Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 5

Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 E 5 HeimiliFasteignir Bæjartún - Aukaíbúð Vorum að fá í sölu glæsilegt 251 fm einbýlishús með lítilli aukaíbúð. Skiptist í 3-4 stofur og 3 svefnherb. Massíft parket og flísar á gólfum. Glæsilega innr. eldhús. Arinn í stofu. Stór afgirt verönd með heitum potti. Staðahverfi - Einbýli Fallegt 216 fm einbýlishús. Húsið er tilbúið til afhendingar og afhendist fullbúið að utan með steiningu og „fokhelt“ að innan. Þrjú til fjögur svefnherb. Bílskúr með aukinni lofthæð. Teikningar á Bifröst. Verð 17,4 millj. Kjarrás - Garðabæ Fallegt og vel skipulagt 181 m² einbýlishús á pölum ásamt 40 m² bílskúr. Húsið er í byggingu og afhendist fullbúið að utan, ómálað, lóð grófjöfnuð og „fokhelt“ að innan. Þrjú svefnherbergi, þrjár stofur. Teikningar á Bifröst. Verð 18,5 millj. Reynimelur - Bílskúr Vorum að fá í einkasölu mjög góða 119 m² portbyggða rishæð ásamt 27 m² bílskúr á þessum eftirsótta stað. Þrjú svefnherb. Tvær rúmgóðar stofur. Arinn. Tvennar svalir. Áhv. 6,7 millj. Verð 15,5 millj. Furugrund - Aukaíbúð Glæsileg 5 herb. íbúð á 1. hæð með aukaíbúð í kjallara. Íbúðin er meira og minna öll ný endurnýjuð. Glæsilegt eldhús og bað. Parket og flísar. Eign í sérflokki. Verð 15,7 millj. Kríuhólar Rúmgóð og falleg 121 m² 4ra- 5 herbergja íbúð á 2. hæð í nýlega viðgerðu fjöleignahúsi. Lyfta. Stór stofa. Svalir yfirbyggðar að hluta. Áhv. 4 millj. Verð 12,8 millj. Laufbrekka - Efri sérhæð Mjög góð og mikið endurnýjuð 113 m² 4ra herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt 26 m² bílskúr. Nýtt eldhús og bað. Áhv. 5,8 millj. húsbréf. Verð 14,4 millj. Hjarðarhagi - Nýtt á skrá Vorum að fá í sölu fallega 80 m² 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjöleignahúsi á þessum eftirsótta stað. Áhv. 3,6 millj. Verð 10,9 millj. Vesturberg - Nýtt á skrá Vorum að fá í sölu rúmgóða 105 m² 4ra herb. íbúð í góðu fjöleignahúsi. Áhv. 3,8 millj. Hátt brunabótamat. Efstihjalli Vorum að fá í sölu mjög rúmgóða 103 m² 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Rúmgott eldhús. Parket og flísar. Áhv. 5,1 millj. Verð 11,4 millj. Núpalind - Til afh. í febrúar Vorum að fá í sölu 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýju og glæsilegu fjöleignahúsi með lyftu. Stæði í bílageymslu stendur kaupendum til boða en þau þarf að kaupa sér. Íbúðirnar eru frá 96-115 m². Verð frá 13,4 millj. Teiknigar og skilalýsing á skrifstofu Bifrastar. Laugavegur - Vitastígur Vorum að fá í sölu glæsilega og nýuppgerða 3ja herb. íbúð í góðu steinhúsi. Allar innréttingar nýjar svo og tæki. Verð 11,8 millj. Ársalir - Nýjar íbúðir Rúmgóðar 3ja herb. og 4ra herb. íbúðir í nýju sjö hæða húsi ásamt stæði í bílgeymslu. Til afhendingar haustið 2001 fullbúnar án gólfefna. Verð frá 12,1 millj. Blásalir - Laus fljótlega Sérlega glæsileg 4ra herbergja sérhæð (jarðhæð) í nýju fjórbýlishúsi. Glæsilegar innréttingar. Flísar og parket á gólfum. Áhv. 6,3 millj. húsbréf. Þetta er eign sem þú verður að skoða. Kleppsvegur Mjög góð 120 m² 4ra herb. íbúð á 2. hæð í litlu fjöleignahúsi. Rúmgóð og björt stofa. Parket og flísar. Tvennar svalir. Fallegur verðlaunagarður við húsi. Lækjasmári - Nýbygging Nýjar 3ja herbergja íbúðir í nýju húsi ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðirnar afh. full-búnar án gólfefna. Stærðir frá 86-96 m². Verð frá 12,9 millj. Laugavegur Vorum að fá í sölu góða 78 m² 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í steinhúsi. Þetta er íbúð með háu brunamati. Verð 8,5 millj. Núpalind - Ný íbúð Vorum að fá í sölu 2ja herbergja íbúð í nýju og glæsilegu fjöleignahúsi með lyftu. Stæði í bílageymslu stendur kaupendum til boða