Morgunblaðið - 03.01.2001, Qupperneq 21
Þetta er
mikið örygg-
isatriði.
Í öðru lagi
má nefna
gasskynj-
arann, rétt
staðsettur
gasskynjari nemur ef leki verður á
gaslögn frá kút, leiðslum eða hellu
og gefur það til kynna á áberandi
hátt svo allir heyra.
Gasskynjarinn lokar hins vegar
ekki fyrir streymið, heldur lætur
vita svo að hægt sé að varast hætt-
una og gerðar verði ráðstafanir til að
lekinn sé fundinn og úr bætt.
Þetta sýnir að það er öruggast að
hafa lokað fyrir gaskútinn (eða gas-
kútana, það er skynsamlegt að
tengja tvo) þegar farið er brott þótt
ekki sé nema til vinnu. Reyndar er
það engum ofviða að loka alltaf fyrir
gaskút eftir notkun og opna aftur
næst þegar á að elda.
Allir sem keypt hafa gastæki eftir
31. jan. 1996, sem ekki uppfylla ör-
yggiskröfur, eiga kröfurétt á selj-
EFLAUST finnst mörgumað borið sé í bakkafullanlækinn að birta þriðjapistilinn í röð um gas og
gastæki. En þetta er ungur og
óþroskaður markaður í örum vexti
og gastæki eru dauðans alvara ef
óvarlega er farið. Það var því ekki að
ófyrirsynju að Vinnueftirlit ríkisins
gerði vandaða og umfangsmikla
könnun á liðnu hausti á þeim gas-
tækjum, sem eru á íslenskum mark-
aði.
Vinnueftirlitið heimsótti 36 fyr-
irtæki á höfuðborgarsvæðinu og
skoðaði 232 tæki.
Niðurstöður könnunarinnar eru
sláandi, einkum hvað varðar örygg-
isbúnað. Í ljós kom að 24% gaselda-
véla til heimilisnota, sem boðnar
voru til sölu, höfðu ekki nauðsyn-
legan öryggisbúnað, svo sem örygg-
isloka, og geta því skapað verulega
slysahættu. Einnig vantar viðvar-
anir á íslensku á umbúðir og/eða
tæki í 89% tilvika á þau tæki sem
eingöngu eru ætluð til nota utan-
húss.
Flest gasbrennslutæki á mark-
aðinum eru CE-merkt, nema í flokki
sumarhúsa- og ferðatækja, þar er
hlutfallið aðeins 65%. Athygli vekur
að íslenskar leiðbeiningar fylgdu
ekki neinum tækjum í flokki heim-
ilis- og iðnaðartækja. Árið 1996, var
sett reglugerð um gastæki og ber
hún númerið 108. Eins og ætíð eru
reglugerðir engin skemmtilesning,
svo nauðsynlegar sem þær kunna að
vera, en oft hafa verið settar reglu-
gerðir um lítilsverðari mál en upp-
setningu, tengingu og viðskipti með
gastæki, svo mikil hætta fylgir notk-
un tækja sem ekki eru búin örygg-
isbúnaði. Satt að segja eru niður-
stöður Vinnueftirlitsins ótrúlegar,
að óreyndu hefði mátt ætla að allir,
sem bjóða til sölu gastæki, legðu
metnað sinn í að bjóða vönduð og
örugg tæki og líklegt er að sumir
innflytjendur og seljendur leggi
metnað sinn í það.
Það eru mörg atriði sem hægt
væri að nefna hér sem mikilvæg ör-
yggisatriði og sum hafa verið nefnd í
fyrri pistlum, en á tvennt skal lögð
áhersla hér enn og aftur.
Hið fyrra er hitskynjari á hverri
einstakri brunahellu, sem tengdur
er öryggisventli. Þegar kveikt er á
brunahellu verður að halda rofanum
þannig nokkra stund að hann gefi
neistann sem kveikir í gasinu. Þetta
verður að gera þar til hitaskynj-
arinn, lítill stálpinni við brunahell-
una, er orðinn heitur, annars slokkn-
ar gasloginn aftur, þá vinnur
hitaskynjarinn rétt.
