Tíminn - 25.10.1969, Qupperneq 1
SAMVINNVBANKINN
Ahranest
Grundarfirði
Patreksfirði$.
Saui Járkróki'
Húsavik ■■
Kápaskeri
Stöðvarfirði
Kefiavik
Hafnarfirffi
Steykjavik
SAMVSmUBANKINN
EJ. - Reykjavík, föstudag.
Klukkan 15 í dag hófst í Nor-
ræna hús,inu fjölmennt þing ís-
lenzkra rithöfunda, og lýkur þvi
á sunnudaginn. Viðstaddir setn-
ingarathöfnina í dag voru forseti
íslands, Dr. Kristján Eldjárn
og forsetafrú, frú Halldóra Eld-
járn, Dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, og Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri, auk
mikils fjölda rithöfunda. Til-
gangur þingsins er að ræða og
gera ályktanir um hagsmuna-
mál rithöfunda, og er þetta
fyrsta þingið sinnar tegundar,
sem haldið er hér á landi. Mynd
in er frá setningunni, Einar
Bragi í ræðustól.
(Tímamynd — GE).
Samið við Bretland
NTB-Osló, föstudag.
Viðræðunum um útflutning Norð
urlanda á freðfiskflökum til Bret
lands lauk seint í kvöld í Osló, og
hafði þá náðst samkomulag um
það, hvaða aðalreglur skuli gilda
um þann útflutning á grundvelli
lágmarksverðs á þessari útflutn-
ingsvöru Norðurlanda. í viðræðun
um tóku þátt sendinefndir frá
Bretlandi, Danmörku, íslandi,
Noregi og Svíþjóð. f viðræðunum
var samið um hinar ýmsu reglur,
sem verða notaðar í lágmarksverð
kerfinu og einnig náðist samkomu
lag um víðtækar viðræður uin-
ræddra ríkja, ef þetta kerfi skyldi
af einhverjum ástæðum ekki reyn
ast í framkvæmd eins og til er
ætlazt. (Ef ísland gerist aðili að
EFTA, þá gildir þetta einnig fyrir
ísland — sjá nánar frétt á bak-
síðu).
Á fundinum í Osló náðist sam
komulag um ýmiss lágmarksverð,
en enn er mikið eftir áður en allt
verðkerfið hefur verið ákveðið.
Viðræður um það. sem eftir er,
eiga að fara fram á fundi sér
fræðinga í London um miðjan nóv
ember.
— Eftaráðinu verður nú til-
kynnt, að samkomulag hafi náðst
í höfuðatriðum, sagði formaður
norsku sendinefndarinnar, Jens
Boyesen ambassadior, við NTB í
kvöld. Niðurstaða fundarins er
jábvæð, þótt ekki hafi tekizt að
ákveða alla verðflokkana, og við
vonum að samkomulagið muni m.
a. verða jákvæður þáttur varðandi
hugsanlega aðild íslands að EFTA
sagði hann.
Ambassadorinn sagði, að sam-
komulag hefði náðst um viðræður
aðila, ef útflutningur Norðurland
anna til Bretlands verður það
Framhald á þls. 10.
Rætt við Einar Ágústsson um fund Þingmannasambands NATO:
NATO-RiKI REYNIAD KOMA
A ÞINGRÆDIIGRIKKLANDI
EJ-Reykjavík, föstudag.
Þingmannasamband Atlantshafs
banoalagsins sat nýlega ársfund
sinr, í Briissel, og voru þar mörg
þýðingarmikil mál á dagskrá. Ein
ar Ágústsson, sem var einn ís-
lenzku fulltrúanna á fundinum,
sagði í viðtali við blaðið í dag, að
meðal þeirra mála, sem hæst bar,
hafi verið Grikklandsmálið, en í
því sambandi var gerð sérstök á-
lyktun, þar sem áherzla er lögð
á það, að stjórnir aðildarríkja
NATO noti ÖU tiltæk ráð til þess
að koma á frjálsum kosningum í
Grikklandi og þingbundinni
stjóm.
Blaðið hafði í dag samband við
Einar Ágústsson, varaformann
Framsóknarflokksins, og spurði
hann um fundinn og þau mál, sem
þar voru efst á baugi.
— Hvar og hvenœr var fund-
urinn haldinn, Einar?
— Þessi fundur Þingmannasam
bands NATO var haldinn dagana
18.—21. október síðastliðinn, en
áður höfðu nefndarfundir staðiS
í þrjá daga, þannig að raunveru-
lega hófst þessi samkoma 15.
október.
