Vísir - 04.11.1978, Blaðsíða 17

Vísir - 04.11.1978, Blaðsíða 17
VISIR Laugardagur 4. nóvember 1978 17 9m viröulegs bankastjóra i New York. Janet þótti hann vera af góðum ættum, en ekki meö nógu traustan fjárhagslegan bakhjarl. „Móðir hennar taldi mig ekki sérlega feitan bita”, segir Husted, sem nú er 51 árs og starf- ar sem verðbréfasali i New York. „Hún spurði mig á sinum tima hversu mikil árslaun ég hefði. Þau voru þá rúmar 5 milljónir króna. Vonir stóðu til aö þau yrðu siðar hærri, en það var þó ekki tryggt. Ég átti ekki von á neinum fjölskylduauöi, alla vega ekki þvilikum sem hún óskaði Jackie til hancyu Hún lagðist þvi gegn ráðahagnum. Trúlofun okkar stóð aöeins I fjóra mánuði. 1 A þessum tima ók Jackie um á gömlum bil, og ekkert i fari henn- 'ar eða lifsmáta benti til aö hún iheföi peninga handa á milli. Ég fór óft til Washington og hjálpaöi henni við það starf sem hún hafði á hendi fyrir Washington Times Herald. Hún gekk á milli fólks og spurði þaö kjánalegra spurninga og tók myndir af þvi. Viö fórum stund- um I stórverslanir og spurðum spurninga eins og : Finnst þér aö eiginmenn eigi að vera með gift- ingarhringa? Jackie skrifaöi niö- ur svarið og tók myndir sem hún notaði svo með greinum sinum”, segir John Husted. Rómantísk bróf, en • •• Auchinclosshjónin héldu mikla trúlofunarveislu, en siðar fór Jackie með John Husted til aö hitta föður sinn. Foreldrar henn- ar höfðu skiliö fyrir alimörgum árum. „Ég bað Jack, föður Jackie, um hönd hennar og hann svaraði: „Auövitaö —en það mun aldrei ganga”. — Hann útskýröi þetta aldrei fyrir mér og ég spurði hann einskis”, segir John Husted. Bréf okkar voru mjög róman- tisk, en siðan fór Jackie að skrifa mér að móöir hennar legöist mjög gegn þessu. Hún sagöi að ef til vill heföum við hlaupið á okkur og ættum að biða. Ég man sérstaklega eftir einu bréfi, þar sem hún bað mig að hlusta ekki á orðróminn um sig og John F. Kennedy. Jackie kvaöst þekkja hann, en sagöi jafnframt aö hann hefði enga þýðingu fyrir sig. Seinna fékk ég bréf, þar sem hún sagði aö ef til vill myndi allt ganga betur ef við biðum I 6 mán- uöi. Jackie haföi þá þegar rætt viö prestinn um brúðkaupið. Loksins fór ég til Washington eina helgina og þvi lauk svo, að hún setti trú- lofunarhringinn i vasa minn á flugvellinum. Það fylgdu engin tár af hennar hálfu, en mér leið illa”, segir Husted. Að giftast vel Þegar hér var komið var Jackie orðin ástfangin af John F. Kennedy. „Jackie var oröin leiö á aö taka viðtöl við fólk i verslunum og fór að leita uppi þingmenn og aöra slika”, segir fyrrverandi unnusti hennar, en á meöan Jackie starfaöi við blaðamennsku haföi hún rúmlega 60 þúsund krónur i laun á mánuði en auk þess fékk hún smáupphæð frá föö- ur sinum. Móðurafi Jackie, James Lee, lagði slika fæð á Jack Bouvier eft- ir að hann skildi við dóttur hans, að hann vildi gera alla afkomend- ur hans arflausa. Gamli maður- inn lét Jackie og Lee systur henn- ar 'skrifa undir yfirlýsingu þess efnis, að þær myndu aldrei gera kröfu til peninga eftir hans dag. Þetta kenndi systrunum þab, að Arið 1953 gekk John F. Kennedy að eiga Jacqueline Bouvier og var brúð kaupið með slikum glæsibrag að það var kallað brúðkaup ársins 1953. ef þær ætluðu sér að búa viö efna- hagslegt öryggi yrðu þær að gift- ast „vel”. 