Vísir - 16.10.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 16.10.1978, Blaðsíða 5
VTSIR Mánudagur 16. oktdber 1978 5 Hljómsveitin er skipuO ungu og fjörugu fólki Tónleikar Kildagórd- sinfón- íunnar Sinfóniuhljómsveit Kildegárd menntaskólans i Kaupmannahöfn dvelst nú i heimsókn hér á landi. Hljómsveitin heldur opinbera tónleika i Norræna húsinu i kvöld, mánudagskvöld, klukkan 20.30. Auk þess mun hún leika i Tónlist- arskólanum i Reykjavik og I Menntaskólanum við Hamrahlið. Þá mun sinfóniuhljómsveitin einnig heimsækja Menntaskólann að Laugarvatni og fara til Akur- eyrar. Kildegárd menntaskólinn er einn af stærstu tónlistarmennta- skólum i Danmörku og i hljóm- sveitinni eru nú 30 manns. Efnis- skrá hljómsveitarinnar er mjög fjölbreytt og auk sinfóniskra verka eru fluttar danskar þjóð- visur i jassútsetningu, búlgarskir þjóðdansar og „barbershop”- söngvar. -SG í kvöld fullkomnasta vídco á landínu Gjald á veiðileyfi tlí útlendinga Þingsályktunartillaga um að lagt verði sérstakt gjald á leyfi, sem seld eru útlendingum til veiða i islenskum laxveiðiám, mun brátt verða lögð fram á Alþingi. Gert er ráð fyrir að gjald þetta renni I rikissjóð og að þvi verði varið til tilrauna með fiskirækt i sjó og vötnum. ^^yrstMnutningsm^irrJillög-^ unnar er Arni Gunnarsson, og i viðtali við Visi i gær sagöi hann, að ástæðan fyrir þessum tillögu- flutningi væri m.a. sú, að sýnt væri, aö sókn erlendra veiði- manna i islenskar laxveiðiár færi vaxandi. Dæmi væru um þaö, að þeir hefðu boðið marg- falt hærra verð fyrir veiðileyfin en islensk veiðifélög heföu getað boðið. A þennan hátt væri bein- linis verið aö bola islenskum veiðimönnum frá islenskum laxveiðiám. Við þeirri þróun yrði að stemma stigu. Hann kvaðst vera þeirrar skoðunar, að eðlilegt væri að út- lendingum veröi gert aö greiða sérstakt gjald fyrir laxveiöi- leyfin, sem nýttist þjóöinni til undirbúnings átaks i fiskirækt. Slik rækt væri álitleg tekjuöfl- unarleið fyrir þjóðina, og hefði t.d. reynst mjög arðsöm i Nor- egi. -GBG FrA LOKUM 16. ALDAR Vf,f| xv; riokiii i ii í SÆÍI UUll'.l'vMÍi'l.ll**; \\ i 4 JJ* FRA OLJOSUM HUGMYNDUM AÐ RÉITRIYFIRSÝN UM ÍSLAND SEINNA BINDI KORIASÖGU ÍSIANDS EFTIR HARALD SIGURÐSSON ER KOMIÐ ÚT Þetta er gullfalleg og vönduð bók, eitt af afrekum íslenskrar prentlistar og stórmerkur þáttur landfræðisögunnar. Seinna bindi hennar, sem nú er komið út, nær frá lokum 16. aldar til 1848, þegar Björn Gunnlaugsson lýkur mælingu íslands og kort hans eru gefin út. Hefur bókin að geyma, auk textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum, og eru 146 myndanna svart-hvítar en 19 litmyndir. Er í bókinni rakin af mikilli nákvæmni saga íslands á kortum frá dögum Guðbrands biskups Þorlákssonar til miðrar 19. aldar og rækileg grein gerð fyrir þróun kortagerðar af norðvestanverðri kringlu heims á því tímabili. Fyrra bindi Kortasögu íslands kom út 1971 og nær frá öndverðu til loka 16. aldar. Rit þetta er stórviðburður í sögu íslenskrar bókaútgáfu. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 Sími 13652

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.