi.lög þau
einu sem aldrei úreldast,
þrátt fyrir að þau séu 40
ára gömul.”
— Eru aögerðir sem
slikar eöliieg aöferö af
háifu launþegasamtaka
til aö ná fram bættum
kjörum, eöa er hér um úr-
eltar aðferðir aö ræöa?
„Ég tel að tilgangurinn
með þessari aðgerð hafi
fyrst og fremst verið sá af
hálfu forvigismanna
Verkamannasambands-
ins að skapa sér og
stjórnmálaflokki þeim er
þeir styðja, pólitiskan
ávinning I komandi kosn-
ingum, frystihúseig-
endum erfiðleikum og
þjóðinni tjóni. Ég tel að
þetta hafialltheppnast en
fæ ekki séö að möguleiki
hinsalmenna launþega til
Jónas
bættra kjara hafi aukist,
þvert á móti.
— Telur þú aö rétt-
lætanlegt sé aö tiltölulega
þröngur hópur forystu-
manna i verkalýðshreyf-
ingunni geti tekið svo
afdrifarikar ákvaröamir
sem varöa þjóöina alla
mjög miklu?
„Nei. Ég tel, að þegar
kjarasamningar eru laus-
ir og taka á ákvörðun um
verkfall, þá sé það á valdi
almenns félagsfundar
viðkomandi verkalýðsfé-
lags, þar sem meirihluti
fundarmanna ræður, að
taka ákvörðun um það,
hvort gripið verður til
verkfalls eða ekki. Það er
út I hött að fela slikar
ákvarðanir svokölluðu
trúnaðarráði eða fram-
kvæmdarráði, sem skip-
að er örfáum mönnum,
sem i sumum -tilvikum.
hafa sett sin pólitisku
stundarmarkmið ofar
hagsmunum umbjóðenda
sinna.
Það er ekki nóg af hálfu
verkalýðsforustunnar að
krefjast afskipta og
ákvörðunarréttar I
stjórnun fyrirtækja til
handa launþegum, ef
launþegunum er svo ekki
gefinn kostur á að hafa
afskipti eða ákvöröunar-
rétt um aðgerðir, sem
teknar eru I nafni stéttar-
félags launþegans.”
—HL
,Slíkar aðgerðir eru
árangursríkari og
kostnaðarminni en
allsherjarverkföll"
— segir Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambandsins
— Telur þú aö löglegt
sé og heimilt aö beita aö-
geröum eins og út-
flutningsbanni i verka-
lýösbaráttunni?
„Ég hef ekki rekist á
neina lagagrein i vinnu-
löggjöfinni sem skyldar
verkalýðsfélög til alls-
herjar verkfaila. Þess
finnast mörg dæmi að
takmörkuðum verkfalls-
aðgerðum hafi verið
beitt. Frægt dæmi þess er
þegar Trésmiðafélag
Reykjavikur boðaði eitt
sinn til verkfalls sem ein-
göngu náði til Arbæjar-
hverfis. Vinnuveitenda-
sambandið áfrýjaði mál-
inu og Félagsdómur
dæmdi vinnustöðvunina
fullkomlega löglega.
Útflutningsbannið er
verkfallsaðgerð á hluta af
vinnu hafnarverka-
manna. Að slik aögerð sé
ekki heimil á ser enga
stoð i lögum. Menn geta
haft á þessu mismunandi
skoðanir og ályktað Ut f rá
þeim, en við lagabókstaf
styðjast þeir ekki.
Ég er ekki aðdáandi
Vinnuveitendasambands-
ins en þeir eru ekki þeir
glópar að þeir myndu
ekki vera fyrirlöngu bún-
ir að höfða mál fyrir
Félagsdómi og fá út-
flutningsbannið dæmt
ólögmætt, ef þeir teldu til
þess minnstu möguleika.
Þeir hafa á sinum
snærum marga hæfa lög-
fræðinga og enginn þeirra
taldi hina minnstu mögu-
leika til slikra aðgerða.
Þau viðbrögð Vinnuveit-
endasambandsins að ætla
að mæta þessu með verk-
banni sýna það og sanna.
Það er svo aftur á móti
opinbert leyndarmál að
Vinnumálasamband
samvinnufélaga neitaði
að taka þátt I sliku verk-
banni og kom þá ekki til
frekari atkvæðagreiðslu
innan Vinnuveitenda-
sambandsins enda ekki
samstaða um málið þar”.
— Telur þú réttlætan-
legt aö tiltölulega þröng-
ur hópur forystumanna i
ve rka lý ös hr ey f ingunni
getitekiö svo afdrifarikar
ákvaröanir sem varöa
alla þjóöina mjög miklu?
„Útflutningsbann var
fyrst rætt á stjórnarfundi
sambandsins. Sá fundur
var skipaður 20-30 mönn-
um. Siðan var forystu
sambandsins falið að
kanna málið til hlitar hjá
hinum ýmsu aðildar-
félögum.
1 mörgum aðildarfélag-
anna var þessi ákvörðun
tekin á almennum félags-
fundum en hjá öðrum á
fundum stjórna og
trúnaðarráðs. Hjá mörg-
um þeirra var leitað út
fyrir stjórnir og trún-
aðarráð og rætt við
trúnaðarmenn á hinum
einstöku vinnustöðum.
Ég býst við þvi að þeg-
ar ákvörðun var endan-
lega tekin hafi meira en
þúsund manns tekið af-
stöðu til og stutt þessa að
gerð. Ég efast um að I
einstökum málum hafi
fleiri verið hvattir til
samráðs um ákvarðana-
töku og i sambandi við út-
flutningsbannið”.
— Eru aðgeröir sem
slikar árangursrlkar eöa
er hér um úrelt vopn aö
ræöa?
„Aðgerðir sem þessar
eru tvimælaiaust
árangursrikar. En hins-
vegar þarf að beita þeim
af ákaflega mikilli gætni.
Þaö þarf að hafa sam-
band við menn á hinum
ýmsu stöðum þvi að stað-
bundin vandamál eru
alltaf til staðar.
Hvortum úrelt vopn sé
að ræða þá tel ég hið
gagnstæða. Spurningin er
fremur hvortekki seúrelt
að boða alltaf til alls-
herjarverkfalls.
Sannleikurinn er sá að
þessi allsherjarverkföll
eru algjörlega islenskt
fyrirbæriog nær óþekkt i'
nágrannalöndum okkar.
Þar er hinsvegar meira
af takmörkuðum verk-
fallsaðgerðum sem
standa i einn til tvo daga,
en ekki að öll vinna sé
lögð niður i allt að 5-6 vik-
ur eins og hér hefur tiðk-
ast.
Ég held að sveigjan-
legri aðgerðir séu oft á
tiðum mun árangursrik-
ari og kostnaðarminni”.
— Mun Verkamanna-
sambandiö aflétta út-
f lu t nings ba nninu til
stuðnings aðgerðum
stjórnvalda til aðstoöar
sjávarútvegnum?
,,Ég get ekki svarað
fyrir Verkamannasam-
bandið, en útflutnings-
bannið var til þess ætlað
að mótmæla aðgerðum
stjórnvalda. Þetta er allt
til umræðu i Verka-
mannasambandinu og til
dæmis er þar boðaður
fundur á mánudag.
Fyrst c® fremst verð-
um við úl viðræðu um að
aflétta útflutningsbann-
inu ef aðgerðir stjórn-
valda tryggja verkafólki
innan verkamannasam-
bandsins og á hliðstæöum
launum óskerta samn-
inga. —HL