Tíminn - 25.10.1969, Blaðsíða 2
2
TIMINN
LAUGAKDAGUR 25. október 1969
'SSS. •.'. • •'sss"s"s"'"""s"""""""s^s'ss'sss's'
íslenzkar skátabúðir á móti í Noregi í fyrra
LOFTLEIDIR TAKA VID FLUG-
REKSTRIFYRIR FLUGHJÁLP
FLUGHJÁLP KAUPIR TVÆR VÉLAR AF LOFTLEIÐUM
Reykjavík, föstudag.
Frá stofnun Flughjálpar í sl.
aprflmánuði hefir hollenzka flug
félagið Transavia annast flugrekst
ur félagsins. Samningar um þetta
miUi Flughjálpar og Transavia
renna út hinn 8. nóvember n. k.
Nýlega voru undirritaðir um það
samningar miUi Flughjálpar og
Loftleiða, að frá og með 8. næsta
mánaðar taki Loftleiðir við stjórn
flugreksturs Flughjálpar.
Aðalstöðvar flugrekstursins verða
væntanlega í Luxemlborg og
verður fyrirliði þeirra Einar Ólafs
son, en Þorsteinn Jónsson verður
áfram yfirmaður flugliðsins í Sao
SKÁTAR HALDA LANDSMOT1970
Verðlaun veitt fyrir teikningu af mótsmerkinu
Landsmót Skáta 1970 verður
haldið að Hreðavatni dagana 27.
júlí til 3. ágúst n. k.
Undinbúningur mótsins er haf
inn fyrir nokkru, en mörg verk
efni þarf að leysa af hendi áður
en reist verður borg að Hreða
vatni, þar sem gert er ráð fyrir
slíkum þægindum, sem pósti og
síma, vatnsveitu, banka og mörgu
slíku. Að þessu sinni verður regn
boginn notaður sem rammi móts
ins. Að venju þurfa þátttakendur
að leysa margar þrautir og verk
efni, og þeir sem standa sig kom
ast undir enda regnlbogans, þar
sem þeirra mun bíða pottur full
ur af gulli. Búizt er við mikilli
þátttöku skáta úr öUum skátafélög
um landsins svo og frá mörgum
Evrópulöndum og Norður-Amer-
íku.
Stjórn mótsins hefir ákveðið áð
Framhaild á bls. 11.
Tome. Reikningsfærzlur vegna
þessa verða í aðalskrifstofum Loft
leiða í Reykjaivík. Samningurinn
um þetta er gerður til þriggja mán
aða.
Einar Ólafsson lauk stúdents
prófi frá Menntaskólanum í R-vik
árið 1955. Hann stundaði nám í
nokkur ár í Háskóla fslands en
réðist fyrir 10 árum til starfa
hjá Loftleiðum, fyrst við flugum
sjón í Reykjavík, en síðar við
afgreiðslustörf í Luxemlborg, en
þar hefir hann verið afgreiðslu
stöðvarstjóri undanfarin fjögur
ár.
Fluglhjálp hefir nú fjórar Cloud
masterflugv’élar til hjálpaiflugsins
til Biafra, en fimmta flugvélin er
væntanleg á næstunni eftir við
gerð, sem nú er unnið við.
í gær voru undirritaðir samning
ar milli Loftleiða og Flughjálpar
um sölu tvcggja Cloudmasterflug
véla Loftleiða til Flughjálpar. Méð
samningi þessum verða þau þátta
skil í sögu Loftleiða að síðustu
DC 6B flugvélarnar fara nú úr
eigu félagsins og er þar með lok
ið farsælum ferli þeirra í þjón
ustu Loftleiða.
Önnur flugvélanna, sem nú hef
ir verið seld, TF-LLA, er fyrsta
Cloudmasterílugvélin, sem Loft-
leiðir keyptu, en hún kom hing
að í byrjun desembermánaðar ár
ið 1959. Hin flugvélin, sem nu
var seld, TF-LLB kom hingað í
marzbyrjun árið 1960.