en þau þarf að kaupa sér. Íbúðin er 77 m². Íbúðin er til afh. fljótlega á nýju ári. Verð 10,8 millj. Teiknigar og skilalýsing á skrifstofu Bifrastar. Álfheimar - Þakíbúð Falleg 69 fm endaíbúð á efstu hæð í fjöleigahúsi. Rúmgóð stofa og hol með spónaparketi. Stórar s-svalir með miklu útsýni. Stórt eldhús með góðri upphafl. innr. Flísalagt baðherb. Áhv. 3,3 millj. Verð 8,4 millj. Krummahólar - Nýtt Vorum að fá í sölu 56 m² 2ja herbergja endaíbúð á 3. hæð í húsi með lyftu. Parket og flísar. Áhv. 3 millj. Verð 6,8 millj. Laugavegur - Vitasígur Vorum að fá í sölu mjög góða og mikið endurnýjaða 2ja herb. íbúð í mjög góðu steinhúsi á þessum eftirsótta stað. Verð 8,8 millj. Glaðheimar Vorum að fá í sölu mjög góða og ný standsetta 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi. Áhv. 3,8 millj. Verð 7,8 millj. Reynimelur Góð og töluvert endurnýjuð 2ja herb. kjallaraíbúð á besta stað í Vesturbænum. Flísar og parket á gólfum. Gott eldhús. Áhv. 1,6 millj. Verð 7,5 millj. Viðarhöfði Nýlegt og vandað 333 m², 232 m² salur og 101 m² milliloft þar sem eru skrifstofur og starfsmannaaðstaða. Húsið stendur vel og er mjög sýnilegt og hefur því mikið auglýsingargildi. Áhv. 21 millj. Verð 29 millj. Stórhöfði Í nýju og glæsilegu húsi höfum við til sölu fjórar einingar á annarri hæð, 182 m², 165 m² og á þriðju hæð tvær 345 m². Eru til afhendingar fljótlega eftir áramótin. Laugavegur - Fjárfestar Mjög gott 200 m² húsnæði sem í dag er leigt undir veitingastað. Góður langtíma leigu- samningur. Mjög góður fjárfestingarkostur. Allar nánari uppl. gefur Pálmi. Smiðshöfði Mjög gott og snyrtilegt 240 m² atvinnuhúsnæði með mikilli lofthæð og stórum innkeyrsludyrum. Húsnæði sem gefur mikla möguleika. Verð 16,9 millj. Vegmúli - Til leigu Til leigu mjög gott u.þ.b. 150 fm húsnæði á 2. hæð í nýlegu og mjög áberandi húsi við Vegmúla. Laust nú þegar. Lyfta í húsinu. Allar nánari upplýsingar gefur Pálmi. Múlarhverfi - Til leigu Til leigu tvær hæðir þ.e. önnur og þriðja hæð í mjög áberandi húsi á þessum eftirsótta stað. Hvor hæð um sig er u.þ.b. 500 fm og afhendast tilb. til innréttingar. Frábær staðsetning í miðju fjármálahverfi Reykjavíkur. Allar nánari uppl. gefur Pálmi á skrifstofu Bifrastar. ALLAR EIGNIR Á NETINU - FASTEIGNASALA.IS Gleðilegt fasteignaár Vantar Okkur vantar á skrá, nú þegar, allar gerðir eigna. Einkum vantar okkur íbúðir í fjöleignahúsum, rað- og parhús, hæðir og einbýlishús. Fjöldi kaupenda á skrá. Vertu með þína eign þar sem sérfræðingar eru og þjónustan er góð. FRAMAN af liðnu ári ein-kenndist fasteignamark-aðurinn af jafnri og mikillieftirspurn eftir hvers kon- ar fasteignum og er óhætt að segja að eftirspurn hafi verið töluvert um- fram framboð eigna. Af þeim ástæð- um hélt fasteignaverð áfram að hækka. Framboð nýbygginga hefur í tölu- verðan tíma ekki svarað eftirspurn og er verð á nýbyggingum á vissum svæðum orðið mjög hátt. Það má því segja að það sé brýn þörf á því að byggðar séu ódýrari íbúðir til að mæta þörfum ákveðins hóps kaup- enda. Aukin afföll húsbréfa og hækk- andi vaxtastig hafa án efa haft áhrif á fasteignaviðskipti. Vissulega má halda því fram að viðskiptin hafi dregist saman miðað við árið á und- an en þess verður að minnast að þá er verið að miða við söluhæsta árið í langan tíma. Það er því nær sanni að meta stöðuna þannig að markaður- inn sé að komst í jafnvægi. Mikill hraði einkenndi fasteigna- viðskipti þegar eftirspurn var hvað mest. Kaupendur höfðu úr litlu að velja, umhugsunartími var naumur og annaðhvort var að hrökkva eða stökkva. Seljendur höfðu í mörgum tilvikum úr nokkrum tilboðum að velja, ólíkt því sem þekkst hafði um langan tíma. Kaupendur hafa af þessum ástæð- um verið fljótir að tileinka sér