Að sjálfsögðu höfum við opna
glugga þegar eldað er með gasi og
segjum svo að einhver opni útidyrn-
ar þannig að sterkur dragsúgur
myndast, þá getur gasloginn slokkn-
að. Þá kólnar hitaskynjarinn mjög
fljótt og öryggislokinn lokar fyrir
gasstreymið.
andann, annaðhvort að hann end-
urbæti tækið eða skipti um það. Það
getur hver og einn kannað hvort
hitaskynjari er við hverja brunhellu
á sínu tæki, ef brunakransinn er tek-
inn upp kemur í ljós lítið kerti sem
gefur neistann og gagnstætt lítill
stálpinni, hitaskynjarinn.
Vonandi eru mikil og góð umskipti
í viðskiptum með gastæki fram-
undan. Vinnueftirlitið hefur gefið
þeim sem ekki uppfylla öryggis-
atriðin á tækjum sem þeir selja
ákveðinn frest til að bæta úr.
Eftir þann frest fer fram ný könn-
un Vinnueftirlitsins.
Að lokum lítil viðbót frá síðasta
pistli þar sem rætt var um gasskynj-
ara sem ganga fyrir rafhlöðum. Það
hefur líklega ekki verið nægilega
skýrt fram sett, hér er um að ræða
12 v skynjara, en þeir þurfa meiri
orku en svo að þar nægi lítil sívöl
rafhlaða eins og fyrir vasaljós.
Hins vegar er upplagt að nota
slíka skynjara, þar sem ekki er völ á
220 v rafmagni, og nota bílarafgeymi
sem orkugjafa.
Uppfylla gastæki öryggiskröfur?
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
CE-merkið.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 E 21
HeimiliFasteignir
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs
árs og þökkum móttökurnar árið 2000
VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ VANTAR ALLAR
TEGUNDIR HÚSEIGNA
❋ Erum með kaupanda að einbýlishúsi á einni hæð,
verður að vera með góðu aðgengi fyrir hjólastól.
❋ Ungur maður í góðu starfi leitar að 2ja-3ja herb. íbúð á
svæði 101,107 og í Hlíðunum fyrir allt að 8,5 millj.
❋ Fyrir par með barn vantar okkur 3ja herbergja íbúð í
Bökkunum.
❋ Flugstjóra vantar lítið einbýli eða raðhús á einni hæð í
Kópavogi eða Garðabæ.
❋ Guðmundi vantar 3ja herbergja íbúð á svæði 104 eða
108, Grafafvogur kemur einnig til greina. Er búinn að
selja.
❋ Erum með tvo aðila sem vantar lítið raðhús í
Mosfellsbæ.
❋ Fyrir hjón, sem búin eru að selja, vantar okkur 3ja-4ra
herbergja 100-120 fm íbúð á svæði 104, 105 og 108
fyrir allt að 13 millj.
❋ Vantar allar gerðir atvinnuhúsnæðis og fyrirtækja á
skrá. 1043
eign.is Suðurlandsbraut 46 - Bláu húsin við Faxafen
sími 533 4030 fax 533 4031 www.eign.is eign@eign.is
EllertAndrés PéturÖrnólfur
Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Súluhöfði - Mosfellsbæ Ein-
býlishús á einni hæð, ásamt innbyggðum
bílskúr. Húsið verður afhent tilbúið til innrét-
tinga samkvæmt ÍST-51 staðli. Möguleiki á
að kaupa húsið á öðrum byggingarstigum.
Teikningar á skrifstofu. 1156
Smáraflöt - laus fljótlega
Mjög gott einbýlishús á 1 hæð, ásamt
góðum bílskúr. Parket er á flestum gólfum.
