Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 15

Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 E 15 HeimiliFasteignir Ölduslóð - Hf. - m. bílskúr Nýkomin í einkas. mjög falleg 75 fm efri hæð í tvíb. ásamt 35 fm góðum bílskúr, 3ja herb. Útsýni. Frábær staðs. Ákv. sala. Verð 12,2 millj. 39082 Hellisgata - Hf. Í einkas mjög góð 110 fm íbúð á þessum frábæra stað. Um er að ræða hæð og kjallara, eignin er öll nýstandsett, hús nýviðgert að utan. Þrjú svefnh., parket á gólfum. Verð 12,0 millj. 76652 Mánastígur - Hf. - Sérh. Nýkomin í einkasölu sérl. skemmtil. hæð og ris ca 160 fm, í glæsil. og virðulegu steinhúsi, tvíbýli. 5 svefnh., stofa, borðstofa o.fl. Sérinngangur, tvennar svalir, fallegur garður, frábær staðsetning, örstutt frá læknum, miðbænum og skóla. Áhv, húsbréf. Verð 15,8 millj. 76803 Dúfnahólar - Rvík - bílskúr Nýkomin í einkas. 95 fm íb. á efstu hæð á þessum frábæra útsýnisstað. 3 svherb., góður bílskúr. Frábært útsýni. Ákv. sala. Laus strax. 73182 Hjallabraut - Hf. Nýkomin í einkas. mjög skemmtil. 101 fm íb. á 3. hæð í fjölb. Fráb. staðs., stutt í alla þjónustu. Þvottah. í íb. Laus fljótlega. Áhv. húsbr. 5 millj. Verð 10,6 millj. 74685 Tjarnarbraut - Hf. Nýkomin í einkas. á þes- sum fráb. stað við tjörnina 104 fm mikið endurnýjuð miðhæð í hjarta Hf. Parket og flísar. 18 fm sérherb. í kj. Ákv. sala. Áhv. byggsj. 2,5. Verð 12,2 millj. Háholt - Hf. Nýkomin í sölu mjög falleg 120 fm íbúð í góðu fjölb. 3 svefnherb. Þvottahús í íb. Frábært útsýni. Snyrtil. sameign. Stutt í skóla. Ákv. sala. Verð 11,5 millj. 76897 Álfholt - Hf. - 4ra Nýkomin í einkas. glæsil. 112 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölb. Svalir. Sérþv.herb. Parket. Frábært útsýni yfir bæinn. Áhv. húsbr. ca 6,2 millj. Verð 12,5 millj. 77034 Álfaskeið - Hf - m. bílskúr Nýkomin í einkas. sérl. björt og falleg endaíbúð á efstu hæð í góðu klæddu fjölb., hús í góðu standi. Sérinng. af svölum. Góður 27 fm bílskúr. Verð 10,9 millj. 77096 Björtusalir - Kóp. Nýkomin í einkas. mjög falleg 117 fm íbúð á 1. hæð í glæsil. litlu fjölb. 3 svefnherb. Þvottahús í íb. Fallegar innréttingar. Sér- eignargarður. Ákv. sala. Verð 15,5 millj. 77160 Hringbraut - Hf. Í einkas. á þessum góða stað mikið endurnýjuð 98 fm neðri hæð í tvíb. Nýtt eldh. Sérinng. Sérþvottah. Gott útsýni. Áhv. bygging- arsj. 3,8 millj. Verð 10,9 millj. 49708 Urðarholt - Mos. - 3ja Nýkomin í einkas. gullfalleg „penthouse“-endaíbúð. S-svalir, útsýni. Parket. Frábær staðs. Stutt í þjónustu o.fl. Áhv. húsbr. Verð tilboð. 