tækni- nýjungar og því hefur notkun Nets- ins sem auglýsingamiðils farið mjög vaxandi. Að sama skapi hafa fast- eignasalar tekið upp nútímalegri vinnubrögð við markaðssetningu og sölumeðferð fasteigna. Á síðustu misserum hefur sú þró- un átt sér stað, að þeim starfs- mönnum á fasteignasölum, er hafa löggildingu til starfans, hefur fjölgað mjög mikið. Er sú þróun jákvæð og ætti að koma viðskiptavinum fast- eignasala til góða. Það háir þó starfi fasteignasala að löggjöf skortir um fasteignaviðskipti og því eru ekki skýrar eða skráðar reglur til að styðjast við þegar ágreiningsmál koma upp. Dómsmálaráðherra hefur þó tekið á þessu máli og nú er í vinnslu laga- frumvarp um viðskipti á þessu sviði. Til viðbótar má telja brýnt að settar verði reglur um úttektir eða skoðun á fasteignum, þ.e.a.s. að fyrir liggi ástandsskýrslur löggildra skoð- unarmanna um fasteignir þegar þær eru boðnar til sölu. Þannig gætu kaupendur kynnt sér sögu eigna til viðbótar skoðun á eigninni. Slíkar reglur sem hér hafa verið nefndar myndu án efa gera fast- eignaviðskipti öruggari fyrir báða aðila og færa okkur nær öðrum þjóð- um í viðskiptaháttum. Samkvæmt lögum ber fast- eignasala að gæta til jafns hagsmuna seljenda og kaupenda ólíkt því sem tíðkast víða erlendis. Þessi staða getur á vissan hátt hamlað starfi fasteignasalans því það er seljandinn sem greiðir fyrir þjónustuna. Á Norðurlöndum og víða í Evrópu eru skýrari skil á milli starfs fast- eignasala og þeirra aðila sem annast samningagerðina. Starfi fast- eignasalans lýkur oft um leið og kauptilboð hefur verið samþykkt en lögmenn aðila annast frágang og yf- irlestur skjala og tryggja því hags- muni hvor sínum aðila samnings. Með þessu fyrirkomulagi er komið í veg fyrir hagsmunaárekstra og með því verður fasteignasalinn raunveru- lega hlutlaus miðlari milli kaupanda og seljanda. Aðilar greiða síðan hvor sínum lögmanni fyrir aðstoðina. Það er umhugsunarefni hvort ekki sé tímabært að eftirlirlit með starf- semi fasteignasala sé virkara, s.s. gildir um fjármálastofnanir. Fast- eignasalar þurfa oft á tíðum að miðla miklum fjármunum milli aðila, s.s. peningum, húsbréfum og skulda- bréfum. Félag fasteignasala hefur í mörg ár vakið athygli ráðamanna og óskað eftir því að settar verði sér- stakar reglur um ábyrgðir og eftirlit. Undanfarin misseri hefur umsýsla með fjármuni aukist til muna enda fasteignasala með mesta móti. Upp- greiðsla fasteignaveðbréfa (hús- bréfalána) náði hámarki á árinu 1999 og var það oft verkefni fasteignasala að annast slík mál. Var þá fast- eignasölum enn ljósari nauðsyn þess að tryggja hagsmuni viðskipta- manna sem best. Margt bendir til þess að eft- irspurn eftir fasteignum muni áfram verða töluverð. Fólksflutningar af landsbyggðinni á höfuðborg- arsvæðið virðast ætla að halda áfram og ungt fólk, sem er að að kaupa sína fyrstu íbúð, kemur nú fyrr inn á markaðinn en verið hefur auk þess sem stórir árgangar fólks á fertugs- aldri eru nú mjög virkir á fast- eignamarkaði og kaupendur hafa betri fjármögnunarmöguleika en áð- ur var. Það má hins vegar velta því fyrir sér hvaða áhrif breytingar á ytri að- stæðum kunna að hafa á fasteigna- viðskipti, s.s. hækkandi vaxtastig, kaupmáttur o.fl. Nú eru allar líkur á því að Íbúðalánasjóður breyti við- miðunarreglum sínum varðandi lán- veitingar, þ.e. lánveiting miðist við kaupverð eigna (en ekki brunabóta- mat sé það lægra) og eru margir þeirrar skoðunar að það muni hleypa auknu lífi í eftirspurn eftir litlum og meðalstórum eignum. Horfur á áframhaldandi eftirspurn Markaðurinn eftir Guðrúnu Árnadóttur/ gudruna@husakaup.is Höfundur er löggiltur fasteignasali og formaður Félags fasteignasala. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.