Tíminn - 25.10.1969, Page 1

Tíminn - 25.10.1969, Page 1
SAMVINNVBANKINN Ahranest Grundarfirði Patreksfirði$. Saui Járkróki' Húsavik ■■ Kápaskeri Stöðvarfirði Kefiavik Hafnarfirffi Steykjavik SAMVSmUBANKINN EJ. - Reykjavík, föstudag. Klukkan 15 í dag hófst í Nor- ræna hús,inu fjölmennt þing ís- lenzkra rithöfunda, og lýkur þvi á sunnudaginn. Viðstaddir setn- ingarathöfnina í dag voru forseti íslands, Dr. Kristján Eldjárn og forsetafrú, frú Halldóra Eld- járn, Dr. Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, og Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, auk mikils fjölda rithöfunda. Til- gangur þingsins er að ræða og gera ályktanir um hagsmuna- mál rithöfunda, og er þetta fyrsta þingið sinnar tegundar, sem haldið er hér á landi. Mynd in er frá setningunni, Einar Bragi í ræðustól. (Tímamynd — GE). Samið við Bretland NTB-Osló, föstudag. Viðræðunum um útflutning Norð urlanda á freðfiskflökum til Bret lands lauk seint í kvöld í Osló, og hafði þá náðst samkomulag um það, hvaða aðalreglur skuli gilda um þann útflutning á grundvelli lágmarksverðs á þessari útflutn- ingsvöru Norðurlanda. í viðræðun um tóku þátt sendinefndir frá Bretlandi, Danmörku, íslandi, Noregi og Svíþjóð. f viðræðunum var samið um hinar ýmsu reglur, sem verða notaðar í lágmarksverð kerfinu og einnig náðist samkomu lag um víðtækar viðræður uin- ræddra ríkja, ef þetta kerfi skyldi af einhverjum ástæðum ekki reyn ast í framkvæmd eins og til er ætlazt. (Ef ísland gerist aðili að EFTA, þá gildir þetta einnig fyrir ísland — sjá nánar frétt á bak- síðu). Á fundinum í Osló náðist sam komulag um ýmiss lágmarksverð, en enn er mikið eftir áður en allt verðkerfið hefur verið ákveðið. Viðræður um það. sem eftir er, eiga að fara fram á fundi sér fræðinga í London um miðjan nóv ember. — Eftaráðinu verður nú til- kynnt, að samkomulag hafi náðst í höfuðatriðum, sagði formaður norsku sendinefndarinnar, Jens Boyesen ambassadior, við NTB í kvöld. Niðurstaða fundarins er jábvæð, þótt ekki hafi tekizt að ákveða alla verðflokkana, og við vonum að samkomulagið muni m. a. verða jákvæður þáttur varðandi hugsanlega aðild íslands að EFTA sagði hann. Ambassadorinn sagði, að sam- komulag hefði náðst um viðræður aðila, ef útflutningur Norðurland anna til Bretlands verður það Framhald á þls. 10. Rætt við Einar Ágústsson um fund Þingmannasambands NATO: NATO-RiKI REYNIAD KOMA A ÞINGRÆDIIGRIKKLANDI EJ-Reykjavík, föstudag. Þingmannasamband Atlantshafs banoalagsins sat nýlega ársfund sinr, í Briissel, og voru þar mörg þýðingarmikil mál á dagskrá. Ein ar Ágústsson, sem var einn ís- lenzku fulltrúanna á fundinum, sagði í viðtali við blaðið í dag, að meðal þeirra mála, sem hæst bar, hafi verið Grikklandsmálið, en í því sambandi var gerð sérstök á- lyktun, þar sem áherzla er lögð á það, að stjórnir aðildarríkja NATO noti ÖU tiltæk ráð til þess að koma á frjálsum kosningum í Grikklandi og þingbundinni stjóm. Blaðið hafði í dag samband við Einar Ágústsson, varaformann Framsóknarflokksins, og spurði hann um fundinn og þau mál, sem þar voru efst á baugi. — Hvar og hvenœr var fund- urinn haldinn, Einar? — Þessi fundur Þingmannasam bands NATO var haldinn dagana 18.