76941 Laufengi - Rvík - 4ra Nýkomin í sölu mjög góð 111 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjölb., 3 svefnherb., suðursvalir, útsýni. Ákv. sala. Breiðvangur - Hf. Nýkomin í einkas. sérl. falleg rúmgóð 127 fm íbúð í góðu fjölb. (klætt að utan). Sérþvottah. S-svalir. Aukaherb. í kjallara. Fráb. útsýni. Ákv. sala. 75406 Álfaskeið - Hf. - m. bílskúr Nýkomin björt og falleg 120 fm íb. á fyrstu hæð, auk bíl- skúrs. Möguleiki á 4 svefnherb., þvottahús í íb., sérgarður með verönd. Verð 12,8 millj. Hagstæð lán 6,7 millj. 60952 Til sölu eða leigu Atvinnuhúsnæði við höfnina í Kópavogi. Nýkomið í einkas. glæsil. atvhúsn., 2.500 fm, hýsti áður Ís- landssíld hf. (Síldarútvegsnefnd ríkisins). Húsin skiptast m.a. í vinnslusali, mötuneyti, skrifstofur, starfsmannaaðstöðu o.fl. Lofthæð 7-8 metrar, nokkrar 4-5 metra innkeyrsludyr. Byggingarréttur. Malbikuð sjávarlóð. Húseignir sem bjóða upp á mikla möguleika. Húsin seljast eða leigjast í einu eða tvennu lagi. Fullbúin eign í sérflokki. Laust strax. Lyklar á skrifst. Óvenju hagst. lán áhv. Uppl. gefur Helgi Jón á skrifst. Skútahraun- Hf. - atvh. Nýkomið í einkas. eða leigu, glæsil. húseignir á sér- lóð. Um er að ræða skrifst. (versl.), atvh.húsnæði. Samtals ca 4.720 fm. Húsið skiptist þannig: Skrifst., (versl.), mötuneyti ca 1.200 fm. Atvh.húsnæði með 6 metra lofthæð, innkeyrsludyr, ca 3.500 fm. Mikið áhv. Verð aðeins 53.000 fm. Austurhraun - Gbæ. - atvh. Til leigu nýtt ca 1.300 fm atvinnu-, verslunar- og skrifstofu- húsnæði. Fullbúin eign, afhending strax. Frábær staðsetning. Upplýsingar gefur Helgi Jón á skrif- stofu Hraunhamars. Suðurhraun - Gbæ. - atvhúsn. Nýkomið í einkas. nýl. sérl. gott ca 190 fm endabil, auk ca 85 fm millilofts (kaffi-, skrifstofa o.fl.) Innk.dyr. Fullb. eign. í sérflokki. Frábær staðsetning. Hagst. lán. Verð tilboð. 73611 Melabraut - Hf. - atvh. Nýkomið í einkas. góðar eignir á sérlóð. Um er að ræða 3 hús, samtals ca 1.500 fm atvh.húsnæði (stálgrind). Góð lofthæð og innkdyr. Vandaðar eign- ir. Óvenju stór lóð, ca 3.600 fm. Byggingarréttur. Mjög hagstætt verð. 75991 Hringbraut - Hf. Nýkomin í einkasölu mjög góð 67 fm risíb. á þessum góða stað. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð. 2 svefnh. Fráb. útsýni. Ákv. sala. Verð 8,3 millj. 53648 Stekkjarberg - Hf. - 3ja Í einkas. sérl. skemmtil. 85 fm íb. á jarðh. í nýlegu litlu fjölb. Þvottah. í íbúð. Fallegar innréttingar. Mjög gott skipulag. Verð 10,4 millj. 76933 Tinnuberg - Hf. - 3ja Glæsil. 95 fm efri sérh. endi á þessum frábæra stað. Parket, flísar, vandaðar innréttingar. Þvottahús í íbúð. Flísal. bað . Allt sér. Verð 12,5 millj. 76962 Vesturholt - Hf. - sérh. Nýkomin skemmtil. ca 65 fm neðri sérh. í nýlegu tvíb. auk 24 fm innb. bílskúrs. Góð staðs. Laus fljótlega. Verð 9,3 millj. 51128 Hellisgata - Hf. - m. bílskúr Í einkasölu mjög falleg mikið endurnýjuð 80 fm neðri hæð í tvíbýli, ásamt 40 fm jeppaskúr, fallegt eldhús, parket, flísar, snyrtileg sameign. Ákv. sala. Verð 11,8 millj. 