Tíminn - 30.09.1969, Page 16
Hafnarf jörður:
Vilja ógilda
kosninguna!
KJ-Reykjavík, mánudag.
Þrjú þúsund fimm hundruð og
áttatíu Hafnfirðingar gengu að
kjörborðinu í gær, og greiddu at-
kvæði um það, livort veitingamað
urinn Rafn Sigurðsson skuli fá
leyfi til vínveitinga í veitingahús
inu Skiphól í Hafnarfirði. 2037
sögðu já við leyfisveitingunni, en
1519 voru á móti, auðir seðlar
voru 18 og ógildir 6.
Þeir sem töpuðu í kosnin'gunum
íhuga nú að láta ógilda kosning
una, vegna framkvæmdar kosn-
inganna, en vínsinnar fengu leyfi
yfirkjörstjórnar á síðustu stundu,
til að hafa fulltrúa í kjördeildum,
eins og við aðrar kosningar, en
áður mun hafa verið talað um,
að hvorugur aðilinn hefði fulltrúa
í kjördeildum. Bæjarráð kom
saman í gær, vegna þessa máls,
en yfirkjörstjórn tók samþykkt
bæjarráðls sem fyrirmæli, og
hélt því kjvirfundur áfram eins og
áætlað var.
Búast má við að andstæðingar
leyfisins beri mál þetta upp í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar á næsta
fundi, og vilji láta ógilda kosning
una, þar sem þeir töpuðu kosning
unum, og vilíi láta kjósa aftur. Er
því alls ekki enn séð fyrir endann
á vínmálum Hafnfirðinga, sem
Framhald á bls. 14.
Eftir móttöku viSurkenningarinnar, f. v.: Hannes Pétursson, GuSmundur Hagalín, Þórbergur ÞórSar-
son, Thor Vilhjálmsson. Tímamynd-Gunnar)
5 fengu úr rit-
höfundasjóðnum
SB-Reykjavík, mánudag.
Úthlutun úr rithöfundasjóðj
íslands, fór fram í annað sinn
í gær við hátíðlega athöfn að
Hótel Sögu. Að þessu sinni
var úthlutað 625 þúsund krón
um til fimm rithöfunda, þeirra
Guðmundar G. Hagalín, Hann
esar Péturssonar, Thors Vil
lijálmssonar, Þórbergs Þórðar
sonar og Guðmundar Halldórs
sonar frá Bergsstöðum. I
stjórn Ritliöfundasjóðsins eru:
Knútur Hallsson, formaður,
Björn Th. Björnsson og Stefáu
Júlíusson.
Athöfnin að Hótel Sögu hófst
Framhald ð bls 2.
mmuummmm
íslendingar í
Kalforníu mót-
mæla skipun
vararæðismanns
Mrangursríkar umræður
á fjölmennri ráöstefnu
um sveitastjórnarmál
SB—Reykjavík, mánudag.
Blaðinu barst í dag bréf und
irritað af tólf félögum fs-
Iendingafélagsins í San Fran
cisco og hágrenni, þar sem
þeir vilja mótmæla, hvernig
íslenzk yfirvöld bera hlut þeirra
fyrir borð, nú síðast, þegar
settur var vararæðismaður i
San Francisco, sem ekki talar
íslenzku, né hefur starfað í
félaginu. Telja félagamir tólf
að margir alíslenzkir memi á
staðnum, hefðu getað komið til
greina við val í starfið.
Upphaf bréfsins er á þessa
leið: — íslendingahópurinn
sem býr hér við Kyrrahafs-
ströndina, hefur líklega flutzt
eins langt frá íslandi og hægí
Framihald á bls. 14.
Rætt um valdsvið ríkis- og sveitarfélaga, fjármál, sameiningu sveitarfélaga og framtíðar-
verkefni, og hina nýju byggðastefnu, — þátt sveitarfélaga í uppbyggingu atvinnulífs og
væntanlegar bæjar- og sveitarstjórnarkosningar.
EJ—Reykjavík, mánudag.
Mjög velheppnaðri og árangurs
ríkri ráðstefnu um sveitarstjórnar
mál lauk í Reykjavík á sunnu-
dagskvöldið. Var það skipulags-
ráð Framsóknarflokksins, sem til
ráðstefnunnar boðaði, og sóttu
hana á annað hundrað menn viðs
vegar að af landinu. Voru þar
m. a. mættir fulltrúar frá nær
öllum bæjarfélögum og stærri
sveitarfélögum á landinu. Mjög
fróðleg og ítarleg erindi voru
flutt, umræður urðu miklar og
margar ályktanir gerðar. Verð
ur heildarályktun ráðstefnunnar
birt í blaðinu einhvern næstu
daga.
Ráðstefnan hófst á laugardags
morguninn kl. 10 fyrir hádegi, og
lauk henni á sunnudagskvöld um
kvöldimatarleytið. Fundir voru á
laugardag fram undir kvöldmat,
en nefndarstörf allt laugardags
kvöldið fram að miðnætti. Ráð
stefnan hófst að nýju kl. 9,30 a
sunnudagsmorguninn og stóð t:)
kvölds. Má segja, að ráðstefna-i
hafi verið að störfum svo til
stanzlaust frá því hún var sett
og þar til henni var slitið.
Jóhannes Elíasson, vararitari
Framsóknarflokksins, setti rað-
stefnuna í forföllum Helga Bergs
ritara flokksins. Fyrri dagínn voru
síðan flutt mjög ítarleg, athyghs
verð og fræðandi erindi um hina
ýmsu þætti sveitarstjórnarmála.
Ólafur Jóhannesson. formaður
fiokksins, fjallaði um valdsvið ik
isins og sveitarfélaganna, Hjálm
ar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri,
ræddi um sameiningu sveitarf'-
laga. Áskell Einarsson, fyrrv.
hæjarstjóri fjaUiaði um hina
nýju byggðastefnu og Kristjan
Benediktsson, framkvæmtlastjórj
ræddi um framtíðarverkef
sveitarfélaganna Alexander Stef
ánsson, oddviti, fjallaðj um pátt
sveitarfélaganna í uppbyggingu at-
vinnulífsins en þar sem Alexan.1
er seinkaði nokkuð, flutti hann
erindi sitt á sunnudagsmorguninn.
Séð yfir hluta ráðstefnugesta. Ólafur Jóhannesson j ræðustól.
Um öll þessi erindi urðu mik’.ai
umræður. bæði á almennum fund
um ráðstefnunnar og eins í nefnd
um.
Ráðstefnunn' var skipt í tvær
Framhald á bls. 2.
Ólafur Jóhannesson
Bjarni Benediktsson
k ÖNDVERÐUM
MEIÐl IKVÖLD
í kvöld, þriðjudagskvöld, verður
Sjónvarpinu þátturinn „Á önd
verðum rneiði" Að þessu sinm
kuma fram i þættinurr þeir Ólal
ur Jóhanncsson, fonnaðiir Fram
sóknarflokksins og Bjarni Bene
diktsson, foinætisráðherra. Þátt
urinn hefst að loknum fréttum
Ki. 20.30.
(Tímamynd: Gunnar)