Báðar hafa flu'gvélar þessar að
undanförnu verið leigðar hol-
lenzka flugfélaginu Trans&ta. Ö.nn
ur þeirra var notuð til Biafraflugs
ins, en báðar munu þær nú fara
til þess á vegum Flughjálpar.
í s. 1. marzmánuði keypti Flug
hjátp aðrar tvær Cloudmasterflug
vélar af Loftleiðum, TF-LLC og
TF-LLE. Fimmta CLoudmasterflug
vél Loftleiða, TF-LLD, var seld
til Ohile og afhent hinum nýju
eigendum þar í júlí-mánuði árið
1968.
LEIÐRÉTTING
Höfundarnafn undir afmælis-
grein um Pál Þorsteinsson, alþing-
ismann í íslendingaþátttun Tímans
23. okt. átti að vera Vilhjálmur
Iljálmarsson, en ekiki Vilhjálmur
Viihjálmsson, og eru hlutaðeigend
ur beðnir afsökunar á mistökum
þessum.
FOIIIJK
VIÐ BJÓÐVM ÚR VÖRUSKEMMVM
Í ÞORLÁKSHÖFN HAGSTÆDUSTV
VERDIN Á FAF KÚAFÓÐURKÖGGU
UM-A OG BYGGMJÖLI.
A
KOCGLAR
sekkjaðír
BYGG-
M JÖL
sekkjað
Kr.7.755,- Kn 7.350,- Kr.5.q80,-
pr.tonn
KaupfélÖgin Selfossí, Hvolsvelli&Víh
MALAR SÉR TIL
SKEMMTUNAR
SB-Reykjavík, föstudag menn eru listamenn og allir
Um síðustu helgi, opnaði
Steinþór Steingrímsson, mál-
verkasýningu í nýja sýningar
salnum að Borgartúni 32, eða
nánar tiltekið í Klúbbnum við
Lækjarteig. Steiniþór sýnir
þarna 43 olíumálverk, bæði
abstrakt og fígúratfv.
Þegar við skruppum inn í
Klúbb í dag, kvaðst Stdinþór
bafa selt 17 myndir. Þarna gef
ur að líta myndir frá ýmsum
stöðum á landinu, töluvert af
bátum, bæði á sjó og í höfn
svo og hús og landslag.
.— Ég get ekki sagt, að ég
hafi beinlínis lært að mála,
sagði Steinþór.
— En ég hef málað síðan
ég var tíu ára gamall, tók
mér að vísu hvíld í ein tuttugu
ár, þá mátti ég bara ekki vera
að þvi að mála. Ég var í einu
og öðru, bæði til sjós og lands.
Upp úr kafinu kemur, að
þetta „eitt og annað“ er nú
ekki svo lítið .Steinþór virðist
hafa víða tekið til höndunum,
m. a. verið í siglingum, unnið
á skrifstofu, gert út á Raufar
höfn og spilað á píanó í dans
hijómsveitum.
— Hvenær byrjaðirðu svo að
mála aftur?
— Þegar ég vann í Búrfelli,
þá fór ég að dunda við þetta
aftur. Ég var þar fyrir austan
síðustu tvö árin og þá fékk ég
tíma.
Mig langar til að halda áfram
að mála og ætla að reyna að
gefa mér tíma til þess hér
eftir. Það er ekki af neinni
köllun. sem ég mála, mér finnst
bara gaman að því. Ég held
ekki, að þetta séu nein lista
verk, annars er ég alveg á
móti þessu orði „Iist“. Allir
hafa þörf fyrir að tjá sig á ein
Ihvern hátt og ég .geri það með
þvi að mála.
Sýning Steinþórs verður opin
frá kL 14—22 daglega og lýk
ur á sunnudagskvöldið. Verð
myndanna er frá 7000—30.000
krónur.