75244 Birkihlíð - Hf. Sérl. skemmtil. ca 85 fm endaíb. á 3. hæð (efstu) í litlu nýlegu fjölb. Stórar suðursv., sérþvherb. Bílskúrsréttur fyrir rúmg. bíl- skúr. Áhv. húsbr. Verð 9,8 millj. 68167 Krosseyrarvegur - Hf. - 2ja Nýkomin í einkasölu mjög falleg 57 fm íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Sérinng., gott eldhús, glæsilegur garður með sólpalli. Ákveðin sala. 51294 Kelduhvammur - Hf. - 2ja Nýkomin í einkas. sérl. skemmtil. 54 fm neðri hæð í góðu tvíb. Nýlegar innréttingar. Parket á gólfi. Allt sér. Verð 7,7 millj. Áhv. byggsj. 3 millj. 76348 Tryggvagata - Rvík - 2ja Nýkomin í sölu mjög falleg 56 fm íbúð á annarri hæð í góðu lyf- tuhúsi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er öll nýstandsett á smekklegan hátt. Ákv. sala. Skipti á stærri eign koma til greina. Verð 8,5 millj. 76945 Vogar - Vatnsleysa Akurgerði - Vogum Nýkomin í einkas. tvö parhús, Akurgerði 3-5 og 7-9. Húsin eru á 1 hæð með innbyggðum bílskúr, samtals 137 fm Eignirnar afh. fullb. að utan en fokheldar að innan. Upplýsingar og teikn. á skrifst. Móabarð - Hf. Nýkomin er sérlega falleg og vel umgengin 64 fm íbúð á 3ju hæð í litlu fjöl- býli. S-svalir, útsýni. Góð eign. Melalind - Kóp. Í einkas. sérl. glæsil. 100 fm íbúð á jarðhæð í nýju litlu fjölb. Vandaðar innr. Stórar stofur. Stutt í þjónustu. Áhv. húsbr. Verð 11,3 millj. 75382 Háholt - Hf. - lyftuh. Nýkomin í einkas. glæsil. 2ja herb. 66 fm íbúð á efstu hæð í lyftuh. Glæsil. útsýni. Parket, flísal. baðherb. Vandaðar innréttingar. Sérstæði í bílskýli, innangengt. Áhv. húsbr. Verð 10,9 millj. 75100 Hvaleyrarholt - Hf. - atvh. Nýkomið glæsil. atvhúsn. Um er að ræða 105- 210 fm bil og stærri í nýju, glæsil. steinhúsi. Húsið afh. fljótl., fullb. að utan, tilb. undir tré- verk að innan og lóð frágengin (malbikuð). Lofthæð frá 4-6,1 m, innkeysludyr. Frábær staðsetning. Teikn. á skrifst. 4187 Gleðilegt nýtt ár ÁRIÐ 1982 keyptu borg-arstjórinn, Ingibjörg Sól-rún Gísladóttir, og eig-inmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, sitt fyrsta heimili. Það var á Bárugötu 30A og keyptu þau húsið ásamt vina- fólki sínu, Gylfa Páli Hersi og Sig- urlaugu Gunnlaugsdóttur. Í báðum fjölskyldum var einn sonur, Svein- björn hjá Sólrúnu og Hjörleifi og Kári hjá Gylfa og Sigurlaugu. Verðið á húsinu var kr. 1.100.000. Húsinu skiptu þau þannig að Ingi- björg og Hjörleifur höfðu svefn- herbergi og stofu á efri hæð, en Gylfi og Sigurlaug höfðu svefnherbergi í kjallara en þar var líka sameiginlegt baðherbergi fyrir húsið. Á miðhæð- inni höfðu þau stofu en auk þess voru á þeirri hæð eldhús og borðstofa sem fjölskyldurnar nýttu sameiginlega. En í hvernig ástandi var húsið? „Það var eins og fokhelt þegar við keypt- um það,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Við byrjuðum á því að moka út úr kjallaranum og létum setja vest- urgluggana á hann. Á þeim fimm ár- um sem við bjuggum í húsinu gerð- um við miklar breytingar á húsinu að innan. Fólkið sem keypti það síðan af okkur, lauk því verki og lét setja járnið utan á það.