—21. október síðastliðinn, en áður höfðu nefndarfundir staðiS í þrjá daga, þannig að raunveru- lega hófst þessi samkoma 15. október. I þessum fundi taka þátt allar NATO-þjóðiinar, að undanskild- um Grikkjum, sem ekki hafa þjóð þing eins og sakir standa. Að þessu sinni sátu um 200 þintg- menn fundinn. — Hverjir sátu fundinn af fs- lands hálfu? — Auk mín voru það Birgir Finntsson, forseti Sameinaðs Al- þinigis, Matthías Á. Matthiesen og Friðjón Þórðarson, sem á sæti í fastanefnd Þingmannasambands- ins, og var hann formaður ís- lenzlku sendinefndarinnar að þessu sinni. — Hvernig var fundarstörfum Fnamihald á bls. 10. Einar Ágústsson NTB-Bonn, föstudag. Vestur-þýzka stjómin ákvað í dag að hækka gengi þýzka marksins um 8.5%, þannig að nú fást 3.66 mörk fyrir Banda- ríkjadollar í stað fjögurra marka áður. Þessi gengisskrán- ing gengur í gildi á miðnætti aðfaranótt mánudagsins, samkv. þvi er Karl SchiUer efnahags- málaráðherra tilkynnti á blaða mannafundi í dag. Þetta er í þriðja siim, sem gengi þýzka marksins hefur ver ið breytt frá því í júní 1948, er þýzk gjaldeyriismál voru end urskoðuð í heild. Stjórnin lækk aði getngi marksins í september 1049, í sambandi við getngis- lækkun brezka pundsins á sama tíma, en síðan var markið hæfck að aftur í 4 mörk á móti Banda ríkjadollar í marz 1961. Schillr minnti á, að harnn hefði heitið því, ekömmu áður en samsteypustjórnin var mynd uð, að stjómin myndi finna end anlega og trygga lausn á gengis vandamálum Vestur-Þýzkalands svo fljótt se<m hæfft væri — og það hefur nú gerzt, bætti hann við. Schiller sagði, að eins og fyrr myndi gengi marksins geta færzt um þrjá pfemninga upp fyrir eða niður fyrir hið ákveðna sfcraða gengi, 3.66 mörk á móti dollar. Hann sagði, að ekki væri ástæða til þes að efast um, að alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn myndi samþykkja þessa breyt- ingu á 6kráningu marksins. Þá sagði hann, að ákvörðunin hefði verið tekie í samráði við gjald eyrisnefnd Efnahagsbandalags- ins, en hins vegar hefði efna- hags- og f j ármálaráðherrum Efnahagsbandalagslandanna að- eins verið tilkynnt um þessa á- kvörðun, en efcki verið spurðir álits. Schiller sagði, að gengis- breytingití hefði verið „sterk“ en efcki róttæk. „Við höfum far- ið hinn gulloa meðalveg", sagði hann — og breytingin er svipuð Framhald á bls. 10. MARIHUANA OG LSD LOKS BANNAD HÉR! KJ - Reykjavík, föstudag. Samkvæmt auglýsingu í nýút- komnu Lögbirtingablaði, hefur allt fram undir þetta verið leyfi- legt að flytja hingað til lands ýmiss nautnalyf, eins og LSD, sem á ís- lenzku er nefnt lyselgíð, marihuana á íslenzku kannabis, og fleiri álíka iyf. Það er ekki fyrr en núna, 14. október, að Dóms- og kirkjumála- ráðunej'tið hefur gefið út reglu- gerð um bann við tilbúningi og verzlun með þessi algengu nautna- lyf, sem margir telja, að sé neytt töluvert hér á landi. Virðist svo sem ráðuneytið hafi kippt við sér á dögunum þegar talað var og skrifað um, að eiturlyfjasmygl ætti sér stað inn í landið. Vorið 1968 voru samþykktar breytingar á lögum urn verzlun og tilbúrung á ópíum, en lög um það voru orðinl gömul og virðist efcki hafa verið gert ráð fyrir, að banna tilbúning og verzlun með hin algengu nautna lyf, og liggur því í augum uppi, að þeir sem hugsanlega hefðu ver ið tebnir með eitthvað magn af þessum lyfjum, hafa átt að geta Framhald á bls. 10. Vestur-Þýzkaland: Ð UM 8,5%

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.