Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 1

Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 1
2001  ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KNATTSPYRNA: SIGURÐUR OG HILMAR Í FH / B16 Indriði Sigurðsson og Gylfi Ein-arsson, leikmenn með norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström í Noregi, komu ekki með landsliðshópn- um til Indlands eins og ráð var fyrir gert þegar landsliðshóp- urinn hélt frá Íslandi á sunnudags- morguninn. Ástæðan fyrir því var að Arne Erlandsson, þjálfari Lille- ström, vildi ekki sleppa þeim á sunnudaginn, þar sem hann vildi hafa þá með í æfingaleik hjá Lille- ström gegn nýliðum norsku úrvals- deildarinnar, Sogndal. Var hann með öllu ófánanlegur til þess að sleppa hendinni af leikmönnunum. Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari var ekki ánægður með hvað Arne Erlandsson var óliðlegur. „Hann sagðist vera búinn að skipuleggja starf sitt fjóra mánuði fram í tím- ann. Ég sagði að um væri að ræða aðeins einn æfingaleik. Það væri slæmt fyrir tvo unga stráka að ferðast einir yfir hálfan hnöttinn – á eftir félögum sínum. „Þá fara þeir ekki,“ sagði Arne. Við höfðum strax samband við Indriða og Gylfa til að kanna huga þeirra. Báðir sögðust vera tilbúnir að leggja það á sig að fara einir til Indlands, til að geta verið með landsliðshópn- um.“ Þeir félagar fljúga beint frá Ósló til Nýju-Delhí og koma þaðan til móts við landsliðshópinn á keppn- isstaðnum í Cochin í S-hluta Ind- lands í kvöld. Morgunblaðið/Einar Falur Landsliðsmennirnir Veigar Páll Gunnarsson, Kjartan Antonsson og Gunnleifur Gunnleifsson bera á sig moskítóvörn fyrir utan flug- stöðina í Bombay á Indlandi í gærmorgun, en unglingsstúlka með barn í fanginu biður þá um peninga. Lilleström setti „rautt ljós“ á Íslendingana Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar frá Indlandi Vegabréfsáritun gekk hratt fyrir sig ÍSLENSKI landsliðshópurinn sem kom til Indlands í gær- morgun, varð að fá vegabréfsáritun á flugvellinum í Bombay. Margir töldu að það yrði mikið stapp að fá vegabréfsáritun inn í landlið, en Íslendingar sem fara til Indlands þurfa að senda vegabréf sín til sendiráðs Íslands í Noregi, til að fá vegabréfsáritun. Þegar komið var til Bombay tók maður frá indverska knattspyrnusambandinu á móti íslenska liðinu og fór hann strax í það að fá vegabréfsáritun á staðnum. Það gekk hratt fyrir sig og sýnir að knattspyrnan á sér engin landamæri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.