“ En hvernig fjármögnuðuð þið kaupin? „Við áttum auðvitað engan pening frekar en annað ungt fólk sem var að koma úr námi – og enga lánsmögu- leika. Hvor fjölskylda þurfti að borga 550.000 kr. og við fengum á endanum 120.000 kr. í húsnæðislán. Það dugði auðvitað ekki til svo við fengum m.a. að nýta okkur rétt for- eldra til lífeyrissjóðslána. Fjölskyldurnar tvær samnýttu eldhús, borðstofu, baðherbergi og þvottahús og þegar Ingibjörg er spurð hvernig það fyrirkomulag hafi virkað, segir hún: „Mjög vel. Við borðuðum saman og elduðum til skiptis. Það voru því fjórir fullorðnir til að elda svo hver og einn þurfti að- eins að elda tvisvar í viku, í mesta lagi. Sonur Gylfa og Sigurlaugar var tveimur árum eldri en Sveinbjörn og þeir voru saman á leikskóla, þannig að við skiptumst líka á um að fara með þá á leikskólann og sækja þá. Þetta kom í alla staði mjög vel út vegna þess að, eins og ég sagði, þá áttum við engan pening til að fjár- festa í heimilistækjum. En við þurft- um bara eina þvottavél, einn ísskáp, eitt sjónvarp, og svo framvegis. Gylfi og Sigurlaug áttu ísskáp og sjón- varp. Við áttum þvottavél og þau áttu ryksugu. Við höfðum öll verið í námi erlend- is, ég í Kaupmannahöfn, Gylfi og Sigurlaug í Árósum og höfðum próf- að að búa í svona sambýli. Hjörleifur hafði verið í Kína og var orðinn því vanur að hafa alls ekkert prívat fyrir sig. Við vissum því út í hvað við vor- um að fara. Enda var þetta mjög þægilegt. Við vorum ekki eins bund- in af öllum þeim rútínum sem fylgja því að búa einn. Við höfðum alltaf pössun, keyptum til skiptis í matinn og síðan var matarreikningurinn gerður upp í lok hvers mánaðar og skipt til helminga.“ Hvað bjugguð þið lengi á Bárugöt- unni? „Við bjuggum þar í fimm ár.“ Var aldrei neitt ósætti? „Nei, aldrei. Við erum ennþá nánir vinir og það myndaðist einhvers kon- ar fóstbræðralag milli strákanna sem ennþá varir.“ Hvers vegna flutt- uð þið þaðan eftir fimm ár? Hvor hæð var bara fimmtíu fer- metrar. Það fór að verða þröngt um okkur þegar við eignuðumst seinni soninn. Enda var ekki stefnt að þvi að þetta yrði eilífðarsambúð. Þetta var praktískt á sínum tíma. Við þurftum ekki að verða okkur úti um ýmsa hluti sem fólk þarf á að halda þegar það byrjar að búa.“ Fyrstaheimilið Fokhelt á Bárugötunni Morgunblaðið/Kristinn Ingibjörg Sólrún fyrir framan Báru- götu 30a. Bárugata 30A Timburhús byggt 1936, 2 hæðir og kjallari Stærð 152 fm. kostaði 1982 1.100.000 kr. Ingibjörg og Hjörleifur á tröppunum á Bárugötunni ásamt vini sínum Kára Gylfasyni sem einnig bjó í húsinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.