Nýleg eldhúsinnrétting. Möguleiki er að
útbúa stúdíóíbúð fyrir aftan bílskúr. Hús nýle-
ga klætt að utan og lítur það vel út. Eign
sem vert er að skoða. Myndir á
www.eign.is 1153
Reykjavegur - Mos. Vorum að
fá í sölu mjög gott einbýlishús á einni hæð
ásamt stórum bílskúr. 4 svefnherbergi, stofa
með arni, útgengt í garð. Stórglæsileg lóð
með gróðurhúsi. Góð eign á rólegum og
fallegum stað í Mosfellsbæ. Þetta er eign
sem vert er að skoða. 1121
Langholtsvegur Mjög gott parhús
á tveimur hæðum. Á neðri hæð er gott eld-
hús, sem nýlega hefur verið tekið í gegn, og
stofa með hurð út á 30 fm verönd. Á efri
hæð eru 4 svefnherbergi og baðherbergi
sem nýlega var tekið í gegn. Eign sem
vert er að skoða. Áhv. um 9,2 millj.
V. 19,5 m. 1190
Unufell Mjög vel skipulögð 4ra her-
bergja íbúð á 2. hæð. Rúmgóð svefn-
herbergi. Þvottahús í íbúð. Verið er að
klæða húsið að utan með álklæðningu,
sem seljendur greiða. V. 9,9 millj.
1105
Álfheimar - endaíbúð Rúmgóð
4ra-5 herbergja íbúð á 2. hæð í góðu húsi
við Laugardalinn. 3 svefnherbergi, fallegt
eldhús. Stutt í skóla og alla þjónustu. Áhv.
um 5 millj. í húsbréfum. Rúmgóð íbúð á
góðum stað. 1104
Funalind - „Penthouse“
Virkilega glæsileg ca 150 fm „penthouse“-
íbúð á tveimur hæðum. Vandaðar mahóní-
innréttingar og parket. Fjögur til fimm svefn-
herbergi. Tvennar svalir. 1066
Laugavegur - bakhús Mjög
skemmtileg 80 fm 3ja herbergja íbúð á
jarðhæð í bakhúsi við Laugaveginn. Parket á
herbergjum og flísar á baði. Þvottahús í
íbúð. Áhv. um 4,2 millj. Íbúðin er
ósamþykkt. Gott verð 7,2 millj. 1122
Hólar - bílskúr Vorum að fá
góða 3ja herbergja 84 fm íbúð á 2. hæð
í góðu fjölbýlishúsi, ásamt bílskúr. Íbúðin
hefur öll verið tekin í gegn nýlega. Ný
eldhúsinnrétting og nýtt parket á gólfum.
Hús nýlega klætt að utan. Ásett verð
11,5 millj. 1187
Ingólfsstræti Mjög góð 3ja herberg-
ja íbúð í kjallara á þessum góða stað í fall-
egu húsi. Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn
á smekklegan hátt. Allar lagnir eru nýjar í
íbúðinni. Parket á herbergjum, flísar á baði
og holi. Verð 7,2 millj. 1151
Leifsgata - ris Mjög skemmtileg
risíbúð með fjórum kvistum. Kvistirnir
gera íbúðina mjög bjarta. Parket á hjó-
naherbergi, flísar á baði og í eldhúsi.
Góð eign nálægt miðbænum. Laus
fljótlega. 1114
Vindás Mjög góð 3ja herbegja íbúð á
4. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Selásnum.
Parket og flísar á gólfum. Áhv. mjög
hagstæð lán, um 3,8 millj. með 4,9% vöx-
tum. Ekkert greiðslumat. Verð 10,7
m. 1136
Hraunbær - 2ja Einkar glæsileg
2ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu
fjöleignahúsi. Íbúðin hefur nýlega verið
endurnýjuð að innan á smekklegan hátt. Hús
í góðu standi. 1083
Kaplaskjólsvegur - 2ja
Ágæt 2ja herbergja íbúð í kjallara á
þessum vinsæla stað. Íbúðin er 63 fm
björt íbúð. Nýstandsett baðherbergi. V.
7,2 m. 1102