I þessum fundi taka þátt allar
NATO-þjóðiinar, að undanskild-
um Grikkjum, sem ekki hafa þjóð
þing eins og sakir standa. Að
þessu sinni sátu um 200 þintg-
menn fundinn.
— Hverjir sátu fundinn af fs-
lands hálfu?
— Auk mín voru það Birgir
Finntsson, forseti Sameinaðs Al-
þinigis, Matthías Á. Matthiesen og
Friðjón Þórðarson, sem á sæti í
fastanefnd Þingmannasambands-
ins, og var hann formaður ís-
lenzlku sendinefndarinnar að
þessu sinni.
— Hvernig var fundarstörfum
Fnamihald á bls. 10.
Einar Ágústsson
NTB-Bonn, föstudag.
Vestur-þýzka stjómin ákvað í
dag að hækka gengi þýzka
marksins um 8.5%, þannig að
nú fást 3.66 mörk fyrir Banda-
ríkjadollar í stað fjögurra
marka áður. Þessi gengisskrán-
ing gengur í gildi á miðnætti
aðfaranótt mánudagsins, samkv.
þvi er Karl SchiUer efnahags-
málaráðherra tilkynnti á blaða
mannafundi í dag.
Þetta er í þriðja siim, sem
gengi þýzka marksins hefur ver
ið breytt frá því í júní 1948,
er þýzk gjaldeyriismál voru end
urskoðuð í heild. Stjórnin lækk
aði getngi marksins í september
1049, í sambandi við getngis-
lækkun brezka pundsins á sama
tíma, en síðan var markið hæfck
að aftur í 4 mörk á móti Banda
ríkjadollar í marz 1961.
Schillr minnti á, að harnn
hefði heitið því, ekömmu áður
en samsteypustjórnin var mynd
uð, að stjómin myndi finna end
anlega og trygga lausn á gengis
vandamálum Vestur-Þýzkalands
svo fljótt se<m hæfft væri — og
það hefur nú gerzt, bætti hann
við. Schiller sagði, að eins og
fyrr myndi gengi marksins geta
færzt um þrjá pfemninga upp
fyrir eða niður fyrir hið ákveðna
sfcraða gengi, 3.66 mörk á móti
dollar. Hann sagði, að ekki væri
ástæða til þes að efast um, að
alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn
myndi samþykkja þessa breyt-
ingu á 6kráningu marksins. Þá
sagði hann, að ákvörðunin hefði
verið tekie í samráði við gjald
eyrisnefnd Efnahagsbandalags-
ins, en hins vegar hefði efna-
hags- og f j ármálaráðherrum
Efnahagsbandalagslandanna að-
eins verið tilkynnt um þessa á-
kvörðun, en efcki verið spurðir
álits. Schiller sagði, að gengis-
breytingití hefði verið „sterk“
en efcki róttæk. „Við höfum far-
ið hinn gulloa meðalveg", sagði
hann — og breytingin er svipuð
Framhald á bls. 10.
MARIHUANA OG LSD
LOKS BANNAD HÉR!
KJ - Reykjavík, föstudag.
Samkvæmt auglýsingu í nýút-
komnu Lögbirtingablaði, hefur
allt fram undir þetta verið leyfi-
legt að flytja hingað til lands ýmiss
nautnalyf, eins og LSD, sem á ís-
lenzku er nefnt lyselgíð, marihuana
á íslenzku kannabis, og fleiri álíka
iyf.
Það er ekki fyrr en núna, 14.
október, að Dóms- og kirkjumála-
ráðunej'tið hefur gefið út reglu-
gerð um bann við tilbúningi og
verzlun með þessi algengu nautna-
lyf, sem margir telja, að sé neytt
töluvert hér á landi. Virðist svo
sem ráðuneytið hafi kippt við sér
á dögunum þegar talað var og
skrifað um, að eiturlyfjasmygl
ætti sér stað inn í landið. Vorið
1968 voru samþykktar breytingar á
lögum urn verzlun og tilbúrung á
ópíum, en lög um það voru orðinl
gömul og virðist efcki hafa verið
gert ráð fyrir, að banna tilbúning
og verzlun með hin algengu nautna
lyf, og liggur því í augum uppi,
að þeir sem hugsanlega hefðu ver
ið tebnir með eitthvað magn af
þessum lyfjum, hafa átt að geta
Framhald á bls. 10.
Vestur-Þýzkaland:
Ð
UM 8,5%