1200 gestir öllum til mikils léttis var brúö- kaupsdagurinn bjartur og fagur. Jafnvel Joe Kennedy gæti ekki hafa „útvegað” fegurra veöur. Hammersmithbúgarðurinn sem Hugh Auchincloss, stjúpi Jackie, átti, var fagurlega skreyttur jafnt að utan sem inn- an. Óteljandi þjónar og þjónustu- stúlkur höfðu lagt nótt við dag tii að allt mætti vera sem glæsileg- ast. Tólf hundruö gestum hafði veriö boðiö til brúðkaupsins. Herbergi hafði verið pantað á hótelinu Munchener King fyrir Joseph MacCarthy öldungadeild- arþingmann, sem var náinn vinur Kennedyfjölskyldunnar. Hann haföi tilkynnt aö hann myndi koma „ef skyldur minar I öldungadeildinni koma ekki I veg fyrir það”, en á þessum tima var hann önnum kafinn viö að þefa uppi alla kommúnista um gjör- völl Bandarikin. Faðir Jackie viðsfaddur John Vernon Bouvier III faöir Jackie var kominn til Newport til að gefa dóttur sina. Þar braut hann odd af oflæti sinu gagnvart Auchinclossfjölskyldunni. Hjónabandi hans og Janet Lee lauk með gifurlegri heift á báða bóga. Hann hélt engu að siður sambandi viö dæturnar. Bouver kvæntist ekki aftur, en hafði verið tvivegis i hjónabandi áður en hann giftist Janet Lee. Hann var ákaflega glæsilegur maöur og virtist vekja aðdáun jafnt karla sem kvenna og átti marga nána vini af báðum kynj- um. Dætur hans dáðu hann mjög, jafnt glæsileika hans sem kimni- gáfu og fyrirgáfu móöur sinni aldrei að hafa skiliö við hann. Jackie var aðeins 13 ára gömul þegar þau skildu og hún varð að flytja frá New York meö móöur sinni og haföi það djúpstæö áhrif á hana. Tveir líkir „John Fitzgerald Kennedy var sá sem mest liktist föður Jackie”. segir fænka hennar. „Faöir henn- ar sem kallaöur var „Svarti Jack” var að visu repúblikani og Kennedy demókrati, en þeim kom ákaflega vel saman. Þeir áttu ýmislegt sameiginlegt, fyrst og fremst afstöðuna til kvenna. Hvorugur þessara manna var reiöubúinn til að láta sér aðeins nægja eina konu. Hvorugur réö viö aö breytast úr piparsveini i tryggan eiginmann, enda reyndu þeir það ekki. Báðir voru striönir og leyndu þvi ekki hvaö dauöyfli fóru i taug- arnar á þeim. Þeir höföu áhuga á Iþróttum.en þjáðust báðir af bak- veiki,og höfðu unun af ljúfu lifi”. Breyting á siðustu stundu Svarti Jack ætlaði aö leiða dótt- ur sina upp að altarinu, en klukkustund áöur en athöfnin átti aö hefjast, var hringt og sagt að hann væri dauðadrukkinn á hótelherbergi sinu. Það varð þvi úr, ab stjúpfaöir Jackie gaf hana John Kennedy. Mörgum árum seinna sagöi ein af kunningjakonum Kennedyfjöl- skyldunnar frá þvi, aö þetta heföi allt verið skipulagt. Janet, móöir Jackie, hefði ekki viljaö sjá fööur hennar i brúðkaupinu, og hefði því gefið þau fyrirmæli aö vini yrði haldið stift aö honum á hótel- inu. Til aö vera alveg viss fékk hún vin Svarta Jacks til að drekka með honum. Jackie var svo fögur á brúð- kaupsdaginn, að fáir nema allra nánustu vinir veittu þvi athygli að það var stjúpfaðirinn sem leiddi hana, en ekki faöir hennar. Meðan Jack Kennedy kvaddi móður sina og fór meö brúði sína, var Jack Bouvier fluttur i sjúkra- bil beint til New York. Dóttir hans, sem var honum allt, varð eftir. Hún átti eftir að veröa ein vföfrægasta kona tuttugustu ald- arinnar. 2. kaffli ó mánudag: Allt miðað við forsetaembœttið

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.